Fréttablaðið - 07.05.2016, Blaðsíða 36
Riyad Mahrez
25 ára miðjumaður
Gerði þetta fyrir pabba
Riyad Mahrez átti
erfiða æsku en
hann ólst upp
í Sarcelles-
hverfinu í
París sem er
þekkt fyrir
mikið ofbeldi
og var það
fyrir augum hans
alla daga. Faðir Mahrezar, Ahmed ,
hafði mikil áhrif á hann í æsku og
sendi hann í fótbolta til að passa að
hann færi ekki út af sporinu. Faðir
hans mætti á hvern einasta leik frá
því hann hóf að æfa með hverfis-
liðinu en féll frá þegar Mahrez var
fimmtán ára úr hjartaáfalli. Mahrez
hét því að komast alla leið og gera
það fyrir föður sinn. Hann sló í
gegn í frönsku 2. deildinni með Le
Havre og varð hluti að Leicester-
uppbyggingunni fyrir tveimur
árum. Hann fór úr því að skora
fjögur mörk í fyrra í það að
skora 17 mörk og gefa tíu
stoðsendingar í ár. Allt fyrir
gamla manninn sem gerði
allt fyrir hann.
Kasper Schmeichel
29 ára markvörður
Frá botninum á toppinn
Það er ekkert grín að bera nafn
eins og Schmeichel. Það getur þó
haft sína kosti eins og hjá Kasper
sem fékk samning hjá Manchester
City 15 ára og var kominn í markið
þar þremur
árum síðar.
Hann var
ekki til-
búinn og
hann vissi
það. Kasper
tók því
auðmjúka
ákvörðun
og fór á botninn til Notts County
í D-deildinni. Eftir eitt frábært
ár þar spilaði hann með Leeds í
B-deildinni og var kjörinn í besta
lið áratugarins 2005-2015 í henni.
Að fara niður og byggja sig upp var
frábær ákvörðun en hann er í dag
landsliðsmarkvörður Danmerkur,
fótboltamaður Danmerkur 2015,
einn besti markvörður ensku úr-
valsdeildarinnar og varð auðvitað
Englandsmeistari sama dag og
pabbi hans, 23 árum síðar.
Claudio Ranieri
65 ára þjálfari
Færeyja-
fíaskó,
svo titill
Flestum
finnst
auðvelt að
samgleðj-
ast Claudio
Ranieri enda mikill herramaður. Á
30 ára löngum þjálfaraferli hafði
hann aldrei áður unnið lands-
titil en gerði það svo á ólíklegasta
mátann. Maðurinn sem var rekinn
frá Chelsea með orðum eigand-
ans: „Hann mun aldrei vinna titla,“
mætir í lokaumferðinni aftur
á sinn gamla heimavöll og fær
heiðursvörð frá leikmönnum frá-
farandi meistaraliðsins. Ranieri var
úrskurðaður látinn í þjálfarafræð-
unum eftir að hann var rekinn frá
gríska landsliðinu. Þar tapaði hann
meðal annars fyrir Færeyingum
sem eru ekki þekktir fyrir að vinna
marga fótboltaleiki. Eina leiðin til
að svara fyrir sig er að vinna og
hvað þá enska meistaratitilinn
með Leicester.
Danny Drinkwater
26 ára miðjumaður
Ekki hætta að láta þig
dreyma
Danny
Drinkwater
gat leyft sér
að dreyma
um Eng-
landsmeist-
aratitilinn
þegar hann
var ungur
maður.
Hann var líka í unglingaliði og
varaliði Manchester United. Hann
fékk aldrei að spila með aðalliðinu
og eftir lánssamninga hjá fjórum
neðrideildarfélögum kvaddi hann
leikhús draumanna og samdi við
Leicester í B-deildinni. „Ég hætti að
leyfa mér að dreyma um meistara-
titilinn þegar ég fór frá Manchester
United. Og nú er ég meistari. Þetta
er sturlað,“ sagði Drinkwater í
vikunni. Fyrir fjórum árum gafst
hann upp á draumum sínum og
fór til Leicester. Fyrir tveimur árum
komst hann upp um deild og í
ár komst hann í landsliðið og er
enskur meistari. Aldrei að gefa frá
sér draumana.
Jamie Vardy
29 ára framherji
Í utandeild fyrir
fjórum árum
Framherjinn
Jamie Vardy,
sem er
markahæsti
leikmaður
nýkrýndra
Englands-
meistara,
Leicester,
spilaði með
Fleetwood í utandeildinni fyrir
fjórum árum. Nú er hann einn af
þremur markahæstu leikmönnum
úrvalsdeildarinnar, enskur meistari
og á leið á Evrópumótið með enska
landsliðinu. Vardy hefur alltaf verið
naskur markaskorari en glímdi
við að vera heitur og kaldur. Skora
mikið eitt tímabilið en lítið það
næsta. Leicester tók séns á honum
og það var kannski eins gott að
hann skoraði bara fimm mörk í
fyrra því nú eru þau orðin 22. Þeir
eru ekki margir sem fara úr utan-
deildinni í það að vinna þann stóra
á fjórum árum.
N’Golo Kante
25 ára miðjumaður
Leitinni að
Makélélé
lokið
Franski
varnar-
sinnaði
miðjumað-
urinn Claude
Makélélé var
svo góður í því sem hann gerði,
að hlutverk á vellinum var nefnt
eftir honum. En síðan hann hætti
hefur verið leitað að öðrum eins
leikmanni. Hann er fundinn. Hinn
25 ára gamli Frakki N’Golo Kante,
sem spilaði í frönsku utandeildinni
fyrir fimm árum, er sá maður. Það
skondna við það er að staðarblað-
ið í Boulogne-sur-Mer sagði í fyrir-
sögn þegar hann skoraði sitt fyrsta
mark árið 2012 að þarna væri nýr
Makélélé fundinn. Ekki það að
Makélélé hefði skorað svo mikið
af mörkum. Kaupin á Kante eru ein
af kaupum tímabilsins en upp-
risa hans er merkileg eins og hjá
öðrum hjá Leicester. Úr utandeild
í Frakklandi í Englandsmeistara og
EM-fara á þremur árum.
Klukkan hálf fimm á laugardaginn ganga leikmenn Leicester út á King Power-völl-inn og mæta Everton. Fyrir tímabilið hefðu
eflaust margir giskað á að þessi leikur
yrði mikilvægur fyrir liðið í fallbar-
áttunni. En svo er ekki. Leikmenn
Leicester ganga til leiks á laugar-
daginn sem enskir meistarar. Besta
liðið á Englandi.
Þetta ótrúlega afrek varð að veru-
leika á mánudagskvöldið þegar
Totten ham mistókst að vinna
Chelsea á Stamford Bridge. Leic-
ester er ekki bara meistari öllum
að óvörum heldur er það meistari
þegar tveir leikir eru enn þá eftir af
deildinni. Þetta er í fyrsta sinn sem
Leicester verður meistari. Sömu
liðin hafa meira og minna séð um að
vinna deildina undanfarna áratugi
en þetta er í fyrsta sinn síðan 1978
að lið verður meistari í fyrsta sinn.
Smásagnasafn
Tímabilið hjá Leicester hefur verið
eins og frábært smásagnasafn.
Margar litlar sögur sem verða að
einu mögnuðu ævintýri. Í liðinu er
engin stórstjarna heldur samansafn
af mönnum sem hafa sumir hverjir ef
ekki flestir þurft að fara Krýsuvíkur-
leiðina á toppinn. Sex smásögur
má lesa hér í kringum greinina um
helstu hetjur Leicester-liðsins
Ekkert lið vinnur ensku úrvals-
deildina með heppni. Claudio Rani-
eri, sem flestir töldu að myndi fara
niður með liðið ef hann myndi þá
endast veturinn, er búinn að mynda
ótrúlega liðsheild og sýna snilli
sína sem þjálfari. Fyrst, þegar liðin í
deildinni voru kannski enn að van-
meta Leicester, beitti liðið eitruðum
sendingum fram og treysti á hraða
framherja sinna til að klára dæmið.
En svo sýndi Ranieri enn meiri
klókindi þegar á leið tímabilið. Þá
fóru varnarmenn liðsins og mark-
vörðurinn að sýna snilli sína en liðið
hélt hreinu hvað eftir annað þegar
stjórar deilarinnar héldu að þeir
væru búnir að loka á sóknarvopnin.
Auðmjúkur öldungur
„Ekki vekja mig af þessum draumi,“
sagði Claudio Ranieri, stjóri Leic-
ester, fyrr á þessu ári, spurður hvort
hann teldi að Leicester gæti klárað
þetta. Þessi 64 ára gamli Ítali af gamla
skólanum er búinn að heilla enska
fótboltaáhugamenn með auðmýkt
sinni og herramennsku.
Hann hefur líka gert hlutina nokk-
uð einfalda. Þegar Leicester hélt loks-
ins hreinu fyrr á tímabilinu eftir að fá
á sig mark í hverjum leik, gerði hann
eins og þjálfari í fimmta flokki myndi
gera og bauð liðinu í pitsu partí. Það
skiptir nefnilega engu máli hvað
þú ert gamall: Öllum finnst pitsur
góðar. Með gleði, dugnað, vilja og
eina rjúkandi pitsusneið að vopni
bjó Ranieri til lið sem afrekaði það
sem enginn hélt að væri hægt: Vinna
ensku deildina án þess að vera með
vasana fulla af seðlum.
Gerist þetta aftur? Nei, líklega ekki.
Meira að segja Ranieri er búinn að
útiloka það. Hann sagði við frétta-
menn á æfingu á þriðjudaginn að
svona afrek myndi enginn sjá aftur.
Kannski er það rétt hjá honum.
Í fótboltaheiminum í dag eru
peningar allt og þótt litlu liðin á Eng-
landi séu að verða mun ríkari verða
þau ríkustu alltaf ríkari. Þó þessi Eng-
landsmeistaratitill gefi litlu liðunum
von og sé líklega besta fótboltasaga
síðustu áratuga verður hún að öllum
líkindum spark í afturendann á stóru
strákunum sem leyfa þessu ekki að
gerast aftur. En guð minn góður hvað
það var gaman meðan á stóð.
Margar litlar
sögur að einu
stóru ævintýri
Eitt ótrúlegasta fótboltaafrek sögunnar varð að veruleika á mánu-
dagskvöldið þegar Leicester varð enskur meistari. Í fótboltaheimi
þar sem peningar eru allt var það litla liðið sem gaf öðrum von.
Fyrirliðinn Wes Morgan skoraði markið sem á endanum tryggði Leicester Englandsmeistaratitilinn. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Tómas Þór
Þórðarson
tomas@frettabladid.is
EKKI VEKJA MIG AF
ÞESSUM DRAUMI
7 . M A Í 2 0 1 6 L A U G A R D A G U R36 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð