Fréttablaðið - 07.05.2016, Síða 46
Hallgerður langbrók, Gunnlaugur
ormstunga, Víga-Glúmur, Harald-
ur hárfagri, Njáll, Gunnar, Leif-
ur heppni og fjöldi annarra vel
þekktra persóna úr Íslendingasög-
unum koma saman í leiksýning-
unni Icelandic Sagas: The Greatest
Hits. Sýningin er á ensku og stíluð
á erlenda ferðamenn þó Íslending-
ar geti haft alveg jafn gaman af.
„Hugmyndin vaknaði þegar
ég var að vinna sem leiðsögu-
maður í Þríhnúkagígum á sumr-
in. Nánast daglega var ég spurð
hvað væri hægt að gera í Reykja-
vík annað en að fara út að borða
og detta í það. Mér fannst ósköp
lítið af föstum liðum sem ég gæti
bent á,“ segir leikkonan Lilja Nótt
sem gekk lengi með það í magan-
um að vinna með Íslendingasög-
urnar. „Ég er alin upp við þessar
sögur og raunar algert nörd. Ég
vann síðan með Ólafi Egilssyni í
Gerplu og vissi því að þar
ætti ég nördafélaga,“
segir Lilja Nótt.
Þau settu saman
hugmyndina að
sýningunni,
fengu Jóhann
G. Jóhanns-
son leikara
með sér í lið
og hafa unnið
að verkefninu
síðan í nóvem-
ber.
„Við byrjuð-
um á því að lesa
allar sögurnar en við
skiptum þeim á milli okkar.
Við fundum strax að sumar eru
mjög góðar og aðrar síðri. Því var
ákveðið að nokkrar fengju gott
pláss en aðrar ekki nema eina til
tvær setningar,“ segir Lilja Nótt.
Njála fær þannig langstærsta
plássið en Egla, Laxdæla
og fleiri fá góða um-
fjöllun. „Fyrsta
handritið okkar
var 114 blaðsíð-
ur sem hefði
verið efni í sjö
tíma sýningu.
Við höfum því
skorið mikið
niður og fórnað
mörgum gull-
molum,“ segir
Lilja Nótt glettin og bætir við að
kannski verði í framtíðinni boðið
upp á svokallað „directors cut“.
Lilja Nótt og Jóhann sjá um að
leika öll hlutverkin en Ólafur er
leikstjóri. Þórunn Sveinsdóttir
sá um búninga og leikmynd. „Við
erum í afar fallegum víkingaföt-
um en vippum á okkur skikkjum
og hárkollum eftir því sem við á.“
Sýningin fer fram í Norður-
ljósasal Hörpu. „Við höfðum
samband við Hörpu til að athuga
hvort áhugi væri fyrir svona sýn-
ingu og var afar vel tekið enda er
fremur lítið um að vera í húsinu á
sumrin,“ segir Lilja Nótt og telur
líklegt að töluverð eftirspurn sé
eftir sýningu á borð við þessa um
þessar mundir.
Salurinn verður settur upp í
baðstofustíl þannig að sviðið er
í rennu á miðjunni og áhorfend-
ur sitja báðum megin við það.
„Við leikum þannig í 360 gráður,“
segir Lilja Nótt en mikil áhersla
er lögð á háð og grín í sýning-
unni. „Við drögum bæði okkur
og sögurnar sundur og saman í
háði og kynnum þær í leiðinni.“
Frumsýning verksins var á
miðvikudaginn var en sýningar
eru áætlaðar fram að áramótum
hið minnsta. „Við hugsum þetta
sem langtímaverkefni enda er
það góða við að vera með sýn-
ingu fyrir ferðamenn að maður
er alltaf með nýja áhorfendur,“
segir hún glaðlega og bendir
áhugasömum á upplýsingar um
sýninguna á Facebook og vefn-
um harpa.is.
ÍSLENDINGASÖGURNAR Á 75 MÍNÚTUM
Icelandic Sagas: The Greatest Hits in 75 Minutes er glæný sýning sem frumsýnd var í Hörpu í vikunni. Þar segja þau
Lilja Nótt Þórarinsdóttir og Jóhann G. Jóhannsson allar fjörutíu Íslendingasögurnar á 75 mínútum.
Lilja Nótt og Jóhann leika öll hlutverkin.
Sýningarnar eru áætlaðar fram að áramótum hið minnsta. MYND/VILHELM
Njála fær langstærsta
plássið en Egla, Laxdæla og
fleiri fá góða umfjöllun.
Pantaðu á www.curvy.is eða
kíktu við í verslun okkar að Fákafeni 9
Opið Alla virka daga frá kl. 11-18
og Laugardaga frá kl. 11-16
NÝ SENDING MEÐ FALLEGUM KJÓLUM
Fákafeni 9, 108 RVK
Sími 581-1552 | www.curvy.is
SKOÐAÐU ÚRVALIÐ EÐA PANTAÐU Á WWW.CURVY.IS
Afgreiðslutímar í verslun okkar að Fákafeni 9
Alla virka daga frá kl.11-18
Laugardaga frá kl. 11-16
7 . M A Í 2 0 1 6 L A U G A R D A G U R6 F Ó L K ∙ K Y N N I N G A R B L A Ð ∙ X X X X X X X XF Ó L K ∙ K Y N I N G A R B L A Ð ∙ H E L G I N