Fréttablaðið - 07.05.2016, Qupperneq 52
| ATVINNA | 7. maí 2016 LAUGARDAGUR6
Skóla- og frístundasvið
Kennarastöður við Árbæjarskóla
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum
og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Lausar eru eftirtaldar kennarastöður skólaárið 2016 – 2017
• Stærðfræðikennari í 5. – 10. bekk /
Umsjónarkennari á miðstigi
• Íþróttakennari
• Tónmenntakennari
Umsóknarfrestur er til 17. maí 2016.
Sótt er um ofangreind störf á vef Reykjavíkurborgar, reykjavik.is,
undir „Laus störf“.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Þorsteinn Sæberg, skólastjóri,
í síma 4117700 og tölvupósti thorsteinn.saeberg@reykjavik.is
Árbæjarskóli er einn stærsti grunnskóli landsins, staðsettur í
einstöku umhverfi Elliðaárdalsins. Árbæjarskóli er grunnskóli fyrir
nemendur í 1.-10. bekk og eru nemendur um 630 talsins. Skólinn
er safnskóli á unglingastigi, en til náms í 8. bekk koma saman
nemendur þriggja skóla, Árbæjarskóla, Ártúnsskóla og Selásskóla.
Starfsmenn skólans eru um 90 sem sinna mismunandi stöfum í þágu
nemenda.
Nánari upplýsingar á rsk.is
442 1000
Þjónustuver 9:30-15:30rsk@rsk.is
Hæfnikröfur
● Fáguð framkoma, jákvæðni, þjónustulund og lipurð í mannlegum samskiptum.
● Frumkvæði og metnaður til að sýna árangur í starfi.
● Öguð og skipulögð vinnubrögð ásamt hæfileika til að vinna undir álagi.
● Góð íslensku- og enskukunnátta. Önnur tungumálakunnátta kostur.
● Stúdentspróf eða sambærileg menntun.
● Góð almenn tölvukunnátta.
Reynsla af sambærilegum störfum er kostur, en ekki skilyrði.
Frekari upplýsingar um störfin veitir Inga Hanna Guðmundsdóttir starfsmannastjóri RSK
í síma 442 1151. Umsókn skal fylla út á vefslóðinni rsk.is/starf og skal ferilskrá einnig fylgja með
í viðhengi til að umsókn teljist fullnægjandi.
Umsóknarfrestur er til og með 22. maí 2016. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem
fyrst. Umsækjendum sem uppfylla hæfnikröfur og senda fullnægjandi gögn með umsókn verður
boðið að kynna sig í 5 mínútur fyrir starfsmannastjóra og hópstjóra eftir að umsóknarfrestur er
liðinn. Mun framkoma og frammistaða í þeirri kynningu auk innsendra gagna verða ráðandi um
hverjir verða boðaðir í hefðbundin atvinnuviðtöl.
Umsóknir gilda í 6 mánuði. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun hefur verið tekin
um ráðningu. Laun taka mið af kjarasamningi ríkisins við SFR.
Ríkisskattstjóri annast álagningu opinberra gjalda og annarra skatta, skatteftirlit og heldur lögbundnar skrár. Að auki er
embættinu falið að sinna ýmsum sérverkefnum til lengri eða skemmri tíma, nú síðast leiðréttingu á höfuðstól verðtryggðra
húsnæðislána og ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á húsnæðislán.
Meginstefna RSK í mannauðsmálum byggir á gagnkvæmu trausti, tillitssemi og virðingu á milli stofnunar og
starfsmanna og starfsmanna sín í milli og unnið er eftir gildunum: Fagmennska - Jákvæðni - Samvinna.
Hefur þú ríka þjónustulund?
Störf í afgreiðslu á Laugavegi 166
Nú er tækifæri fyrir öfluga og jákvæða einstaklinga að ganga til liðs við ríkisskattstjóra því störf
í afgreiðslu á Laugavegi 166 eru laus til umsóknar. Helstu verkefni eru móttaka viðskiptavina,
upplýsingamiðlun, móttaka og afhending gagna og leiðbeiningar um ýmis skattamál, fyrirtækja-
og ársreikningaskrá.
Meiraprófsbílstjóri
óskast í sumarstarf
AÐFÖNG óska eftir meiraprófsbílstjóra í sumarstarf.
Viðkomandi þarf að hafa próf á vörubifreið með eftirvagn.
Unnið er á vöktum við útkeyrslu á vörum í verslanir Haga.
Sækja skal um starfið á www.adfong.is
Óskað er eftir að ferilskrá fylgi umsókn.
Verzlunarskóli Íslands óskar að ráða í
eftirfarandi störf fyrir næsta skólaár.
• Enskukennari
• Spænskukennari
• Stærðfræðikennari
• Eðlisfræðikennari
Hæfniskröfur:
• Háskólapróf í viðkomandi greinum.
• Reynsla af kennslu á framhaldsskólastigi æskileg.
• Hæfni í mannlegum samskiptum.
Við bjóðum:
• Góða vinnuaðstöðu.
• Góðan starfsanda á framsæknum vinnustað.
Nánari upplýsingar gefur Þorkell Diego yfirkennari,
thorkell@verslo.is eða í síma 5 900 600.
Umsóknarfrestur er til 10. maí og skal senda umsóknir
ásamt ferilskrá til Verzlunarskóla Íslands, Ofanleiti 1,
103 Reykjavík eða á netfangið thorkell@verslo.is.
Verzlunarskóli Íslands er framhaldsskóli með um 1250 nemendur.
Skólinn er bekkjarskóli en nemendur ljúka prófum í viðkomandi
námsáfanga um jól og vor. Nemendur geta valið á milli fjögurra
mismunandi brauta og útskrifast með stúdentspróf af öllum brautum.
Einnig býður Verzlunarskólinn upp á fjarnám. Verzlunarskólinn er mjög
tæknivæddur og er aðstaða til náms og kennslu öll hin besta.
Ef þú ert með rétta starfið
— erum við með réttu
manneskjuna
www.capacent.is
Ráðgjafar okkar búa
yfir víðtækri þekkingu
á atvinnulífinu
og veita trausta og
persónu lega ráðgjöf.