Fréttablaðið - 07.05.2016, Qupperneq 42
Ég sá hins vegar
fljótt að þar er
markaðurinn miklu stærri,
samkeppnin er auðvitað
harðari en mér fannst
tækifærin og möguleik-
arnir fleiri.
Katrín Ýr Óskarsdóttir
Katrín Ýr Óskarsdóttir söngkona
segir að það sé mikil áskorun að
flytja lög jafn frábærrar söng
konu og Adele. Katrín flytur lög
söngkonunnar á heiðurstónleik
um Adele á Rosenberg í kvöld. Á
tónleikunum verða lögin flutt í
„unplugged“ stíl en með Katrínu
í kvöld verða þeir Helgi Reynir
Jónsson á gítar og Ólafur Ágúst
Haraldsson á píanó. „Við ætlum
að flytja lög af öllum þrem
ur plötum Adele, þeim 19, 21 og
25, auk annarra laga frá tónleik
um og öðrum flutningi hennar,“
segir Katrín. „Ég hef svo gaman
af lögunum hennar en ég vinn
við að syngja og syng því lögin
hennar reglulega. Mig langaði að
flytja önnur lög en hennar allra
vinsælustu, þessi rólegri lög sem
eru yfirleitt ekki tekin á böllum.
Ég bjó mér því bara til afsökun
til að geta flutt þau á tónleikum.
Mér finnst líka gaman að Adele
sem persónu, hún tekur sjálfa sig
ekki of alvarlega og ég geri það
ekki heldur,“ segir hún og hlær.
Ílengdist Í london
Katrín hefur búið í London
undan farin tíu ár og starfar þar
sem söngkona. Hún syngur mikið
við hina ýmsu viðburði eins og
fyrirtækjapartí, afmæli og brúð
kaup auk þess að kenna söng. „Ég
fór út til að læra söng og fór í The
Institute of Contemporary Music
Performance. Upphaflega fór ég
í eins árs nám en þegar ég klár
aði það ákvað ég að halda áfram
og fór í þriggja ára nám og nældi
mér í gráðu, Bachelor of Music.
Þegar því var lokið var mér boðið
að kenna við skólann sem ég þáði.
Þannig að ég ílengdist í London
og hef haft nóg að gera þar við
að spila og syngja með alls konar
fólki.“
Þrátt fyrir að hafa nóg að gera
úti langar Katrínu að geta spilað
meira hér heima. „Ég vildi helst
geta verið í fleiri verkefnum hér
og það lítur út fyrir að það sé að
aukast. Ég gaf út lag í nóvember
og var með tónleika þá. Svo var
ég að gefa út þriggja laga smá
skífu í vikunni sem verður til sölu
á tónleikunum í kvöld og verður
vonandi aðgengileg á tonlist.is
og iTunes í næstu viku,“ útskýr
ir hún.
Lögin á plötunni eru mjög ólík
og segir Katrín létt í bragði, að
þar sé athyglisbresturinn mögu
lega að segja til sín. „Þegar ég
sem tónlist reyni ég markvisst
að hafa ekki allt eins. Eitt lagið á
plötunni er róleg ballaða, annað
meira popp með sumarfíling en
svo er síðasta lagið alveg í hina
áttina, bara ég og píanó og smá
strengir. Í því lagi fór ég út fyrir
þægindarammann en ég geri lítið
af því að semja svoleiðis tónlist,
er meira í svona „heart break“
eða „förum að djamma“ lögum.“
samdi fyrir rappara
Katrín fór fyrst að semja tón
list fyrir um tíu árum og nefnir
hlæjandi að hún hafi byrjað á því
að semja viðlög fyrir rappara.
„Þegar ég byrjaði í skólanum var
lagasmíði eitt af fögunum sem ég
þurfti að taka. Mér fannst það
mikil pressa að þurfa að semja
lög en kennararnir hjálpuðu
mér að sjá að ég gæti samið tón
list. Síðan hef ég verið beðin um
að semja fyrir aðra, fyrir bæði
stærri og minni listamenn sem
stundum nota lögin mín en stund
um ekki. Ég hef verið heppin og
unnið með mörgu ólíku fólki.“
Tækifærin fyrir söngvara eru
mörg í London að sögn Katrín
ar. Hún hefur sungið alla ævi en
segist ekki hafa séð að söngurinn
gæti orðið hennar aðalatvinna
fyrr en hún flutti til stórborgar
innar. „Þegar ég flutti til London
fór ég út með engar væntingar
og vissi ekki við hverju ég ætti
að búast. Ég sá hins vegar fljótt
að þar er markaðurinn miklu
stærri, samkeppnin er auð vitað
harðari en mér fannst tæki
færin og möguleikarnir fleiri,“
segir Katrín sem hyggst gefa
út heila plötu fljótlega. „Ég geri
lítið annað en að vinna í tónlist.
Ég er að semja meira efni úti og
hef aðeins verið að kíkja í stúd
íó. Draumurinn er svo að vinna
meira heima og jafnvel að kom
ast inn á Airwaves, klára plötu
og vinna með fleira fólki.“
Þeir sem vilja sjá meira af Katrínu
Ýri geta fundið hana á helstu sam-
félagsmiðlum undir nafninu Intro-
ducing Kat.
lÍfið snýst bara um tónlist
Katrín Ýr hefur búið í London í áratug og starfar þar sem söngkona auk þess að kenna söng. Í vikunni kom út þriggja
laga smáskífa frá henni en lögin á plötunni samdi hún sjálf. Í kvöld heldur hún Adele-heiðurstónleika á Rosenberg.
Katrín Ýr heldur tónleika á Rosenberg í kvöld þar sem hún syngur lög Adele. Með
henni verður gítarleikarinn Helgi Reynir Jónsson og Ólafur Ágúst Haraldsson sem
leikur á píanó. MYND/STEFÁN
Levi ś Kringlunni – Levi ś Smáralind – Levi ś Glerártorgi
* Skv. verðskrá levi.com og gengistöflu Íslandsbanka 4.05.16
TAPERED
frá kr. 14.990
Rúmar að ofan
Þrengjast niður
Létt teygja
Verð í Danmörku frá kr. 16.983*
Verð í Bretlandi frá kr. 14.172*
520
Menningarhúsin í Kópavogi
hafa skipst á að standa fyrir
fjölskyldustundum á laugar
dögum í vetur. Í dag er komið
að Náttúrufræði stofunni og er
ætlunin að beina sjónum að far
fuglunum, hinum afar marg
breytilegu vorboðum. Klukkan
13.15 verður haldið stutt erindi
um fuglana í Safnahússkórnum
að Hamraborg 6a en síðan verð
ur farið niður í Kópavog þar sem
gestum gefst kostur á að skoða
fuglana. Gera má ráð fyrir að
mæting þar sé um kl. 14.00. Sjón
aukar verða á staðnum sem gest
ir geta fengið að nota en einnig er
gott að koma með eigin græjur,
sjónauka og fuglabækur. Starfs
menn Náttúrufræðistofu verða
við voginn til kl. 16.00, neðan við
Kópavogshælið.
Fjölskyldustund
við Fuglaskoðun
í kópavogi
Fuglaskoðunin fer fram fyrir neðan Kópavogshælið klukkan 14.
7 . m a í 2 0 1 6 L a U G a R D a G U R2 F ó L k ∙ k y n n i n G a R b L a ð ∙ X X X X X X X XF ó L k ∙ k y n i n G a R b L a ð ∙ h e L G i n