Fréttablaðið - 07.05.2016, Síða 56
Starfsmaður í mötuneyti
Við leitum að stundvísum, samviskusömum og þjónustulunduðum
starfsmanni í 75% starf í mötuneyti okkar. Unnið er alla virka daga
frá kl. 07:00 – 13:00. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst
og um framtíðarstarf er að ræða.
Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi Eflingar og fjármálaráð-
herra auk stofnanasamnings milli Eflingar og Reykjalundar.
Umsóknarfrestur er til 22. maí 2016
Nánari upplýsingar gefur Guðbjörg Gunnarsdóttir, mannauðsstjóri
í síma 585 2143 gudbjorg@reykjalundur.is
Reykjalundur, endurhæfingarmiðstöð SÍBS.
Sími 585 2000 – www.reykjalundur.is
Iðjuþjálfun
svi sstjóri iðj þjálfa á
taug - og hæfingarsviði
Laus er til umsóknar afleysingarstaða sviðsstjóra á tauga-
og hæfingarsviði. Um er að ræða 95% stöðu.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1.nóvember 2012
eða samkvæmt nánara sam omulagi. Sviðsstjóri ber ábyrgð á
skipulagi, þróun og framkvæmd iðjuþjálfunar á sviðinu.
Á Reykjalundi er unnið í þverfaglegri teymisvinnu þar sem
áhersla er lögð á skjólstæðingsmiðaða nálgun og heildræna
sýn. Krafist er frumkvæðis, sjálfstæðis í vinnubrögðum, skipu-
lagshæfileika og góðrar hæfni í mannlegum samskiptum.
Þetta er kjörið tækifæri fyrir iðjuþjálfa að starfa með hæfu og
metnaðarfullu fólki sem vinnur saman í öflugri teymisvinnu að
því að auka færni og lífsgæði einstaklinga með skerðingu vegna
taugasjúkdóma og fötlunar.
Hæfnikröfur: Próf í iðjuþjálfun frá skóla viðurkenndum af
Heimssamtökum iðjuþjálfa (WFOT) og með íslenskt starfsleyfi
og löggildingu. Æskilegt er að sviðsstjóri hafi að lágmarki
þriggja ára starfsreynslu.
Launakjör samkvæmt kjarasamningi Iðjuþjálfafélags Íslands og
fjármálaráðherra auk stofnanasamnings Iðjuþjálfafélags Íslands
og Reykjalundar.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Sigríður Jónsdóttir
aðstoðarforstöðuiðjuþjálfi í síma 585-2154,
netfang; siggaj@reykjalundur.is
Umsóknarfrestur er til 5.október 2012
Umsóknareyðublað og upplýsingar um Reykjalund má finna á
heimasíðunni www.reykjalundur.is
Reykjalundur, endurhæfingarmiðstöð SÍBS. Sími 585 2000 –
www.reykjalundur.is
Krambúð
opnum snemma - lokum seintSta fsfólk óskast í fullt
starf og hlutastörf
Krambúðin Skólavörðustíg 42 leitar eftir duglegu
og metnaðarfullu starfsfólki í fullt starf og
hlutastörf um kvöld og helgar.
Í boði eru bæði sumar- og framtíðarstörf
Um er að ræða almenn verslunarstörf,
afgreiðslu og áfyllingar.
Áhugasamir sendi inn umsókn á
skolavordustigur@krambud.is.
Frekari upplýsingar veitir verslunarstjóri í s. 775 6010
eða á staðnum virka daga frá 8.00 – 16.00.
KERFISFRÆÐINGUR Á
UPPLÝSINGATÆKNI-
DEILD REYKJAVÍK
Starf kerfisfræðings í rekstrarþjónustu á upplýsingatæknideild
Vegagerðarinnar er laust til umsóknar.
Um 100% starf er að ræða.
Starfssvið
Starfið felst í notendaþjónustu og viðveru á þjónustuborði ásamt
fjölbreyttum verkefnum tengdum rekstri upplýsingakerfa Vega-
gerðarinnar. Um er að ræða umsjón með útstöðvum og netþjón-
um, uppsetningar og viðhald á þeim auk vinnu við öryggis- og
aðgangsstýringar, ásamt öðrum verkefnum er tengjast starfinu.
Vinnutími er 8-16 eða 9-17, viku í senn.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Menntun sem nýtist í starfi
• A.m.k. 3 ára reynsla af rekstri upplýsingakerfa
• Góð íslensku- og enskukunnátta
• Þekking og reynsla af Microsoft stýrikerfum og hugbúnaði
• Þekking og reynsla af Linux (Red Hat, Centos) stýrikerfum er
kostur
• Þekking og reynsla af netsamskiptum er kostur
• Þekking á Microsoft Exchange er kostur
• Frumkvæði, sjálfstæði og ögun í vinnubrögðum
• Góðir samstarfshæfileikar og rík þjónustulund
Vegagerðin er eftirsóknarverður vinnustaður sem hentar jafnt
báðum kynjum og í samræmi við jafnréttisáætlun Vegagerðarinnar
eru konur með umbeðnar hæfniskröfur sérstaklega hvattar til að
sækja um starfið.
Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi ríkisins og SFR.
Umsóknarfrestur er til 23. maí 2016 .
Umsóknir berist mannauðsstjóra netfang oth@vegagerdin.is
Í umsókninni komi fram persónulegar upplýsingar ásamt upplýsing-
um um þá menntun og hæfni sem óskað er eftir, þar með talin
menntunar- og starfsferilsskrá.
Æskilegt er að starfsmaður geti hafið störf sem fyrst.
Nánari upplýsingar um störfin veitir Íris Leósdóttir í síma 5221000.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur
verið tekin.
Háskólinn í Reykjavík | Menntavegi 1 | 101 Reykjavík | Sími 599 6200 | www.hr.is
Starfssvið
• Rekstur og ábyrgð á starfsemi ISE.
• Þróun og uppbygging námsbrauta og annarrar
starfsemi.
• Markaðssetning á alþjóðavettvangi.
• Uppbygging alþjóðlegs samstarfs.
• Samvinna við sérfræðinga á sviði orkumála.
Hæfniskröfur
• Meistara- eða doktorsgráða á fagsviði sem tengist
orku- eða umhverfismálum.
• Þekking á orku- og umhverfismálum.
• Reynsla af alþjóðlegum vettvangi.
• Reynsla af erlendri markaðssókn.
• Leiðtoga- og samskiptahæfni ásamt reynslu af stjórnun
og rekstri.
• Framúrskarandi vald á ensku í ræðu og riti.
Framkvæmdastjóri Iceland School of Energy
við Háskólann í Reykjavík
Iceland School of Energy (ISE) auglýsir eftir framkvæmdastjóra. ISE er í eigu Háskólans í Reykjavík (HR), Orkuveitu
Reykjavíkur (OR) og Íslenskra orkurannsókna (ISOR) og starfar innan HR. Námsbrautir ISE eru tvær, sjálfbær
orkuverkfræði og sjálfbær orkuvísindi, auk styttri námsleiða. Yfir 90% af nemendum ISE koma erlendis frá.
Í boði er spennandi starf í metnaðarfullu og lifandi háskólaumhverfi á vaxandi og alþjóðlegu sviði orku- og umhverfismála.
Nánari upplýsingar um starfið veita Guðrún Arnbjörg Sævarsdóttir (gudrunsa@ru.is), forseti tækni- og verkfræðideildar,
og Sigríður Elín Guðlaugsdóttir, framkvæmdastjóri mannauðs (sigridureg@ru.is). Umsóknarfrestur er til og með 1. júni
næstkomandi og skal umsóknum skilað á vef Háskólans í Reykjavík, radningar.hr.is.
Farið er með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál.
Hlutverk Háskólans í Reykjavík er að skapa og miðla þekkingu til að auka samkeppnishæfni og lífsgæði fyrir einstaklinga og samfélag með
siðgæði, sjálfbærni og ábyrgð að leiðarljósi. Akademískar deildir háskólans eru fjórar: lagadeild, tölvunarfræðideild, tækni- og verkfræðideild
og viðskiptadeild. Kennsla og rannsóknir við Háskólann í Reykjavík mótast af sterkum tengslum við atvinnulíf og samfélag. Lögð er áhersla á
þverfagleika, alþjóðlegt umhverfi, nýsköpun og góða þjónustu. Nemendur Háskólans í Reykjavík eru um 3800 í fjórum deildum og fastir starfsmenn
eru um 250 auk fjölda stundakennara.
Launasérfræðingur
Vodafone
Við tengjum þig
Ertu talnaglöggur einstaklingur sem veist allt um laun og
kjaramál? Þá gæti starf launasérfræðings hjá Vodafone
verið frábært tækifæri fyrir þig. Við leitum að öflugum
sérfræðingi sem hefur brennandi áhuga á launavinnslu,
kjaramálum og vill veita starfsfólki framúrskarandi
þjónustu . Viðkomandi starfsmaður verður öflugur
liðsmaður í starfsmannaþjónustu fyrirtækisins og því
mikilvægt að viðkomandi geti hafið störf sem allra fyrst.
Allar nánari upplýsingar um starf og hæfniskröfur
er að finna á vodafone.is/storf.
Umsóknarfrestur er til og með 15. maí 2016.