Fréttablaðið - 07.05.2016, Qupperneq 34
Snærós
Sindradóttir
snaeros@frettabladid.is
Hér á landi blómstrar svo margt því fólk er ekki hrætt við að taka pínulitla hug-mynd og gera eitt-hvað stórt úr henni,“
segir Eliza Reid, eiginkona Guðna Th.
Jóhannessonar forsetaframbjóðanda.
Guðni er landsmönnum kunnur
sem sagnfræðingur og stjórnmála-
skýrandi en Elizu þekkja fáir enn
sem komið er. Eliza er kanadísk og
með BA-próf í alþjóðasamskiptum
og meistaragráðu í nútímasagnfræði.
Hún stofnaði sitt eigið fyrirtæki, Ice-
land Writers Retreat, með það mark-
mið að koma íslenskum bókmenntum
um allan heim og mynda tengsl á milli
íslenskra höfunda og erlendra.
„Glöggt er gests augað. Það sem
mér hefur alltaf fundist svo merkilegt
við Ísland er að þetta er 330 þúsund
manna þjóð sem hefur lengi haft ein
mestu lífsgæði í heimi. Það er af því
að fólk er tilbúið að taka þátt og gera
allt sem þarf að gera. Mér hefur alltaf
fundist svo gaman að hér er sami
maður kannski lögfræðingur og graf-
ískur hönnuður eða tónlistarmaður
og lögga. Allir eru með marga hatta
og geta skipt um svið þegar þeir vilja.“
Fordæmalausir tímar
Framboð Guðna hefur ekki verið mjög
lengi í burðarliðnum. Áskoranir á
hann urðu sérstaklega áberandi í apríl
þegar hann hélt uppi, ásamt öðrum,
skýringum í rauntíma á stjórnmála-
ástandi landsins í kringum Wintris-
málið. Þegar Ólafur Ragnar Grímsson
forseti ákvað að bjóða sig fram að nýju
öllum að óvörum leit út fyrir að ekkert
yrði af framboði Guðna. Hann sagði
sjálfur að enginn hefði velt sitjandi
forseta úr sessi.
„Hins vegar hefur enginn forseti
leitast eftir því að sitja á Bessastöðum
í aldarfjórðung. Það hefur enginn for-
seti boðið sig fram sex sinnum. Svo
er það líka það að forsetaefni sem
forsætis ráðherra styður hefur aldrei
unnið. Úr þessum hatti staðreynd-
anna velur maður bara þá sem hentar
manni best,“ segir Guðni.
„Það er ekki þannig að ég hafi lengi
alið með mér þann draum að bjóða
mig fram til forseta Íslands. Hins vegar
þykist ég vita mikið um það hvað for-
setar hafa vel gert og hvað hefur miður
farið. Mér finnst að forseti eigi að vera
málsvari og fulltrúi allra Íslendinga.
Hann þarf að vera fastur fyrir þegar á
þarf að halda, leita sátta og málamiðl-
ana þegar svo ber undir. Hann verður
að vera orðheldinn og fólk verður að
geta trúað forsetanum. Forseti á ekki
að vera málpípa ríkisstjórnarinnar en
ekki heldur að setja sig á móti henni.
Hann á að lýsa því á alþjóðavettvangi
þegar þjóðin stendur saman en hann
á líka að lýsa því þegar ágreiningur er
uppi svo þeir sem koma hingað sem
gestir viti að um sum mál er bullandi
ágreiningur,“ segir Guðni.
Á forsetinn þá að vera stjórnmálaskýr-
andi? „Stjórnmálaskýrandi fyrir gesti
og gangandi. Hann á að vera alþýð-
legur og ekki setja sig á háan hest. For-
seti á frekar að hlusta en að tala.“
Dró ástina upp úr dós
Eliza og Guðni kynntust þegar þau
voru bæði í námi við Oxford í Bret-
landi árið 1998. Eliza segir að þegar
hún flutti til landsins árið 2003 hafi
ekki hvarflað að henni að þrettán
árum síðar yrði hún í framboði til að
verða forsetafrú Íslands.
„En þegar ég flutti til Bretlands datt
mér aldrei í hug að ég myndi flytja til
Íslands. Ég er bara til í hvað sem er. Það
er hluti af ævintýrinu,“ segir Eliza.
Hvernig kynntust þið? „Við vorum
bæði í róðrarliðinu,“ segir Guðni.
Eliza segir að það hafi verið mikil-
vægt að taka þátt í slíku í Oxford.
„Róðrarliðið stóð fyrir fjáröflun þar
sem strákarnir höfðu hver sína dós og
stelpurnar keyptu miða með nafninu
sínu á. Þær áttu svo að setja nafnið sitt í
dós strákanna og freista þess að nafnið
þeirra yrði dregið út. Þá áttu strákarnir
að bjóða þeirri stelpu á stefnumót,“
segir Eliza.
„Svolítið eins og blind-date,“ grípur
Guðni inn í.
„Já mér fannst Guðni svolítið
skemmtilegur svo ég keypti tíu miða
og setti átta í hans dós. Að setja alla tíu
var kannski aðeins of mikið en ég vildi
samt eiga séns. Og hann dró nafnið
mitt,“ segir Eliza.
Eliza var raunar dregin út tvisvar.
Hinn heppni, sem fékk líka að bjóða
henni á stefnumót, var Lane Greene
sem nú er ritstjóri menningarhluta
tímaritsins the Economist í Bandaríkj-
unum. En eins og Guðni og Eliza lýsa
varð ekki aftur snúið eftir stefnumótið.
Í dag eiga þau fjögur börn saman,
Duncan Tind, Donald Gunnar, Sæþór
Peter og Eddu Margréti. Öll fædd með
tveggja ára millibili á árunum 2007 til
2013. Auk þeirra á Guðni dótturina
Rut út fyrra hjónabandi. „Hún verður
22 ára í sumar og er að ljúka námi í sál-
fræði og ritlist. Dóttir mín er mikil hug-
sjónamanneskja sem má ekkert aumt
sjá,“ segir Guðni.
Óháð á alþjóðavettvangi
Á heimili Guðna og Elizu er íslenska og
enska töluð jöfnum höndum. Börnin
eru tvítyngd. Það er meðal annars þess
vegna sem Guðni segist hvað síst kvíða
því að tala máli Íslands á alþjóðavett-
vangi fari svo að hann nái kjöri sem
forseti. Hann muni ekki verða Íslend-
ingum til skammar þegar kemur að
því að bregða fyrir sig öðrum tungu-
málum.
„Ég bjó samtals á Englandi í átta ár.
Svo get ég bjargað mér á skóladönsk-
unni gömlu, vann eitt sumar í Noregi
og þýsku lærði ég í skóla og þegar ég
bjó veturlangt í Þýskalandi. Svo lærði
ég rússnesku í eitt og hálft ár og get
svona haldið uppi einföldum sam-
ræðum á rússnesku.“
„Hann talar mjög góða dönsku. Og
svo tala ég frönsku,“ skýtur Eliza að.
„Já, ég lærði líka latínu í MR, en
maður spjallar víst ekki á henni,“ bætir
Guðni við.
En þú segir rússnesku. Hvað finnst þér
um samskipti forsetans við Rússland
og Vladimír Pútín? „Samskipti Íslands
og Rússlands hafa lengi verið náin
og maður finnur á rússneskum ráða-
mönnum að þeir vilja gjarnan eiga
góð samskipti við Ísland. Þeim varð
bylt við þegar Ísland tók þátt í efna-
hagsþvingunum gagnvart Rússlandi
og svöruðu í sömu mynt,“ segir Guðni.
„Ég held að stjórnvöld hverju sinni
marki utanríkisstefnu landsins, það sé
ekki í verkahring forseta. En þú spurðir
um Pútín og vissulega er það svo að við
þurfum að umgangast valdhafa allra
annarra ríkja af þeirri kurteisi og jafn-
vel festu sem á þarf að halda. Og varast
um leið að verða ekki nokkrum háðir.“
En það eru uppi óvissutímar í heim-
inum. Það ríkir einhvers konar kalt
stríð á milli Bandaríkjanna og Rúss-
lands. Hvar á Ísland að standa þar?
„Við eigum fyrst og fremst að hugsa
um hag okkar hverju sinni. Við erum í
varnarsamstarfi við önnur ríki á Vest-
urlöndum í gegnum Nató. Ég sé ekkert
sem ætti að skapa óvissu á þeim vett-
vangi. Svo erum við í nánu samstarfi
við ESB og ekki annað að sjá en að það
sé í ágætis farvegi. Smáþjóð í hörðum
heimi þarf að eiga vini en um leið þurf-
um við að gera okkur grein fyrir því að
stundum þarf að taka erfiðar ákvarð-
anir og láta hagsmuni þjóðarinnar
ganga framar. Þegar stundir koma að
við þurfum að hugsa um þjóðarhag
þurfum við að biðja okkar bandalags-
þjóðir að sýna okkur skilning. Ef ekki,
þá verður bara að hafa það.“
Aldrei meira en tólf ár
Guðni er fræðimaður og líður best
þegar hann hefur tíma til að sinna
grúski og fræðimennsku. „Ég er kom-
inn á þann stað í lífinu þar sem mér
líður afskaplega vel. Af hverju ætti ég
að breyta til? Öryggi vanans er mjög
gott en svo koma áskoranir og þá
verður maður að ákveða hvort maður
tekur þeim eða lætur þær sigla fram
hjá.“
Hann langar á Bessastaði en hyggst
ekki sitja þar til eilífðarnóns. „Þið
getið lesið það fyrst hér að ég verð
ekki stundinni lengur á Bessastöðum
en tólf ár, þrjú kjörtímabil, og jafnvel
skemur.“
Eliza hefur ekki áhyggjur yfir að sér
muni leiðast á meðan. „Mér finnst
þetta mjög gott tækifæri til að varpa
kastljósinu á mikilvæg mál eins og
bókmenntirnar. Ég verð ekki hús-
móðir sem er bara heima að þrífa, ekki
að það sé ekki gott.“
Þau hjónin hafa rætt framboðið
við krakkana. „Ég tala alltaf ensku við
börnin og spurði Donna hvort hann
héldi að pabbi gæti orðið góður for-
seti. Hann sagði: „Nei“ en bætti svo
við. „I think he would be terrific“ [ísl:
Ég held hann væri frábær],“ segir Eliza.
Guðni slær úr. „En það er ekkert
gefið í þessum efnum. Við erum í
framboði núna en við erum ekki að
sigla sigri í örugga höfn. Við þurfum
að sannfæra fólk um að ég sé traustsins
verður.“
ÞEGAR ÉG FLUTTI TIL
BRETLANDS DATT MÉR
ALDREI Í HUG AÐ ÉG MYNDI
FLYTJA TIL ÍSLANDS. ÉG ER
BARA TIL Í HVAÐ SEM ER.
ÞAÐ ER HLUTI AF
ÆVINTÝRINU.
Eliza Reid
FORSETI Á EKKI AÐ VERA
MÁLPÍPA RÍKISSTJÓRNAR-
INNAR EN EKKI HELDUR AÐ
SETJA SIG Á MÓTI HENNI.
Guðni Th. Jóhannesson
Í mesta lagi tólf ár
á Bessastöðum
Guðni Th. Jóhannesson og Eliza Reid tóku sameiginlega ákvörðun
um framboð Guðna til forseta Íslands. Sjálf ætlar Eliza ekki að sitja
auðum höndum fari svo að Guðni vinni komandi kosningar í júní.
Guðni Th Jóhannesson og Eliza Reid tóku sameiginlega ákvörðun um framboð. Kannanir sýna mikið fylgi Guðna en sam-
kvæmt könnun Fréttablaðsins frá fimmtudegi munar einungis sjö prósentum á Guðna og sitjandi forseta. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
7 . M A Í 2 0 1 6 L A U G A R D A G U R34 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð