Fréttablaðið - 07.05.2016, Síða 41
fólk
kynningarblað
Mér líður pínulítið
eins og ég hafi
tekið pásu frá lífinu.
Sverrir Þór Sverrisson
7 . m a í 2 0 1 6 L a U G a R D a G U R
Það hefur ekki borið mikið á
Sveppa undanfarið. Hann er horf-
inn úr sviðsljósinu í bili. „Mér
finnst ágætt að hvíla mig aðeins á
sviðsljósinu. Hér þekkir mig eng-
inn,“ segir hann. Konu hans var
boðið að stunda doktorsnám sitt í
eitt ár við Santa Barb ara háskól-
ann og þau ákváðu að slá til og
flytja með fjölskylduna til Banda-
ríkjanna. „Okkur fannst þetta
mjög spennandi. Reyndar var
heilmikið mál að útvega vísa fyrir
alla fjölskylduna, finna skóla fyrir
börnin og pakka niður. Við verðum
hingað fram í miðjan ágúst en satt
að segja hefðum við alveg verið
til í að vera lengur. Fjölskyldan er
mjög ánægð hér. Sjálfum finnst
mér þetta alveg dásamlegt. Alltaf
gott veður,“ segir Sveppi en hann
hefur ekki séð sápuóperuna Santa
Barbara og hafði aldrei komið á
þessar slóðir áður.
Skrifar handrit
Þegar Sveppi er spurður hvort
hann hafi nýtt tímann og farið í
nám sjálfur, svarar hann því neit-
andi. „Ég nenni ekki í eitthvert
leiklistar nám og nám hefur aldrei
hentað mér sérstaklega vel. Ég
nýti tímann til að skrifa. Ég hef
verið að skrifa handrit að sjón-
varpsþætti fyrir Stöð 2 með fé-
lögum mínum, Audda og Steinda.
Einnig hef ég verið að vinna að
teiknimyndaseríu um Sveppa,
Villa og Góa ásamt Braga Þór Hin-
rikssyni sem leikstýrði Sveppa-
myndunum. Slíkir þættir eru langt
ferli en við höfum verið mjög dug-
legir að skrifa og undirbúa þætt-
ina,“ segir Sveppi og bætir við:
„Mér líður nú svolítið eins og ég
sé búinn að vera í löngu og góðu
sumar fríi og það er æðislegt.“
Grillað á Ströndinni
Sveppi segir að Santa Barbara sé
frábær bær. „Ég vissi ekkert um
þennan bæ og hann hefur komið
mér mikið á óvart. Hér er yndis-
legt að vera og íbúarnir einstak-
lega ljúfir og kurteisir. Ef það er
eitthvað sem hefur komið mér
rækilega á óvart er það hversu
Kaninn er yndis legur. Það er
virkilega skemmtilegt að búa hér.
Maður var með fyrirfram mót-
aðar hugmyndir um Ameríku en
þær hafa breyst. Það er dásamleg
Sveppi í hvíld frá SviðSljóSinu
Sverrir Þór Sverrisson, Sveppi, og kona hans, Íris Ösp Bergþórsdóttir, rifu sig upp með þrjú börn sl. sumar og fluttu til
Santa Barbara í Kaliforníu. Þar ætla þau að vera í eitt ár þar sem Íris stundar rannsóknir í doktorsnámi sínu í sálfræði.
Sveppi og fjölskylda alsæl í Santa Barbara. Sumarsæla á hverjum degi og oft hægt að fara á ströndina til að grilla. MYND/BRAGI HINRIKSSON
lífsreynsla að prófa að búa í öðru
landi. Við erum til dæmis stutt frá
ströndinni og þangað förum við oft
og grillum sem er mjög skemmti-
legt.“
Gaman að ferðaSt
Sveppi á þrjú börn, Arnald Flóka,
4 ára, Bergþór Inga, 9 ára og Þór-
dísi Kötlu, 12 ára. „Börnin kunnu
ekki eitt orð í ensku þegar við
komum hingað og við horfðum
grátandi á eftir þeim í skólann.
Nú eru þau öll orðin fljúgandi fær
í málinu og mjög ánægð hérna.
Það er gaman að fylgjast með
þeim hér. Við höfum ferðast vítt
og breitt um Kaliforníu. Fórum
til San Francisco, Las Vegas og
víðar. Við eigum kunningja í
Los Angeles og höfum heimsótt
þá. Auk þess höfum við farið í
sveitirnar hér í kring en þar eru
til dæmis margir litlir vínakr-
ar og hægt að fara í vínsmakk
hjá bændunum,“ segir Sveppi.
„Maður getur farið í svona „si-
deways“ ferð með börnin,“ segir
hann og hlær.
páSa frá lífinu
„Ég á eftir að sakna veðursins
hér þegar við snúum heim aftur,“
segir hann. „Núna er ég svona au
pair hjá sjálfum mér. Mér finnst
gaman að vera heima, elda góðan
mat og mér finnst enn skemmti-
legt að fara í Costco, Target og
þessar búðir. Það er svo mikið
úrval hér. Svo er miklu hag-
stæðara að versla hér heldur en
heima. Mörg góð veitingahús eru
hér í kring, sum með mexíkósku
ívafi. Við höfum borðað dálítið
af fajitas og quesadillas. Krakk-
arnir eru í skóla í göngufæri við
heimilið okkar. Þau hafa eign-
ast góða vini. Ef maður ætlar að
flytja til Ameríku þá er eitt ár
lágmark,“ segir Sveppi, reynsl-
unni ríkari og bætir við: „Mér
líður pínulítið eins og ég hafi
tekið pásu frá lífinu.“
elin@365.is
NÝTT
LÍFRÆNT OFURFÆÐI
Fæst í apótekum, heilsubúðum og heilsuhillum verslana.
„Ég hef minnkað
lyfin við sykursýki II
um helming eftir að
ég byrjaði að taka
inn rauðrófuhylkin.“
Jóhannes S. Ólafsson
útgerðarmaður
og skipstjóri
Lífrænt
rauðrófuduft
í hylkjum