Fréttablaðið - 07.05.2016, Side 32

Fréttablaðið - 07.05.2016, Side 32
Hr o s s a g a u ku r i n n minnir okkur Pjet-ur ljósmyndara á vorið þegar við stígum út úr bíln-um á Hvanneyri í Borgarfirði, þó jörðin sé enn föl yfir að líta. Í nýlegu húsi á staðnum búa hjónin Aldís Arna Tryggvadóttir og Sigurður Guðmundsson með þrem- ur börnum og þangað er komin á undan okkur móðir húsfreyjunnar, Aldís Aðalbjarnardóttir, sem býr í Kópavogi. Við erum leidd að morgunverðar- borði sem svignar undan litríkum kræsingum og þar fáum við að heyra af þeim nýjungum í ferða- þjónustu sem þau ætla að brydda upp á og snúast um að auðvelda fólki að hlaða batteríin til langframa með skjótvirkum hætti. „Við höfum sterka ástríðu fyrir því að vinna saman og erum að leggja grunn að heilsutengdri ferðaþjón- ustu undir nafninu Coldspot. Við þróuðum hugmyndina með fólki í viðskiptum og frumkvöðlageir- anum innan Startup Tourism enda telst það nýsköpun á þessum tækni- tímum að taka allt úr sambandi. Ætlum að bjóða upp á sérstakar ferðir þar sem fólk á ekki að hafa áhyggjur af statusfærslum en nýtur samt líðandi stundar,“ segir Aldís Arna og útskýrir pælinguna á bak við nafn fyrirtækisins. „Ís er kaldur og Ísland er depill í Norður-Atlants- hafinu. Svo er Wi-Fi hotspot staður með góða nettengingu og símasam- band en coldspot er þá þveröfugt.“ „Aðalsérstaða okkar fyrirtækis er nefnilega stafræn afeitrun – digital detox. Grunnhugmyndin að stofnun Coldspot er svolítið á skjön við síkvikan heim tækninnar þar sem hlutirnir gerast á ljóshraða. Við viljum, þvert á hraðann, að fólk fái hvíld og frið í fríinu sínu,“ segir Sigurður sem gengur undir nafn- inu Siggi. „Það þýðir að fólk geymir snjalltækin, síma, iPad og tölvur á meðan það er í okkar ferðum og er þá ekki á Snapchat, Instagram, Facebook eða að svara tölvupóstum á meðan. Í öllum ferðum verður leiðsögn, líkamleg áreynsla af ein- hverju tagi og ferðalag inn á við með markþjálfun og innleggi um lífið og tilveruna. Þannig sameinum við áhugasvið okkar þriggja og gestir okkar fá innihaldsrík frí!“ Við eftirgrennslan kemur í ljós að Aldís eldri er kennari að mennt, með BA-próf í þýsku og íslensku og hefur 20 ára reynslu í leiðsögn. Tók meira- próf, fór til Austurríkis í þýskunám og keypti sér fjórhjóladrifinn Ford Econoline. Svo fór hún í leiðsögu- skólann, ók af stað og nýtur sérhvers dags í leiðsögn að eigin sögn. Siggi er íþróttakennari og lýð- heilsufræðingur að mennt og hefur veitt lýðheilsutengdum viðburðum forstöðu, svo sem Landsmóti UMFÍ 50+ og Hættu að hanga! Komdu að hjóla, synda eða ganga! Aldís Arna er ólíkindatólið, viðskiptafræðingur með reynslu af stjórnun, stjórnsýslu, verðbréfamiðlun og markþjálfun en er svo mikill húmanisti að hún vill umfram allt gefa af sér til fólks. En hvaðan kemur þeim hugmynd- in að snjalltækjalausum ferðum? Aldís Arna svarar því og segir fyrir- tæki með sömu áherslur farin að ryðja sér til rúms erlendis. „Í Banda- ríkjunum eru komin kaffihús þar sem mælst er til að fólk sé ekki með snjalltæki en tali frekar saman aug- Vilja auka frið fólks í fríinu Aldís Arna Tryggvadóttir viðskiptafræðingur, Sigurður Guðmundsson íþróttakennari og Aldís Aðalbjarnardóttir, kennari og leiðsögumaður, eru að stofna fyrirtækið Coldspot. Það mun bjóða upp á styttri og lengri ferðir með nýjum áherslum. Farsímar og önnur snjalltæki fá frí en markþjálfun, hreyfing og nánd við náttúruna eru í fyrirrúmi. Siggi, Aldís og Aldís sameina áhugasvið sín í hinni nýju ferðaþjónustu og bjóða fólki upp á innihaldsrík frí. FréttAblAðið/Pjetur liti til auglitis. Fyrirtæki eru farin að borga starfsmönnum fyrir að fara í frí án tækja. Þá fá þau ánægða starfs- menn til baka með betri einbeitingu en áður.“ Siggi tekur við: „Að vera sítengdur þýðir að skilaboðin koma hvenær sem er. Því er eins og fólk sé alltaf í vinnunni – alltaf að tékka, tékka, tékka, en það er mjög streituvald- andi.“ „Svo er alveg ótrúlegt að sjá fólk vera í símunum á meðan á mál- tíð stendur í stað þess að njóta sam- vistanna og spjalla saman,“ bætir Aldís Aðalbjarnar við. tölvulaus tvo tíma á dag Eins og fram kom í byrjun eiga hjónin þrjú börn. Þau eru í skólum meðan á þessu viðtali stendur en móðir þeirra segir þau hafa á vissan hátt komið hugmyndinni að fyrir- tækinu af stað. „Við vorum í bíln- um og strákarnir aftur í með síma og ég hafði orð á því að þegar ég hefði verið lítil hefðu ekki verið til svona snjallsímar. Þá sagði átta ára strákurinn: „Mikið varstu heppin, þá þurftir þú ekki að keppa við símana um athyglina hjá foreldrum þínum.“ Ég fór að skoða mína eigin snjalltækjanotkun og komst að því að hún var alltof mikil. Ég var stressaður stjórnandi og ég treysti alltaf á kvöldin til að vinna upp syndir dagsins. Við hér á heimilinu ákváðum að slökkva á tækjunum milli klukkan 17 og 19 og það ger- breytti lífi okkar. Við fórum að taka eftir, leika meira og leyfa börnunum að hjálpa til á heimilinu. Tónhæðin lækkaði og samskiptin bötnuðu.“ Aldís Arna tekur fram að þau þoli alveg tækni. „Nýjungar í tækni, sérstaklega samfélagsmiðlar og sítenging, eru snilld. En við þurfum að vera meðvituð um notkunina og stýra henni, leggja tækin frá okkur af og til og njóta þess. Það mun fólk finna hjá okkur. Það fær kannski smá fráhvarfseinkenni fyrsta daginn en næsta dag finnur það hversu gott það er og hvað það fær í staðinn.“ „Auðvitað förum við á ferða- mannastaði en við vitum líka um fjöldann allan af leynilegum stöð- um þar sem okkar hópar geta verið einir,“ segir Siggi og bætir við að þau geti til dæmis farið í fjallgöngur eða í miðnæturreiðtúra á björtum sumar- nóttum. Aldís Aðalbjarnar tekur undir það. „Það er það sem ferðamenn hrífast mest af, að vera úti í villtri náttúru landsins. Það snertir þá. Þeir eru svo hugfangnir af stórfenglegri náttúrunni að þeir eru oft hrærðir við brottför. Ég held að erlendir ferðamenn hafi opnað augu Íslend- inga enn frekar fyrir fegurð landsins með þeirri virðingu og hlýju sem þeir sýna landinu. Því tekur mig það sárt þegar við sjálf göngum fram af offorsi gegn náttúrunni.“ Hún tekur fram að þau skipti fólki ekki í flokka. „Ég hef alltaf lagt áherslu á að ég meti mann- eskjuna af því hvernig hún er í stað þess að spá í menntun, titil eða bak- grunn. Hún má vera kóngur eða drottning fyrir mér. Þegar erlendu gestirnir eru í ferðarykinu með mér á Íslandi þá eru allir jafnir. Það er mín reynsla.“ tjútt og rokk „Fólk vill alveg prófa eitthvað nýtt,“ segir Aldís Arna. „Af hverju ekki leikfimi klukkan sjö að morgni í elsta íþróttahúsi landsins eða úti í náttúrunni?“ Mamma hennar upp- lýsir að hún og Páll, maður hennar, sýni oft dans í sínum langferðum. „Við sýnum gömlu dansana og líka tjútt og rokk. Svo kenni ég ferða- mönnunum stundum skottís sem vekur alltaf kátínu.“ Siggi er rótgróinn Hvanneyringur og segir Hvanneyri verða útgangs- punkt ferðanna en í sérstöku dálæti verði Borgarbyggð, Snæfellsnes, Vestfirðir og Strandir. Hann segir þau vera í samningaviðræðum við sumarbústaðaeigendur í Skorradal í sambandi við gistingu og einnig sé mikil uppbygging hótela og annarra gististaða á Vesturlandi. „Það er fullt af tækifærum hér á Hvanneyri og í Borgarbyggð sem við nýtum enda viljum við láta gott af okkur leiða í samfélaginu.“ l Fjólubláa ljósið frá skjánum minnkar melatónínið í heilanum og gerir fólki erfiðara að sofna. l Við það að missa svefn minnkar einbeiting og afköst minnka en við það eykst stress sem er stærsti ógnvaldur í heilsufari manna á 21. öldinni. l „Meðalmaðurinn kíkir 150 sinnum á símann á dag og eyðir 3,5 tímum á miðlum. l Fólk sem er mikið á netinu er 2,5 sinnum líklegra til að glíma við þunglyndi en aðrir. l Mikil netnotkun dregur úr félagslegri hæfni, ýtir undir kvíða, félagslega einangrun og einmanaleika. Rannsóknir á netnotkun fólks kjósa fremur að eiga samskipti gegnum tæki en augliti til auglitis. 50% fólks segja að hefðbundin ferðalög minnki ekki streitu. 60% Meðalmaðurinn kíkir sinnum á símann á dag og eyðir 3,5 tímum á miðlum. 150 Gunnþóra Gunnarsdóttir gun@frettabladid.is 7 . m a í 2 0 1 6 L a U G a R D a G U R32 h e L G i n ∙ F R É T T a B L a ð i ð
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.