Fréttablaðið - 07.05.2016, Qupperneq 38
Útgefandi
365 miðlar ehf. | Skaftahlíð 24 | s. 512 5000 | fax 512 5301
UmSjónarmaðUr aUglýSinga
Jóhann Waage| johannwaage@365.is | s. 512-5439
ÁbyrgðarmaðUr
Svanur Valgeirsson
Veffang
visir.is
Ferðirnar hafa fengið nafn
ið „Bali Hai“ með skírskotun til
söngsins fræga úr kvikmyndinni
South Pacific. Örnólfur Árnason
dvaldi á Balí í vetur og seg
ist hvergi hafa verið þar
sem gestkomandi
fólk hefur orðið
jafn heillað af
landi og þjóð og
á Balí og hefur
hann þó víða
komið, enda
einn reynd
ast i farar
stjóri landsins.
„Eitt sinn
þegar við vorum
að sleikja sólina
í friðsælum hót
elgarðinum í miðjum
unaðs bænum Úbúd laust
þeirri hugmynd í hausinn á mér
ofan úr heiðum himninum að ef
nokkur staður væri tilvalinn fyrir
þá sem vilja flýja skammdegið og
vetrarkuldann á Íslandi hlyti það
að vera þessi paradís. Þarna er
hitinn rétt rúmlega 30 gráður alla
daga ársins og bæði nauðsynjar
og allar helstu unaðssemdir sem
freista okkar Vesturlandabúa eru
á boðstólum fyrir helmingi lægra
verð en heima,“ segir Örnólfur
inntur eftir því hvernig ferðirn
ar komu til.
Farnar verða tvær ferðir næsta
vetur. Frá 18. október og fram í
miðjan desember og janúar fram
í mars. Hver dvöl mun að sögn
Örnólfs skiptast í tvennt. „Við
dveljum tæpar sex vikur í
Úbúd, menningarhöfuð
stað Balí, og svo 18
daga í strandbæn
um Sanúr. Þótt
höfuð áherslan
sé á að njóta
lífsins í mak
indum verð
ur heilmargt
á dagskrá. Ég
fer með fólkið í skoðunarferðir
um eyna og alls kyns heimsóknir
til að kynnast mannlífinu á Balí
en Helga leiðir qi gong og jóga
þrjá morgna í viku. Þá verðum við
með fræðslu og skemmtidagskrá
síðdegis þrisvar í viku. Eins verða
farnar gönguferðir um Úbúd og
nágrenni og farið í heimsóknir á
listasöfn og alls kyns forvitnilega
staði,“ upplýsir Örnólfur.
Hann segir langdvalarpró
grammið fyrst og fremst hugs
að fyrir þá sem annaðhvort eru
hættir að vinna eða hafa tekið sér
frí frá störfum „Úbúd er einhver
heppilegasti staður til langdvalar
sem ég hef komið á því þar er svo
margt hægt að hafa fyrir stafni.
Örstutt er frá hótelinu okkar við
Apaskógarstræti að konungshöll
inni og markaðnum. Á leiðinni
eru svo tugir góðra veitingahúsa,
verslana og listgallería.“
En hvað hefur Balí fram yfir
aðrar eyjar? „Ég hef komið til
margra frábærra eyja. Má þar
nefna Mallorca, Ibiza, Kúbu,
Tene rife, Lanzarote, La Palma og
Gran Canaria og allar hafa þær
margt til síns ágætis. Engin er þó
að mínum dómi eins vel til þess
fallin fyrir Íslendinga að njóta
lífsins að vetrarlagi og Balí.“
Að sögn Örnólfs hefur Balí yfir
sér meiri töfraljóma en flestir ef
ekki allir áfangastaðir vestrænna
ferðamanna nú á tímum. „Það er
ekki að ástæðulausu. Þar er fá
dæma stórbrotin náttúrufegurð.
Upp úr eynni norðanverðri tróna
tindar margra hárra eldfjalla og
suðurhlíðarnar eru ristar giljum
og skógi vöxnum gljúfrum með
ám sem renna í fossum og flúðum.
Þá úir þarna og grúir af ævaforn
um hindúahofum sem eru enn í
fullri notkun.“ Örnólfur telur ljúft
viðmót og yndisþokka íbúa þó
heilla fólk hvað mest. „Þar liggur
held ég helsta ástæðan fyrir því
hvað margir líkja Balí við para
dís.“
En er þetta ekki svolítið langt
að fara? „Jú, því er ekki að neita
en á móti koma þau þægindi að
hægt er að skrá farangurinn alla
leið frá Keflavík til Balí og þá er
sérlega gott að ferðast með Thai
Air. Flestir ná því að sofna og hvíl
ast svolítið. Á bakaleiðinni er svo
boðið upp á tveggja daga stopp í
Bangkok sem styttir heimflugið.“
Hvergi séð fólk jafn heillað
Íslendingar eru í auknum mæli farnir að renna hýru auga til eyjunnar Balí í Indónesíu og leggja æ fleiri leið sína hálfa leið yfir hnöttinn til að
njóta þar lífsins lystisemda. Í vetur mun ferðaskrifstofan Farvel í fyrsta skipti bjóða upp á tveggja mánaða vetrardvöl á eynni í samstarfi við
hjónin Örnólf Árnason og Helgu E. Jónsdóttur. Að sögn Örnólfs hefur eyjan yfir sér meiri töfraljóma en flestir aðrir áfangastaðir.
Örnólfur segir balí
tilvalinn stað fyrir
Íslendinga sem eru
hættir að vinna að njóta
lífsins að vetrarlagi.
Ég hef hvergi verið þar sem gestkomandi
fólk hefur orðið jafn heillað af landi og þjóð
og á balí.
Örnólfur Árnason
• Tilbúið til matreiðslu eftir 3-4 mínútur
• Afkastamikið og öflugt
• Innbyggð vifta sem tryggir kolum súrefni
• Tvöfaldur veggur - kemur í veg fyrir að ytra byrði hitni
• Mjög góð hitastýring á kolum
• Hægt að færa grillið til eftir þörfum meðan það er í notkun
• Fitan lekur ekki á kolin
• Auðvelt að þrífa - hægt að taka alveg í sundur
• Má fara í uppþvottavél
• Taska fylgir með
SJÓÐHEITUR FÉLAGI
Smágert grill - tilvalið í ferðalagið eða á svalirnar
KOLAGRILL
TILBÚIÐ Á
3
MÍNÚTUM
Verð frá kr. 34.000,- m/vsk
Til í dökkgráu...…
...og fleiri
fallegum litum
Veit á vandaða lausn
Verið velkomin í verslun okkar að Síðumúla 16
Opið mán - fös 8:30 - 17:00
Síðumúli 16 • 108 Reykjavík • Sími 580 3900 • www.fastus.is
Það úir og grúir af ævafornum hindúahofum á balí sem enn eru í fullri notkun.
ferðir Kynningarblað
7. maí 20162