Fréttablaðið - 07.05.2016, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 07.05.2016, Blaðsíða 16
Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir forStjóri: Sævar Freyr Þráinsson Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is aðStoðarritStjórar: Fanney Birna Jónsdóttir fanney@frettabladid.is, Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSn 1670-3871 fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is og Viktoría Hermannsdóttir viktoria@frettabladid.is menning: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is ljóSmyndir: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚtlitShönnun: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is Gunnar Mín skoðun Sif Sigmarsdóttir Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is Landvernd krafðist þess í vikunni að ríkis-stjórnin gripi til tafarlausra aðgerða til að vernda lífríki Mývatns og aðstoðaði sveitarstjórn á svæðinu við að koma frá-veitumálum í ásættanlegt horf. Andri Snær Magnason forsetaframbjóðandi gekk raunar skrefinu lengra og taldi ástæðu til að kalla saman neyðarfund í ríkisstjórn vegna málsins. Óhætt er að taka undir þessi sjónarmið. Niðurstöður Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar benda til að magn blábakteríu sé tólffalt það sem stofnunin telur óhóflegt. Því þarf engan að undra að hinn margrómaði kúluskítur heyri sögunni til, og að hornsíla- og bleikjustofnar í vatninu eigi undir högg að sækja. Samkvæmt sérfræðingum er það engum vafa undirorpið að breytingar á lífríki Mývatns eru af mannavöldum. Meðal orsaka má nefna frárennsli frá þéttbýli, iðnrekstur og áburðargjöf. Jafnframt gætir enn áhrifa frá kísilverksmiðju sem starfrækt var við Mývatn til 2004. Flestir virðast sammála um að mest aðkallandi sé að lagfæra fráveitumál á svæðinu. Ástandið hefur snarversnað undanfarin ár og telst nú vart annað en krísa. Þar spilar fjölgun ferðamanna stærsta rullu, enda þarf skólpkerfið á svæðinu að taka við marg- földum mannfjölda frá því sem áður var. Tugir lang- ferðabíla, fullir af ferðamönnum, koma nú að Mývatni á degi hverjum yfir annatímann. Fráveitukerfið var ekki byggt til að standast slíkt álag. Eitthvað þarf undan að láta. Mývatnskrísan er bara ein birtingarmynd stærra vandamáls. Staðreyndin er að ferðamannafjöldi hefur fimmfaldast frá aldamótum og eykst um fjórðung á ári hverju. Innviðirnir í landinu anna þessu ekki, náttúru- perlur eru að sligast undir átroðningi og umferðin um lykilmannvirki á borð við hringveginn hefur marg- faldast frá því sem til var ætlast. Ef ekki verður gripið í taumana er óafturkræft tjón á náttúru landsins óumflýjanlegt. Sveitarstjórnir vita ekki sitt rjúkandi ráð. Þær fá sáralítinn bita af túristakökunni og þurfa að standa undir innviðum sem allt í einu þarfnast margfalds eftirlits. Ríkisstjórnir, bæði þessi og þær sem áður störfuðu, hafa gersamlega brugðist. Náttúrupassinn strandaði í þinginu og ekkert virðist ætla að koma í staðinn. Ráðaleysið virðist algert. Andri Snær hefur rétt fyrir sér. Ríkisstjórnin ætti að boða til neyðarfundar. Við lifum á viðsjárverðum tímum fyrir náttúru Íslands, og nauðsynlegt að stjórn- málamenn girði sig í brók og taki forystu í málinu. Eins og staðan er nú fljótum við sofandi að feigðarósi. Við þurfum að tryggja afkomendum okkar aðgang að óspilltri náttúru landsins hvað sem það kostar – jafnvel þótt greiða þurfi aðgangseyri að Þingvöllum. Náttúruhamfarir af mannavöldum Ríkisstjórnir, bæði þessi og þær sem áður störfuðu, hafa gersamlega brugðist. Að morgni 25. janúar 1995 afhenti aðstoðarmað-ur Borisar Jeltsín, forseta Rússlands, yfirmanni sínum skjalatösku. Við handfang töskunnar blikkaði lítið ljós. Ofan í töskunni var skjár sem sýndi að flugskeyti hafði verið skotið á loft af Noregshafi. Stefndi það beint í átt að Moskvu. Undir skjánum voru fjórir takkar. Takkarnir stýrðu örlögum mannkyns. Vélmenni, stríð eða loftsteinn? Ragnarök hafa verið handan hornsins frá sköpun heimsins. Hvernig „veröld steypist“ eru þó ekki allir sammála um. Munu endalokin orsakast af einhverju óáhugaverðu eins og loftslagsbreytingum? Einhverju handahófskenndu á borð við árekstur loftsteins? Ein- hverju trendí eins og vélmenni með gervigreind, eða kannski einhverju retró eins og kjarnorkustríði? Hvað það verður veit nú enginn, eins og segir í jóla- laginu. Vísindamenn við Oxfordháskóla eru hins vegar ekki í neinum vafa um eitt: Við erum ekki að taka þá vá sem er fyrir dyrum nærri nógu alvarlega. Í síðustu viku birti hópur vísindamanna skýrslu um helstu hörmungar sem gætu dunið yfir mannkynið. Um er að ræða lista yfir ógnir sem hafa burði til að þurrka út að minnsta kosti 10 prósent íbúa jarðar í einu vetfangi. Sé litið til næstu fimm ára taldi hópurinn manninum stafa mest hætta af loftsteinum, eldgosum og náttúru- hamförum. Til lengri tíma stafar okkur hins vegar helst ógn af gervigreind, loftslagsbreytingum, farsóttum og kjarnorkustríðum. Að skjóta eða ekki skjóta Takkarnir fjórir í töskunni hans Jeltsín gerðu honum kleift að gera kjarnorkuárás á skotmörk um víða veröld. Rússar höfðu til reiðu 4.700 kjarnaodda. Í ljós kom hins vegar að taskan hafði verið tekin fram fyrir misskilning. Það sem Rússar töldu í nokkrar örlagaríkar mínútur árið 1995 vera kjarnorkuflaug sem stefndi á Moskvu var í raun norsk veðurathugunar-eldflaug sem gerði athuganir á norðurljósunum. Jeltsín hafði sex mínútur til að taka ákvörðun: Að skjóta eða ekki skjóta á móti. Jeltsín sá að sér. Því hefur hins vegar verið haldið fram að heimsbyggðin hafi aldrei verið jafnnálægt kjarn- orkustríði og 25. janúar 1995. Það er meðal annars klaufaskapur sem þessi sem vísindamennirnir í Oxford óttast að geti gert út af við mannkynið. Tilgangur skýrslu hópsins var að leggja til fyrirbyggjandi aðgerðir sem minnkað gætu líkurnar á hörmungum. „Ef við höldum áfram að fresta því til morguns að horfast í augu við ógnirnar mun raunveru- leikinn koma aftan að okkur,“ sagði Sebastian Far- quhar, forsprakki teymisins. Fréttir frá Íslandi gefa hins vegar ekki tilefni til bjart- sýni. „Heyrir enginn? Hlustar enginn?“ Síðustu mánuði hafa borist fregnir af bráðri hættu sem stafar að lífríki Mývatns. Skútustaðahreppur hefur unnið að því að setja upp hreinsistöð við vatnið til að takmarka mengun í fráveitu sem rennur í náttúruperl- una. Svo virðist hins vegar sem sveitarfélagið ráði ekki fjárhagslega við verkið. Landvernd hefur því skorað á ríkisstjórnina að aðstoða Skútustaðahrepp við að koma fráveitumálum sveitarfélagsins í ásættanlegt horf svo koma megi í veg fyrir að lífríkið þurrkist út. Ómar Ragnarsson skrifaði grein í Fréttablaðið í vikunni þar sem hann sendi út neyðarkall fyrir hönd lífríkisins í Mývatni. Þar varaði hann við „kyrkingu einstæðs og heimsfrægs lífríkis“ sem hann sagði komna vel á veg. Hætta er þó á að neyðarkalli Ómars verði ekki svarað. Í grein sinni rifjaði hann upp að fyrir fjórum árum hefði hann sent út sams konar neyðarkall í sama blaði. Hann spyr: „Heyrir enginn? Hlustar enginn?“ Það er rangt hjá vísindamönnunum í Oxford að helstu hættur sem stafa að mannkyninu séu vélmenni, kjarnorkusprengjur eða farsóttir. Mesta ógn sem fyrir- finnst á jörðinni nú um stundir er okkar eigið and- varaleysi. Spyrjið bara Ómar Ragnarsson og lífríkið í Mývatni. Hvernig veröld steypist 7 . m a í 2 0 1 6 L a U G a R D a G U R16 s k o ð U n ∙ F R É T T a B L a ð i ð SKOÐUN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.