Fréttablaðið - 07.05.2016, Qupperneq 76
nú orðin skærrauð og merkt í bak og
fyrir,“ segir María.
HVERSDAGUR Í LÍFI HEIMILIS-
LAUSRAR KONU
Á markaðinum verður einnig hægt
að skoða ljósmyndir sem konurnar
sem gista Konukot hafa sjálfar
tekið. María segir ljósmyndasýning-
una gefa innsýn inn í hversdagslegt
líf heimilislausra kvenna í Reykja-
vík. Fjöldi kvennanna sem nýta sér
Konukot hafi komið hópnum á óvart.
„Það eru miklu fleiri konur heim-
ilislausar en fólk almennt gerir sér
grein fyrir. Níutíu og fimm konur
nýttu sér þjónustu Konukots í fyrra.
Það má þó segja að það sé jákvætt
að þær nýti Konukot frekar en ekki.
Við vildum gefa þessum konum
rödd. Þær sem vildu taka þátt fengu
einnota myndavél og póstkort til að
skrifa skilaboð á, ljóð eða annan
texta. Myndefninu réðu þær sjálfar
og verða myndirnar til sýnis á flóa-
markaðnum,“ útskýrir María og
segir samstarfið við Konukot hafa
gengið vel.
„Þau sem sinna sjálfboðastarf-
inu hérna hafa verið okkur ótrúlega
hjálpleg og það hefur verið ánægju-
legt að sjá hvernig starfsemi Konu-
kots gengur fyrir sig.“
Vorfagnaður í tilefni enduropnun-
ar flóamarkaðarins verður haldinn í
dag milli klukkan 12 og 16 í Eskihlíð 4.
Boðið verður upp á grillveitingar og
allir eru velkomnir.
Við vildum gefa
þessum konum
rödd. Þær sem vildu taka
þátt fengu einnota
myndavél og póstkort til
að skrifa skilaboð á.
María Nielsen
„Samvinnan við Konukot kemur
til í þverfaglegum kúrsi við skól-
ann þar sem vinna á samfélagsleg
verkefni. Við skiptum okkur upp í
smærri hópa og eitt verkefnanna
var að koma Flóamarkaði Konukots
á framfæri en það vita alls ekki allir
að Konukot heldur úti flóamarkaði
alla laugardaga,“ segir María Niel-
sen, nemandi í fatahönnun LHÍ.
„Við hjálpuðum til við að taka
markaðinn í gegn og að kynna hann
betur. Nokkrir í hópnum smíðuðu
mátunarklefa og öllum varningi
var raðað upp. Við létum einnig
skera út merkingar til að skilgreina
betur hvað er hvar, dömufatnað-
ur, herrafatnaður og svo framveg-
is. Þá máluðum við einnig hurðina
í sterkum lit. Fólk áttaði sig ekki
endilega á því hvar ætti að ganga
inn og vegna eðli starfseminnar í
Konukoti fannst fólki kannski að
það væri að fara inn á svæði sem
ekki væri ætlast til að gengið væri
um. Hurðin inn í flóamarkaðinn er
FLÓAMARKAÐUR OG
SÝNING Í KONUKOTI
Vorfagnaður verður haldinn í dag í Konukoti í Eskihlíð. Tilefnið er
enduropnun Flóamarkaðs Konukots en nemendur úr Hönnunar- og
arkitektúrdeild LHÍ hafa unnið að því að endurgera markaðinn.
Eitt verkefnanna var að auðkenna innganginn að flóamarkaðinum. MYND/MARÍA NIELSEN
Hópurinn endurskipulagði markaðinn og raðaði varningi.
Hekla Finnsdóttir heldur út-
skriftartónleika í Salnum í Kópa-
vogi sunnudaginn 8. maí klukk-
an 17.
Hekla er 21 árs og hefur stund-
að fiðlunám frá fjögurra ára
aldri, fyrst í Allegro Suzuki-
tónlistarskólanum og síðar við
Tónlistarskólann í Reykjavík
hjá Guðnýju Guðmundsdóttur.
Í vetur hefur hún verið við nám
við Listaháskóla Íslands hjá bæði
Guðnýju og Sigrúnu Eðvaldsdótt-
ur. Hún útskrifast með diplóma-
gráðu úr LHÍ í vor.
Hekla hefur sótt mörg nám-
skeið m.a. í Slóveníu, Póllandi, Ís-
landi, Englandi og Noregi. Einn-
ig hefur hún tekið þátt í Orkester
Norden og Ungsveit Sinfóníu-
hljómsveitar Íslands.
Á útskriftartónleikum sínum
leikur Hekla kafla úr Partitu no.
2 í D-moll eftir Johannes Sebasti-
an Bach, Rómönsu í F-dúr op. 50
eftir Ludwig van Beethoven, dú-
etta eftir Hildigunni Rúnarsdóttur
og fiðlusónötu í A-dúr eftir César
Franck sem er ein vinsælasta són-
ata fyrir fiðlu og píanó og er reglu-
lega á dagskrá um allan heim.
Aðrir flytjendur á tónleikunum
eru Guðný Guðmundsdóttir fiðlu-
leikari og Richard Simm píanó-
leikari.
Aðgangur er ókeypis og öllum
opinn.
ÚTSKRIFTARTÓNLEIKAR
Hekla Finnsdóttir heldur útskriftartónleika í Salnum í Kópavogi á sunnudaginn.
BÆJARLIND 16 KÓPAVOGUR SÍMI 553 7100 WWW.LINAN.IS
OPIÐ MÁNUDAGA TIL FÖSTUDAGA 11 - 18 LAUGARD. 11 - 16
SVEFNSÓFAR
góðir að nóttu sem degi...
-15%
RECAST kr. 129.900 / TILBOĐSVERĐ kr. 110.415
UNFURL kr. 109.900 / TILBOĐSVERĐ kr. 93.415ZEAL kr. 79.900 / TILBOĐSVERĐ kr. 67.915UNFURL kr. 109.900 / TILBOĐSVERĐ kr. 93.415
7 . M A Í 2 0 1 6 L A U G A R D A G U R8 F Ó L K ∙ K Y N N I N G A R B L A Ð ∙ X X X X X X X XF Ó L K ∙ K Y N I N G A R B L A Ð ∙ H E L G I N