Fréttablaðið - 07.05.2016, Side 56

Fréttablaðið - 07.05.2016, Side 56
Starfsmaður í mötuneyti Við leitum að stundvísum, samviskusömum og þjónustulunduðum starfsmanni í 75% starf í mötuneyti okkar. Unnið er alla virka daga frá kl. 07:00 – 13:00. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst og um framtíðarstarf er að ræða. Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi Eflingar og fjármálaráð- herra auk stofnanasamnings milli Eflingar og Reykjalundar. Umsóknarfrestur er til 22. maí 2016 Nánari upplýsingar gefur Guðbjörg Gunnarsdóttir, mannauðsstjóri í síma 585 2143 gudbjorg@reykjalundur.is Reykjalundur, endurhæfingarmiðstöð SÍBS. Sími 585 2000 – www.reykjalundur.is Iðjuþjálfun svi sstjóri iðj þjálfa á taug - og hæfingarsviði Laus er til umsóknar afleysingarstaða sviðsstjóra á tauga- og hæfingarsviði. Um er að ræða 95% stöðu. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1.nóvember 2012 eða samkvæmt nánara sam omulagi. Sviðsstjóri ber ábyrgð á skipulagi, þróun og framkvæmd iðjuþjálfunar á sviðinu. Á Reykjalundi er unnið í þverfaglegri teymisvinnu þar sem áhersla er lögð á skjólstæðingsmiðaða nálgun og heildræna sýn. Krafist er frumkvæðis, sjálfstæðis í vinnubrögðum, skipu- lagshæfileika og góðrar hæfni í mannlegum samskiptum. Þetta er kjörið tækifæri fyrir iðjuþjálfa að starfa með hæfu og metnaðarfullu fólki sem vinnur saman í öflugri teymisvinnu að því að auka færni og lífsgæði einstaklinga með skerðingu vegna taugasjúkdóma og fötlunar. Hæfnikröfur: Próf í iðjuþjálfun frá skóla viðurkenndum af Heimssamtökum iðjuþjálfa (WFOT) og með íslenskt starfsleyfi og löggildingu. Æskilegt er að sviðsstjóri hafi að lágmarki þriggja ára starfsreynslu. Launakjör samkvæmt kjarasamningi Iðjuþjálfafélags Íslands og fjármálaráðherra auk stofnanasamnings Iðjuþjálfafélags Íslands og Reykjalundar. Nánari upplýsingar um starfið veitir Sigríður Jónsdóttir aðstoðarforstöðuiðjuþjálfi í síma 585-2154, netfang; siggaj@reykjalundur.is Umsóknarfrestur er til 5.október 2012 Umsóknareyðublað og upplýsingar um Reykjalund má finna á heimasíðunni www.reykjalundur.is Reykjalundur, endurhæfingarmiðstöð SÍBS. Sími 585 2000 – www.reykjalundur.is Krambúð opnum snemma - lokum seintSta fsfólk óskast í fullt starf og hlutastörf Krambúðin Skólavörðustíg 42 leitar eftir duglegu og metnaðarfullu starfsfólki í fullt starf og hlutastörf um kvöld og helgar. Í boði eru bæði sumar- og framtíðarstörf Um er að ræða almenn verslunarstörf, afgreiðslu og áfyllingar. Áhugasamir sendi inn umsókn á skolavordustigur@krambud.is. Frekari upplýsingar veitir verslunarstjóri í s. 775 6010 eða á staðnum virka daga frá 8.00 – 16.00. KERFISFRÆÐINGUR Á UPPLÝSINGATÆKNI- DEILD REYKJAVÍK Starf kerfisfræðings í rekstrarþjónustu á upplýsingatæknideild Vegagerðarinnar er laust til umsóknar. Um 100% starf er að ræða. Starfssvið Starfið felst í notendaþjónustu og viðveru á þjónustuborði ásamt fjölbreyttum verkefnum tengdum rekstri upplýsingakerfa Vega- gerðarinnar. Um er að ræða umsjón með útstöðvum og netþjón- um, uppsetningar og viðhald á þeim auk vinnu við öryggis- og aðgangsstýringar, ásamt öðrum verkefnum er tengjast starfinu. Vinnutími er 8-16 eða 9-17, viku í senn. Menntunar- og hæfniskröfur • Menntun sem nýtist í starfi • A.m.k. 3 ára reynsla af rekstri upplýsingakerfa • Góð íslensku- og enskukunnátta • Þekking og reynsla af Microsoft stýrikerfum og hugbúnaði • Þekking og reynsla af Linux (Red Hat, Centos) stýrikerfum er kostur • Þekking og reynsla af netsamskiptum er kostur • Þekking á Microsoft Exchange er kostur • Frumkvæði, sjálfstæði og ögun í vinnubrögðum • Góðir samstarfshæfileikar og rík þjónustulund Vegagerðin er eftirsóknarverður vinnustaður sem hentar jafnt báðum kynjum og í samræmi við jafnréttisáætlun Vegagerðarinnar eru konur með umbeðnar hæfniskröfur sérstaklega hvattar til að sækja um starfið. Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi ríkisins og SFR. Umsóknarfrestur er til 23. maí 2016 . Umsóknir berist mannauðsstjóra netfang oth@vegagerdin.is Í umsókninni komi fram persónulegar upplýsingar ásamt upplýsing- um um þá menntun og hæfni sem óskað er eftir, þar með talin menntunar- og starfsferilsskrá. Æskilegt er að starfsmaður geti hafið störf sem fyrst. Nánari upplýsingar um störfin veitir Íris Leósdóttir í síma 5221000. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Háskólinn í Reykjavík | Menntavegi 1 | 101 Reykjavík | Sími 599 6200 | www.hr.is Starfssvið • Rekstur og ábyrgð á starfsemi ISE. • Þróun og uppbygging námsbrauta og annarrar starfsemi. • Markaðssetning á alþjóðavettvangi. • Uppbygging alþjóðlegs samstarfs. • Samvinna við sérfræðinga á sviði orkumála. Hæfniskröfur • Meistara- eða doktorsgráða á fagsviði sem tengist orku- eða umhverfismálum. • Þekking á orku- og umhverfismálum. • Reynsla af alþjóðlegum vettvangi. • Reynsla af erlendri markaðssókn. • Leiðtoga- og samskiptahæfni ásamt reynslu af stjórnun og rekstri. • Framúrskarandi vald á ensku í ræðu og riti. Framkvæmdastjóri Iceland School of Energy við Háskólann í Reykjavík Iceland School of Energy (ISE) auglýsir eftir framkvæmdastjóra. ISE er í eigu Háskólans í Reykjavík (HR), Orkuveitu Reykjavíkur (OR) og Íslenskra orkurannsókna (ISOR) og starfar innan HR. Námsbrautir ISE eru tvær, sjálfbær orkuverkfræði og sjálfbær orkuvísindi, auk styttri námsleiða. Yfir 90% af nemendum ISE koma erlendis frá. Í boði er spennandi starf í metnaðarfullu og lifandi háskólaumhverfi á vaxandi og alþjóðlegu sviði orku- og umhverfismála. Nánari upplýsingar um starfið veita Guðrún Arnbjörg Sævarsdóttir (gudrunsa@ru.is), forseti tækni- og verkfræðideildar, og Sigríður Elín Guðlaugsdóttir, framkvæmdastjóri mannauðs (sigridureg@ru.is). Umsóknarfrestur er til og með 1. júni næstkomandi og skal umsóknum skilað á vef Háskólans í Reykjavík, radningar.hr.is. Farið er með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál. Hlutverk Háskólans í Reykjavík er að skapa og miðla þekkingu til að auka samkeppnishæfni og lífsgæði fyrir einstaklinga og samfélag með siðgæði, sjálfbærni og ábyrgð að leiðarljósi. Akademískar deildir háskólans eru fjórar: lagadeild, tölvunarfræðideild, tækni- og verkfræðideild og viðskiptadeild. Kennsla og rannsóknir við Háskólann í Reykjavík mótast af sterkum tengslum við atvinnulíf og samfélag. Lögð er áhersla á þverfagleika, alþjóðlegt umhverfi, nýsköpun og góða þjónustu. Nemendur Háskólans í Reykjavík eru um 3800 í fjórum deildum og fastir starfsmenn eru um 250 auk fjölda stundakennara. Launasérfræðingur Vodafone Við tengjum þig Ertu talnaglöggur einstaklingur sem veist allt um laun og kjaramál? Þá gæti starf launasérfræðings hjá Vodafone verið frábært tækifæri fyrir þig. Við leitum að öflugum sérfræðingi sem hefur brennandi áhuga á launavinnslu, kjaramálum og vill veita starfsfólki framúrskarandi þjónustu . Viðkomandi starfsmaður verður öflugur liðsmaður í starfsmannaþjónustu fyrirtækisins og því mikilvægt að viðkomandi geti hafið störf sem allra fyrst. Allar nánari upplýsingar um starf og hæfniskröfur er að finna á vodafone.is/storf. Umsóknarfrestur er til og með 15. maí 2016.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.