Fréttablaðið - 07.05.2016, Síða 84

Fréttablaðið - 07.05.2016, Síða 84
Hvað þú ert með í ferðatösk- unni getur sagt heilmikið um hver þú ert. Ný rannsókn sem gerð var af Low Cost Holiday sýnir að sumir hlutir sem fólk getur ekki verið án í fríinu tengjast því hvað- an það kemur. Það er ekki bara sólarvörn og bikiní sem er nauð- synlegt að taka með sér. Miklu frekar er það eitthvað sem við borðum reglulega heima hjá okkur. Könnunin var gerð meðal 7.500 farþega frá 30 löndum. Þeir voru spurðir um venjur á ferðalögum. Englendingar taka með sér tepoka í ferðalagið. Finnar vilja ekki vera án saltlakkríss og Svíar fara ekk- ert nema taka snúsið með. Í ferða- töskum Þjóðverja er hins vegar ekki að finna pylsur heldur Ha- ribo sælgæti. Danir taka með sér lifrar kæfu til annarra landa, jafn- vel rúgbrauð líka. Svisslendingar taka ekki mat með sér heldur svissneskan vasa- hníf og þótt kínversk veitingahús séu um allan heim þá taka Kín- verjar núðlur með sér til annarra landa. Bandaríkjamenn taka sal- ernispappír með sér og Nýsjá- lendingar tómatsósu. Kanada- menn fara ekkert án þess að hafa „clamato“ sem er einhvers konar kryddaður tómatdjús. Íslendingar voru ekki með í þessari könnun en vitað er að margir hafa þeir farið með saltfisk eða annan íslenskan mat með sér til Spánar. HVAÐ ER Í FERÐATÖSKUNNI? Vorið og sumarið eru tími fjöl­ breyttra matarhátíða í Evrópu og fjörið byrjar strax í maí. Um helgina fer stærsta matarvagnahá­ tíð heims fram í Brussel í Belgíu. Á hátíðinni, sem heitir Brussels Food Truck Festival, munu rúm­ lega 120 matarvagnar bjóða upp á fjölbreyttan mat frá öllum heims­ hornum. Eat Cambridge hefur verið hald­ in árlega í Cambridge í Englandi síðan 2013. Hátíðin stendur yfir í tvær vikur og hefst í dag. Þar er lögð áhersla á að kynna fjölbreytt matvæli úr héraðinu og áhersla lögð á smærri framleiðendur. Dagana 12. til 16. maí verður matarhátíðin The Weekend of the Rolling Kitchens haldin í Amster­ dam í Hollandi. Þar safnast saman tugir matarvagna í Westergas­ fabriek, sem er gömul gasverk­ smiðja sem í dag er nýtt undir ýmsa viðburði. Áhersla er lögð á fjölbreyttan mat frá ólíkum lönd­ um álfunnar og gott verð, enda er hátíðin jafnan vel sótt meðal heimamanna og ferðalanga. Matarhátíðin Leeds Indie Food tekur Leeds­borg í Englandi yfir dagana 12. til 30. maí en þetta er annað árið í röð sem hátíðin er haldin. Dagskrá hátíðarinnar er mjög fjölbreytt og fer fram á veit­ ingahúsum og torgum borgarinn­ ar auk þess sem fjölmargir matar­ tengdir fyrirlestrar og viðburðir fara fram víða um borgina. Matarhátíðir fram undan Stærsta sýning sem haldin hefur verið á verkum graffítilista­ mannsins Banksys verður opnuð í Róm á Ítalíu síðar í mánuðinum. Listasafnið Fondazione Roma Arte­Mus ei, sem er í miðri borg­ inni, verður heimili 150 teikn­ inga listamannsins frá 24. maí til 9. september og verða þær hluti af nýrri sýningu sem kallast Stríð, markaðshyggja og frelsi. Verk Banksys munu hanga á meðal verka annarra götulista­ manna á sýningunni og hafa þau öll verið staðfest sem frumein­ tök. Verkin hafa verið lánuð safn­ inu frá einkasöfnurum víða um heim. Sýningin er sögð kosta um eina milljón evra eða rúmlega 140 milljónir íslenskra króna. Verk Banskys, sem eru yfir­ leitt háðsk ádeila á samfélagið, hafa komið fram á veggjum, götum og brúm borga um allan heim. Kvikmyndastjörnur og kóngafólk hafa falast eftir verkum hans en aldrei hefur því verið ljóstrað upp hver listamaðurinn er. Banksy í Róm Sidewinder árg. 2017 www.yamaha.is Arctic Trucks Kletthálsi 3 110 Reykjavík Sími 540 4900 NÝR byltingarkenndur vélsleði frá Yamaha: Turbo frá verksmiðju! • 2 ára ábyrgð • 180 hestöfl sem skila sér strax! • Fáanlegur í sex mismunandi útfærslum. • Fox fjöðrun • Camoplast® belti Verðlistaverð frá kr. 3.090.000,- 250.000 FORKAUPSTILBOÐ til 25. maí* króna afsláttur frá verðlista TURBO EXPLORE WITHOUT LIMITS ®EXPLORE WITHOUT LIMITS ® *Sleðar seldir á forkaupstilboði afhendast haustið 2016 FERÐIR Kynningarblað 7. maí 20168
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.