Fréttablaðið - 07.05.2016, Page 34

Fréttablaðið - 07.05.2016, Page 34
Snærós Sindradóttir snaeros@frettabladid.is Hér á landi blómstrar svo margt því fólk er ekki hrætt við að taka pínulitla hug-mynd og gera eitt-hvað stórt úr henni,“ segir Eliza Reid, eiginkona Guðna Th. Jóhannessonar forsetaframbjóðanda. Guðni er landsmönnum kunnur sem sagnfræðingur og stjórnmála- skýrandi en Elizu þekkja fáir enn sem komið er. Eliza er kanadísk og með BA-próf í alþjóðasamskiptum og meistaragráðu í nútímasagnfræði. Hún stofnaði sitt eigið fyrirtæki, Ice- land Writers Retreat, með það mark- mið að koma íslenskum bókmenntum um allan heim og mynda tengsl á milli íslenskra höfunda og erlendra. „Glöggt er gests augað. Það sem mér hefur alltaf fundist svo merkilegt við Ísland er að þetta er 330 þúsund manna þjóð sem hefur lengi haft ein mestu lífsgæði í heimi. Það er af því að fólk er tilbúið að taka þátt og gera allt sem þarf að gera. Mér hefur alltaf fundist svo gaman að hér er sami maður kannski lögfræðingur og graf- ískur hönnuður eða tónlistarmaður og lögga. Allir eru með marga hatta og geta skipt um svið þegar þeir vilja.“ Fordæmalausir tímar Framboð Guðna hefur ekki verið mjög lengi í burðarliðnum. Áskoranir á hann urðu sérstaklega áberandi í apríl þegar hann hélt uppi, ásamt öðrum, skýringum í rauntíma á stjórnmála- ástandi landsins í kringum Wintris- málið. Þegar Ólafur Ragnar Grímsson forseti ákvað að bjóða sig fram að nýju öllum að óvörum leit út fyrir að ekkert yrði af framboði Guðna. Hann sagði sjálfur að enginn hefði velt sitjandi forseta úr sessi. „Hins vegar hefur enginn forseti leitast eftir því að sitja á Bessastöðum í aldarfjórðung. Það hefur enginn for- seti boðið sig fram sex sinnum. Svo er það líka það að forsetaefni sem forsætis ráðherra styður hefur aldrei unnið. Úr þessum hatti staðreynd- anna velur maður bara þá sem hentar manni best,“ segir Guðni. „Það er ekki þannig að ég hafi lengi alið með mér þann draum að bjóða mig fram til forseta Íslands. Hins vegar þykist ég vita mikið um það hvað for- setar hafa vel gert og hvað hefur miður farið. Mér finnst að forseti eigi að vera málsvari og fulltrúi allra Íslendinga. Hann þarf að vera fastur fyrir þegar á þarf að halda, leita sátta og málamiðl- ana þegar svo ber undir. Hann verður að vera orðheldinn og fólk verður að geta trúað forsetanum. Forseti á ekki að vera málpípa ríkisstjórnarinnar en ekki heldur að setja sig á móti henni. Hann á að lýsa því á alþjóðavettvangi þegar þjóðin stendur saman en hann á líka að lýsa því þegar ágreiningur er uppi svo þeir sem koma hingað sem gestir viti að um sum mál er bullandi ágreiningur,“ segir Guðni. Á forsetinn þá að vera stjórnmálaskýr- andi? „Stjórnmálaskýrandi fyrir gesti og gangandi. Hann á að vera alþýð- legur og ekki setja sig á háan hest. For- seti á frekar að hlusta en að tala.“ Dró ástina upp úr dós Eliza og Guðni kynntust þegar þau voru bæði í námi við Oxford í Bret- landi árið 1998. Eliza segir að þegar hún flutti til landsins árið 2003 hafi ekki hvarflað að henni að þrettán árum síðar yrði hún í framboði til að verða forsetafrú Íslands. „En þegar ég flutti til Bretlands datt mér aldrei í hug að ég myndi flytja til Íslands. Ég er bara til í hvað sem er. Það er hluti af ævintýrinu,“ segir Eliza. Hvernig kynntust þið? „Við vorum bæði í róðrarliðinu,“ segir Guðni. Eliza segir að það hafi verið mikil- vægt að taka þátt í slíku í Oxford. „Róðrarliðið stóð fyrir fjáröflun þar sem strákarnir höfðu hver sína dós og stelpurnar keyptu miða með nafninu sínu á. Þær áttu svo að setja nafnið sitt í dós strákanna og freista þess að nafnið þeirra yrði dregið út. Þá áttu strákarnir að bjóða þeirri stelpu á stefnumót,“ segir Eliza. „Svolítið eins og blind-date,“ grípur Guðni inn í. „Já mér fannst Guðni svolítið skemmtilegur svo ég keypti tíu miða og setti átta í hans dós. Að setja alla tíu var kannski aðeins of mikið en ég vildi samt eiga séns. Og hann dró nafnið mitt,“ segir Eliza. Eliza var raunar dregin út tvisvar. Hinn heppni, sem fékk líka að bjóða henni á stefnumót, var Lane Greene sem nú er ritstjóri menningarhluta tímaritsins the Economist í Bandaríkj- unum. En eins og Guðni og Eliza lýsa varð ekki aftur snúið eftir stefnumótið. Í dag eiga þau fjögur börn saman, Duncan Tind, Donald Gunnar, Sæþór Peter og Eddu Margréti. Öll fædd með tveggja ára millibili á árunum 2007 til 2013. Auk þeirra á Guðni dótturina Rut út fyrra hjónabandi. „Hún verður 22 ára í sumar og er að ljúka námi í sál- fræði og ritlist. Dóttir mín er mikil hug- sjónamanneskja sem má ekkert aumt sjá,“ segir Guðni. Óháð á alþjóðavettvangi Á heimili Guðna og Elizu er íslenska og enska töluð jöfnum höndum. Börnin eru tvítyngd. Það er meðal annars þess vegna sem Guðni segist hvað síst kvíða því að tala máli Íslands á alþjóðavett- vangi fari svo að hann nái kjöri sem forseti. Hann muni ekki verða Íslend- ingum til skammar þegar kemur að því að bregða fyrir sig öðrum tungu- málum. „Ég bjó samtals á Englandi í átta ár. Svo get ég bjargað mér á skóladönsk- unni gömlu, vann eitt sumar í Noregi og þýsku lærði ég í skóla og þegar ég bjó veturlangt í Þýskalandi. Svo lærði ég rússnesku í eitt og hálft ár og get svona haldið uppi einföldum sam- ræðum á rússnesku.“ „Hann talar mjög góða dönsku. Og svo tala ég frönsku,“ skýtur Eliza að. „Já, ég lærði líka latínu í MR, en maður spjallar víst ekki á henni,“ bætir Guðni við. En þú segir rússnesku. Hvað finnst þér um samskipti forsetans við Rússland og Vladimír Pútín? „Samskipti Íslands og Rússlands hafa lengi verið náin og maður finnur á rússneskum ráða- mönnum að þeir vilja gjarnan eiga góð samskipti við Ísland. Þeim varð bylt við þegar Ísland tók þátt í efna- hagsþvingunum gagnvart Rússlandi og svöruðu í sömu mynt,“ segir Guðni. „Ég held að stjórnvöld hverju sinni marki utanríkisstefnu landsins, það sé ekki í verkahring forseta. En þú spurðir um Pútín og vissulega er það svo að við þurfum að umgangast valdhafa allra annarra ríkja af þeirri kurteisi og jafn- vel festu sem á þarf að halda. Og varast um leið að verða ekki nokkrum háðir.“ En það eru uppi óvissutímar í heim- inum. Það ríkir einhvers konar kalt stríð á milli Bandaríkjanna og Rúss- lands. Hvar á Ísland að standa þar? „Við eigum fyrst og fremst að hugsa um hag okkar hverju sinni. Við erum í varnarsamstarfi við önnur ríki á Vest- urlöndum í gegnum Nató. Ég sé ekkert sem ætti að skapa óvissu á þeim vett- vangi. Svo erum við í nánu samstarfi við ESB og ekki annað að sjá en að það sé í ágætis farvegi. Smáþjóð í hörðum heimi þarf að eiga vini en um leið þurf- um við að gera okkur grein fyrir því að stundum þarf að taka erfiðar ákvarð- anir og láta hagsmuni þjóðarinnar ganga framar. Þegar stundir koma að við þurfum að hugsa um þjóðarhag þurfum við að biðja okkar bandalags- þjóðir að sýna okkur skilning. Ef ekki, þá verður bara að hafa það.“ Aldrei meira en tólf ár Guðni er fræðimaður og líður best þegar hann hefur tíma til að sinna grúski og fræðimennsku. „Ég er kom- inn á þann stað í lífinu þar sem mér líður afskaplega vel. Af hverju ætti ég að breyta til? Öryggi vanans er mjög gott en svo koma áskoranir og þá verður maður að ákveða hvort maður tekur þeim eða lætur þær sigla fram hjá.“ Hann langar á Bessastaði en hyggst ekki sitja þar til eilífðarnóns. „Þið getið lesið það fyrst hér að ég verð ekki stundinni lengur á Bessastöðum en tólf ár, þrjú kjörtímabil, og jafnvel skemur.“ Eliza hefur ekki áhyggjur yfir að sér muni leiðast á meðan. „Mér finnst þetta mjög gott tækifæri til að varpa kastljósinu á mikilvæg mál eins og bókmenntirnar. Ég verð ekki hús- móðir sem er bara heima að þrífa, ekki að það sé ekki gott.“ Þau hjónin hafa rætt framboðið við krakkana. „Ég tala alltaf ensku við börnin og spurði Donna hvort hann héldi að pabbi gæti orðið góður for- seti. Hann sagði: „Nei“ en bætti svo við. „I think he would be terrific“ [ísl: Ég held hann væri frábær],“ segir Eliza. Guðni slær úr. „En það er ekkert gefið í þessum efnum. Við erum í framboði núna en við erum ekki að sigla sigri í örugga höfn. Við þurfum að sannfæra fólk um að ég sé traustsins verður.“ ÞEGAR ÉG FLUTTI TIL BRETLANDS DATT MÉR ALDREI Í HUG AÐ ÉG MYNDI FLYTJA TIL ÍSLANDS. ÉG ER BARA TIL Í HVAÐ SEM ER. ÞAÐ ER HLUTI AF ÆVINTÝRINU. Eliza Reid FORSETI Á EKKI AÐ VERA MÁLPÍPA RÍKISSTJÓRNAR- INNAR EN EKKI HELDUR AÐ SETJA SIG Á MÓTI HENNI. Guðni Th. Jóhannesson Í mesta lagi tólf ár á Bessastöðum Guðni Th. Jóhannesson og Eliza Reid tóku sameiginlega ákvörðun um framboð Guðna til forseta Íslands. Sjálf ætlar Eliza ekki að sitja auðum höndum fari svo að Guðni vinni komandi kosningar í júní. Guðni Th Jóhannesson og Eliza Reid tóku sameiginlega ákvörðun um framboð. Kannanir sýna mikið fylgi Guðna en sam- kvæmt könnun Fréttablaðsins frá fimmtudegi munar einungis sjö prósentum á Guðna og sitjandi forseta. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR 7 . M A Í 2 0 1 6 L A U G A R D A G U R34 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.