Fréttablaðið - 07.05.2016, Síða 18

Fréttablaðið - 07.05.2016, Síða 18
fjöri þannig að maður er löngu orð- inn vanur þessu,“ segir Gunnar, en var þetta ekki það mesta hingað til? „Ekkert endilega,“ segir Gunnar og hlær. „Þetta var fínn pakki en mikið á netinu sem ég var ekkert að spá í. Við héldum bara okkar plani og vorum að æfa og djöflast þannig að þetta breytti engu máli fyrir mig.“ Læri mikið af honum Conor átti sjálfur að berjast í júlí gegn Nate Diaz og reyna að hefna fyrir tapið fyrr á þessu ári. Ekkert verður af bardaganum þar sem hann fór hálf- partinn í hart við UFC. Hann sagðist vera hættur en hætti svo við að hætta nokkrum dögum síðar. „Hann sagðist vera kominn með nóg af þessu. Mig grunaði að hann myndi koma aftur og ég hugsa að hann hafi alveg vitað það sjálfur. Þó menn hætti koma þeir aftur. Á þess- um tímapunkti var hann orðinn þreyttur á öllu þessu fjölmiðla- dæmi. Það var að fara illa í hann,“ segir Gunnar um vin sinn Conor. „Hann langaði að fara að æfa því hann var að fara að mæta manni sem hann var búinn að tapa fyrir. Hann langaði að fá tíma út af fyrir sig til að æfa á meðan það var verið að reyna að draga hann inn í alls konar dæmi.“ Gunnar segir það gera sér mjög gott að æfa með Conor en þeir hafa æft saman lengi: „Það er alltaf frá- bært. Við höfum æft saman frá því við vorum 19 ára. Við höfum reglu- lega verið saman í æfingabúðum. Það hafa alltaf verið mjög góð samskipti okkar á milli og æfingar okkar hafa verið góðar. Ég hef alltaf lært mikið af honum.“ Hugsar ekki um tap Eftir mikinn og hraðan uppgang í UFC er Gunnar nú búinn að tapa tveimur af síðustu þremur bardög- um og er dottinn út af styrk- leikalista veltivigtarinnar. Hann hugsar ekki einu sinni um hvað verður um ferilinn ef allt fer á versta veg á sunnu- daginn. „Maður hugsar ekki svona. Maður heldur bara áfram. Það skiptir engu máli hvað gerist. Það þýðir ekkert að spá í þessum hlutum núna,“ segir Gunnar sem er alltaf bjart- sýnn og hefur trú á eigin getu. „Auðvitað getur allt gerst og þá tekur maður bara á því þegar að því kemur. Það er engin hola í veg- inum það djúp að maður komist ekki fram hjá henni og geti haldið áfram. Maður horfir bara fram á við og heldur áfram. Það tapa allir íþróttamenn einhvern tíma,“ segir Gunnar Nel- son. tomas@365.is 10.25 Roma - Chievo Sport2 12.20 Tottenham - South. Sport 14.50 Man. City - Arsenal Sport 14.50 Liverpool -Watford Sport2 14.55 Real Madrid - Valencia Sport4 14.55 Barcelona - Espanyol Sport3 17.00 Wells Fargo-mótið Golfst. 18.00 UFC: Gunnar Nelson Sport 18.45 Víkingur - Stjarnan Sport2 19.05 Fylkir - Breiðablik Sport3 22.00 Pepsi-mörkin Sport 16.00 Haukar - UMFA Schenker-höll 16.00 Vík. Ó. - Valur Ólafsvík 19.15 FH - ÍA Kaplakriki 19.15 Fylkir- Breiðablik Floridanav. 19.15 Þróttur - KR Þróttarvöllur 19.15 Víkingur - Stjarnan Víkin Lokaúrslit Olís-deildanna í handbolta hefjast hvor tveggja um helgina Fjögur félög með lið í lokaúrslitum í ár Fyrirliðar liðanna í úrslitaeinvígum handboltans í ár hittu fjölmiðlamenn í gær. Talið frá vinstri: Matthías Árni Ingimarsson frá Haukum, Jóhann Jóhannsson frá Aftureldingu, Solveig Lára Kjærnested frá Stjörnunni og Eva Björk Davíðsdóttir frá Gróttu. Fyrsti leikurinn hjá konunum er klukkan 16.00 í dag á Seltjarnarnesi en karlarnir byrja klukkan 16.00 á Ásvöllum á morgun. FRéTTABLAðið/ERNiR MMA Gunnar Nelson berst í fyrsta sinn á árinu 2016 á sunnudags- kvöldið en hann stígur þá inn í búrið í Ahoy-höllinni í Rotterdam. Gunn- ar þarf að svara fyrir sig eftir slæmt tap gegn Brasilíumanninum Demian Maia í Las Vegas í desember í fyrra. Hinn 24 ára gamli Tumenov er rísandi stjarna í UFC-heiminum. Eftir að hafa unnið þrettán bar- daga og tapað aðeins einum heima í Rússlandi fékk hann samning hjá UFC en tapaði fyrsta bardaganum innan sambandsins. Síðan þá hefur hann verið á miklum skriði og unnið fimm bardaga í röð, þar af þrjá með rothöggi. „Hann er bestur standandi. Mér finnst boxið hans vera best en spörk- in eru mjög góð líka. Sérstaklega há- spörkin sem eru frekar snögg. Hann blandar þessu skemmtilega saman. Það er aðallega boxið sem er það besta. Hann er klassískur þar hvað varðar fótavinnu og annað en það virkar vel fyrir hann,“ segir Gunn- ar sem hefur æft standandi leikinn mikið undanfarin tvö ár. Hann langar þó mest að koma Tumenov í jörðina. „Ég á eftir að nota þau verkfæri sem ég hef, hver sem þau verða. Það væri örugglega helvíti fínt að tuskast í honum þar,“ segir Gunnar glettinn og er greinilega léttur. Conor truflaði ekki Ólíkt því sem var fyrir síðustu bar- daga æfði Gunnar að mestu leyti heima á Íslandi hjá sínu félagi, Mjölni, þar sem hann fékk vini sína frá Bret- landi og Írlandi til að koma yfir hafið og æfa með sér. Hann dvaldi löngum stundum í Ameríku fyrir síðustu tvo bardaga en fannst þetta mikið betra. „Það er mjög gott að vera heima þar sem ég er með lítinn strák. Svo er æfingaaðstaðan okkar í Mjölni alveg frábær til undirbúnings. Það að fá stráka yfir til Íslands og æfa með okkur í Mjölni er eins gott og það gerist finnst mér. Ég myndi vilja hafa það þannig oftar ef möguleiki er á,“ segir Gunnar. Írski bardagamaðurinn Conor McGregor, skærasta stjarna UFC- heimsins í dag, kom einnig til Íslands til að æfa með Gunnari síðustu vikuna sem hann var hér heima. Gunnar og Conor eru miklir vinir og hafa verið lengi. Það fór líklega ekki fram hjá mörgum að Conor setti UFC-heiminn á hliðina þegar hann sagðist vera hættur en fjölmiðlafárið í kringum það truflaði ekki æfinga- skipulagið „Það hafði engin áhrif á æfingarnar. Ég er búinn að þekkja Conor í mörg ár og það er alltaf drama og dæmi í kringum hann. Það er alltaf nóg af Engin hola Sunnudagur 11.25 Mboro - Brighton Sport2 11.35 Norwich - Man. Utd Sport 13.25 Schalke - Augsburg Bravó 13.50 Sunderland - Chelsea Sport2 15.30 Fjölnir - ÍBV Sport 16.20 Leicester - Everton Sport2 17.00 Wells Fargo-mótið Golfst. 18.40 Bologna - AC Milan Sport 21.00 Miami - Toronto Sport 14.00 Fjarðab. - Huginn Fj.höllin 16.00 Selfoss - Leiknir F. Selfossv. 16.00 Leiknir R. - Þór Leiknisv. 16.00 KA - Fram KA-völlur 16.00 Fjölnir - ÍBV Fjölnisvöllur 16.00 Grótta - Stjarnan Hertz-höllin Laugardagur Ég á eftir að nota þau verkfæri sem ég hef hver sem þau verða. Gunnar Nelson Nýjast Inkasso-deildin HK - Keflavík 1-1 1-0 Ragnar Leósson, víti (62.), 1-1 Sigur- bergur Elísson (80.) Grindavík - Haukar 3-2 0-1 Aron Jóhannsson (13.), 1-1 Alexander Veigar Þórarinsson (34.), 2-1 Hákon Ívar Ólafsson (52.), 3-1 Gunnar Þorsteinsson (57.), 3-2 Þórður Jóhannesson (84.). KörfuboltI Helena Sverrisdóttir úr Haukum og Haukur Helgi Pálsson úr Njarðvík voru í gær kosin bestu leik- menn tímabilsins í Domino’s-deild- unum í körfubolta, Helena í fjórða sinn en Haukur í fyrsta sinn. Þjálfarar Íslands- og bikarmeist- aranna, Finnur Freyr Stefánsson hjá KR og Ingi Þór Steinþórsson hjá Snæfelli, voru valdir þjálfarar ársins. Bestu ungu leikmenn Dom- ino’s-deildanna voru þau Thelma Dís Ágústsdóttir úr Keflavík og Kári Jónsson úr Haukum. Gunnhildur Gunnarsdóttir, fyrir- liði Snæfells, var valin besti varnar- maður deildar- innar annað árið í röð en KR-ingurinn Darri Hilmarsson var  sá fyrsti sem nær að verða v a r n a r m a ð u r ársins þrjú ár í röð. Michael Craion var val- inn besti erlendi l e i k m a ð u r i n n þriðja árið í röð en Haiden P a l m e r h j á Snæfelli hlaut þau verðlaun hjá konunum. – óój Haukur Helgi og Helena best of djúp Gunnar Nelson stígur inn í búrið í fyrsta sinn á nýju ári á sunnudagskvöldið þegar hann mætir Rússanum Albert Tumenov í Rotterdam. 7 . M A í 2 0 1 6 l A u G A r D A G u r18 s p o r t ∙ f r É t t A b l A ð I ð Sport
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.