Fréttablaðið - 07.05.2016, Síða 32
Hr o s s a g a u ku r i n n minnir okkur Pjet-ur ljósmyndara á vorið þegar við stígum út úr bíln-um á Hvanneyri í
Borgarfirði, þó jörðin sé enn föl yfir
að líta. Í nýlegu húsi á staðnum búa
hjónin Aldís Arna Tryggvadóttir og
Sigurður Guðmundsson með þrem-
ur börnum og þangað er komin á
undan okkur móðir húsfreyjunnar,
Aldís Aðalbjarnardóttir, sem býr í
Kópavogi.
Við erum leidd að morgunverðar-
borði sem svignar undan litríkum
kræsingum og þar fáum við að
heyra af þeim nýjungum í ferða-
þjónustu sem þau ætla að brydda
upp á og snúast um að auðvelda
fólki að hlaða batteríin til langframa
með skjótvirkum hætti.
„Við höfum sterka ástríðu fyrir því
að vinna saman og erum að leggja
grunn að heilsutengdri ferðaþjón-
ustu undir nafninu Coldspot. Við
þróuðum hugmyndina með fólki
í viðskiptum og frumkvöðlageir-
anum innan Startup Tourism enda
telst það nýsköpun á þessum tækni-
tímum að taka allt úr sambandi.
Ætlum að bjóða upp á sérstakar
ferðir þar sem fólk á ekki að hafa
áhyggjur af statusfærslum en nýtur
samt líðandi stundar,“ segir Aldís
Arna og útskýrir pælinguna á bak
við nafn fyrirtækisins. „Ís er kaldur
og Ísland er depill í Norður-Atlants-
hafinu. Svo er Wi-Fi hotspot staður
með góða nettengingu og símasam-
band en coldspot er þá þveröfugt.“
„Aðalsérstaða okkar fyrirtækis
er nefnilega stafræn afeitrun –
digital detox. Grunnhugmyndin
að stofnun Coldspot er svolítið á
skjön við síkvikan heim tækninnar
þar sem hlutirnir gerast á ljóshraða.
Við viljum, þvert á hraðann, að fólk
fái hvíld og frið í fríinu sínu,“ segir
Sigurður sem gengur undir nafn-
inu Siggi. „Það þýðir að fólk geymir
snjalltækin, síma, iPad og tölvur
á meðan það er í okkar ferðum og
er þá ekki á Snapchat, Instagram,
Facebook eða að svara tölvupóstum
á meðan. Í öllum ferðum verður
leiðsögn, líkamleg áreynsla af ein-
hverju tagi og ferðalag inn á við með
markþjálfun og innleggi um lífið og
tilveruna. Þannig sameinum við
áhugasvið okkar þriggja og gestir
okkar fá innihaldsrík frí!“
Við eftirgrennslan kemur í ljós að
Aldís eldri er kennari að mennt, með
BA-próf í þýsku og íslensku og hefur
20 ára reynslu í leiðsögn. Tók meira-
próf, fór til Austurríkis í þýskunám
og keypti sér fjórhjóladrifinn Ford
Econoline. Svo fór hún í leiðsögu-
skólann, ók af stað og nýtur sérhvers
dags í leiðsögn að eigin sögn.
Siggi er íþróttakennari og lýð-
heilsufræðingur að mennt og hefur
veitt lýðheilsutengdum viðburðum
forstöðu, svo sem Landsmóti UMFÍ
50+ og Hættu að hanga! Komdu að
hjóla, synda eða ganga! Aldís Arna
er ólíkindatólið, viðskiptafræðingur
með reynslu af stjórnun, stjórnsýslu,
verðbréfamiðlun og markþjálfun en
er svo mikill húmanisti að hún vill
umfram allt gefa af sér til fólks.
En hvaðan kemur þeim hugmynd-
in að snjalltækjalausum ferðum?
Aldís Arna svarar því og segir fyrir-
tæki með sömu áherslur farin að
ryðja sér til rúms erlendis. „Í Banda-
ríkjunum eru komin kaffihús þar
sem mælst er til að fólk sé ekki með
snjalltæki en tali frekar saman aug-
Vilja auka frið fólks í fríinu
Aldís Arna Tryggvadóttir viðskiptafræðingur, Sigurður Guðmundsson íþróttakennari og Aldís Aðalbjarnardóttir,
kennari og leiðsögumaður, eru að stofna fyrirtækið Coldspot. Það mun bjóða upp á styttri og lengri ferðir með
nýjum áherslum. Farsímar og önnur snjalltæki fá frí en markþjálfun, hreyfing og nánd við náttúruna eru í fyrirrúmi.
Siggi, Aldís og Aldís sameina áhugasvið sín í hinni nýju ferðaþjónustu og bjóða fólki upp á innihaldsrík frí. FréttAblAðið/Pjetur
liti til auglitis. Fyrirtæki eru farin að
borga starfsmönnum fyrir að fara í
frí án tækja. Þá fá þau ánægða starfs-
menn til baka með betri einbeitingu
en áður.“
Siggi tekur við: „Að vera sítengdur
þýðir að skilaboðin koma hvenær
sem er. Því er eins og fólk sé alltaf
í vinnunni – alltaf að tékka, tékka,
tékka, en það er mjög streituvald-
andi.“ „Svo er alveg ótrúlegt að sjá
fólk vera í símunum á meðan á mál-
tíð stendur í stað þess að njóta sam-
vistanna og spjalla saman,“ bætir
Aldís Aðalbjarnar við.
tölvulaus tvo tíma á dag
Eins og fram kom í byrjun eiga
hjónin þrjú börn. Þau eru í skólum
meðan á þessu viðtali stendur en
móðir þeirra segir þau hafa á vissan
hátt komið hugmyndinni að fyrir-
tækinu af stað. „Við vorum í bíln-
um og strákarnir aftur í með síma
og ég hafði orð á því að þegar ég
hefði verið lítil hefðu ekki verið til
svona snjallsímar. Þá sagði átta ára
strákurinn: „Mikið varstu heppin,
þá þurftir þú ekki að keppa við
símana um athyglina hjá foreldrum
þínum.“ Ég fór að skoða mína eigin
snjalltækjanotkun og komst að
því að hún var alltof mikil. Ég var
stressaður stjórnandi og ég treysti
alltaf á kvöldin til að vinna upp
syndir dagsins. Við hér á heimilinu
ákváðum að slökkva á tækjunum
milli klukkan 17 og 19 og það ger-
breytti lífi okkar. Við fórum að taka
eftir, leika meira og leyfa börnunum
að hjálpa til á heimilinu. Tónhæðin
lækkaði og samskiptin bötnuðu.“
Aldís Arna tekur fram að þau
þoli alveg tækni. „Nýjungar í tækni,
sérstaklega samfélagsmiðlar og
sítenging, eru snilld. En við þurfum
að vera meðvituð um notkunina og
stýra henni, leggja tækin frá okkur
af og til og njóta þess. Það mun fólk
finna hjá okkur. Það fær kannski
smá fráhvarfseinkenni fyrsta daginn
en næsta dag finnur það hversu gott
það er og hvað það fær í staðinn.“
„Auðvitað förum við á ferða-
mannastaði en við vitum líka um
fjöldann allan af leynilegum stöð-
um þar sem okkar hópar geta verið
einir,“ segir Siggi og bætir við að þau
geti til dæmis farið í fjallgöngur eða í
miðnæturreiðtúra á björtum sumar-
nóttum.
Aldís Aðalbjarnar tekur undir
það. „Það er það sem ferðamenn
hrífast mest af, að vera úti í villtri
náttúru landsins. Það snertir þá. Þeir
eru svo hugfangnir af stórfenglegri
náttúrunni að þeir eru oft hrærðir
við brottför. Ég held að erlendir
ferðamenn hafi opnað augu Íslend-
inga enn frekar fyrir fegurð landsins
með þeirri virðingu og hlýju sem
þeir sýna landinu. Því tekur mig það
sárt þegar við sjálf göngum fram af
offorsi gegn náttúrunni.“
Hún tekur fram að þau skipti
fólki ekki í flokka. „Ég hef alltaf
lagt áherslu á að ég meti mann-
eskjuna af því hvernig hún er í stað
þess að spá í menntun, titil eða bak-
grunn. Hún má vera kóngur eða
drottning fyrir mér. Þegar erlendu
gestirnir eru í ferðarykinu með mér
á Íslandi þá eru allir jafnir. Það er
mín reynsla.“
tjútt og rokk
„Fólk vill alveg prófa eitthvað nýtt,“
segir Aldís Arna. „Af hverju ekki
leikfimi klukkan sjö að morgni í
elsta íþróttahúsi landsins eða úti í
náttúrunni?“ Mamma hennar upp-
lýsir að hún og Páll, maður hennar,
sýni oft dans í sínum langferðum.
„Við sýnum gömlu dansana og líka
tjútt og rokk. Svo kenni ég ferða-
mönnunum stundum skottís sem
vekur alltaf kátínu.“
Siggi er rótgróinn Hvanneyringur
og segir Hvanneyri verða útgangs-
punkt ferðanna en í sérstöku dálæti
verði Borgarbyggð, Snæfellsnes,
Vestfirðir og Strandir. Hann segir
þau vera í samningaviðræðum við
sumarbústaðaeigendur í Skorradal
í sambandi við gistingu og einnig sé
mikil uppbygging hótela og annarra
gististaða á Vesturlandi. „Það er fullt
af tækifærum hér á Hvanneyri og í
Borgarbyggð sem við nýtum enda
viljum við láta gott af okkur leiða í
samfélaginu.“
l Fjólubláa ljósið frá skjánum
minnkar melatónínið í heilanum
og gerir fólki erfiðara að sofna.
l Við það að missa svefn minnkar
einbeiting og afköst minnka
en við það eykst stress sem er
stærsti ógnvaldur í heilsufari
manna á 21. öldinni.
l „Meðalmaðurinn kíkir 150
sinnum á símann á dag og eyðir
3,5 tímum á miðlum.
l Fólk sem er mikið á netinu er 2,5
sinnum líklegra til að glíma við
þunglyndi en aðrir.
l Mikil netnotkun dregur úr
félagslegri hæfni, ýtir undir
kvíða, félagslega einangrun og
einmanaleika.
Rannsóknir á
netnotkun
fólks kjósa fremur
að eiga samskipti
gegnum tæki en augliti til auglitis.
50%
fólks segja að
hefðbundin
ferðalög minnki ekki streitu.
60%
Meðalmaðurinn kíkir
sinnum á símann
á dag og eyðir 3,5
tímum á miðlum.
150
Gunnþóra
Gunnarsdóttir
gun@frettabladid.is
7 . m a í 2 0 1 6 L a U G a R D a G U R32 h e L G i n ∙ F R É T T a B L a ð i ð