Fréttablaðið - 07.05.2016, Page 100
Það er bjart yfir
Þeirri tónlist, enda
verkið samið til dýrðar
guði.
Bækur
Aukaverkanir
HHHHH
Ólafur Haukur Símonarson
Sögur útgáfa
Kápa og umbrot: Guðjón Ingi
Hauksson
187 blaðsíður
Prentun: Prentsmiðjan Oddi
Njáll er 48 ára heimilislæknir sem
er orðinn leiður á öllu. Hann er van-
máttugur gagnvart sjúklingunum
sínum og getur hvorki sinnt þeim
sem skyldi né sýnt þeim áhuga,
börnin hans á unglingsaldri eru
ókunnugt fólk sem
hann sér stundum
á matmálstímum,
ko n a n h a n s e r
önnum kafinn lista-
maður sem hefur
mun meiri ástríðu
fyrir starfi sínu en
hjónabandi þeirra
og aldraðir for-
eldrar hans eru
uppteknir af eigin
lífi og uppgjörum.
H a n n g e g n i r
skyldum sínum
við allt þetta fólk
en ekki mikið
meira og finnur
t ó m l e i k a n n
aukast dag frá
degi. Njáll er
að mörgu leyti
d æ m i g e r ð
s t a ð a l my n d
af íslenskum
k a r l m a n n i
á m i ð j u m
aldri (en hugarástandi
þeirra og vandamálum hafa verið
gerð nokkuð góð skil undanfarið,
bæði í kvikmyndum og bókum) sem
vaknar upp einn góðan veðurdag í
lífi sem hann valdi sér eða valdist á
hann og finnur ekki neitt í því sem
ætti að færa honum gleði. Breyt-
ingar sem hann hefur hvorki vald
yfir né vilja til að takast á við hrista
upp í kyrrstöðunni, fyrr en varir er
hann kominn inn í atburðarás sem
hann ræður ekkert við og við sjáum
hvernig líf hans hefur í raun verið
að liðast sundur í mörg ár, hvernig
atburðir úr bernsku sem aldrei
er talað um hafa áhrif alla ævi og
hvernig aukaverkanirnar af því að
vera manneskja með öllum þeim til-
finningum og átökum sem því fylgja
hafa áhrif og afleiðingar, þrátt fyrir
allt sem fólk gerir til að reyna að
sleppa því að horfast í augu við þær.
Þetta er saga af Íslandi í dag,
venjulegu fólki sem á við venjuleg
vandamál að etja. Fólkið er kannski
stundum of venjulegt, nálgast það
að vera staðalmyndir og má þar
nefna konu Njáls, leikhússkáldið
Hildi, og drykkfellda æskuvininn
Jolla. Sálfræðingurinn sem kemur
eins og frelsandi engill inn í líf Njáls
er eiginlega frekar ógnvekjandi
þegar upp er staðið og fer svo langt
út yfir starfssvið sitt að það hlýtur
að vera í andstöðu við einhverjar
reglur um slík samskipti en það
má líka líta á samband þeirra sem
myndhverfingu um það kraftaverk
sem getur gerst í lífi þess sem leitar
sér aðstoðar í vanlíðan sinni frekar
en að láta bugast.
Því þessi
b ó k e r
h v a t n i n g
t i l f ó l k s
til að leita
sér hjálpar
frekar en að
fá hjartaáfall
eða fyrirfara
s é r þ e g a r
h e i m u r -
inn virðist
vera orðinn
ó m ö g u l e g u r
staður og öll
sund lokuð.
Bókin fjallar
líka um nauð-
synlegar og oft
sársaukafullar
breytingar, þegar
eitthvað hefur
liðið undir lok
en þrjóskast við
að halda áfram
í óþökk allra og
hvað það er nauð-
synlegt stundum að sleppa takinu,
leyfa lífinu að fara sína leið og sjá
hvaða gjafir það hefur í för með sér.
Ólafur Haukur Símonarson er
landsþekktur höfundur leikrita,
ljóða og skáldverka og kann flestum
betur að skrifa skemmtilegan texta
sem rennur áreynslulaust eins og
vatn inn í lesandann. Þessi bók er
hin ágætasta afþreying og efnistök-
in vekja til umhugsunar um hvað
það er að vera manneskja og hvað
það er sem fólk raunverulega þarf
þegar öllu er á botninn hvolft.
Brynhildur Björnsdóttir
NiðurStAðA: Ljúflæsileg saga um
það að vera manneskja, með
öllum aukaverkununum sem það
hefur í för með sér.
Aukaverkanir af tilverunni
GRÓFMAL AÐ K AFF I
F YR IR PRESSUKÖNNUNA
GÓ ÐAR STUNDIR GER AST HÆGT
NÝTT Merrild
pressukönnukaffi
Sérstaklega malað fyrir pressukönnur en
hentar einnig fyrir uppáhellingu.
Ljúffengt kaffi úr 100% lífrænum Arabica kaffibaunum.
Baunirnar eru ræktaðar á sjálfbæran hátt á mið- og
suður-amerísku hálendi. Þær eru meðalbrenndar og gefa
ljúfan og jafnan keim.
Það er dálítið sérstakt að smala kórum saman til að halda stórtón-leika, við höfum ekki verið mikið í því en það er skemmtilegt.
Þetta gæti verið liður í samstarfi
sókna, ég held að hún Arnhildur
Valgarðsdóttir, organisti í Fella- og
Hólakirkju, hafi átt frumkvæði að
því. Hún kom líka með Óperukór
Mosfellsbæjar inn í þetta, Julian
Hewlett stjórnar honum, og fjórði
kórinn er Vox populi, sem Hilmar
Örn Agnarsson stjórnar,“ segir
Hákon Leifsson, stjórnandi kórs
Grafarvogskirkju. Hann lýkur
lofsorði á söngkonur tvær sem sjá
um einsönginn á tónleikunum,
Kristínu R. Sigurðardóttur og Sig-
ríði Ósk Kristjánsdóttur. „Kristín er
með afar fallega rödd og hefur allt í
þetta og sama er að segja um Sigríði
Ósk, hún er alveg dásamleg.“
Það eru þrjú verk sem kórarnir
flytja og Hákon segir þau öll mjög
áheyrileg. „Kórverkin eru gerólík
en mynda fallega heild,“ segir hann
og lýsir þeim nánar. „Eitt þeirra er
sálumessa eftir breska tónskáldið
John Rutter, hann er svona hluti af
elítunni í Bretlandi og samdi þessa
sálumessu árið 1985. Hún er undur-
fögur enda hefur hún heillað áheyr-
endur hvarvetna. Hún er söngvæn
og líka mjög aðgengileg fyrir fólk að
hlusta á ef það kann að meta klass-
íska tónlist á annað borð.“
Annað glæsiverk tónlistarsögunn-
ar sem kórarnir flytja er hin fræga
Gloria eftir Antonio Vivaldi sem var
samin á barokktímanum snemma á
átjándu öld. „Það er bjart yfir þeirri
tónlist, enda verkið samið til dýrðar
guði,“ segir Hákon og nefnir þriðja
verkið: „Það er Amore Mio eftir
Julian M. Hewlett kórstjórnanda,
sönglagaflokkur á ítölsku í fjórum
þáttum, fluttur af Kristínu R. Sigurð-
ardóttur og sönghópnum Boudoir.“
Hákon tekur fram að félagar úr
Sinfóníuhljómsveit Íslands leiki
undir ásamt Arnhildi og konsert-
meistari sé Auður Hafsteinsdóttir.
Tónleikarnir hefjast klukkan 16 í
dag og miðaverð er 3.500 krónur.
gun@frettabladid.is
Gerólík verk en
mynda fallega heild
fjórir kórar taka höndum saman og flytja kórverk í grafar-
vogskirkju í dag, ásamt félögum úr sinfó og söngkonunum
kristínu r. sigurðardóttur og sigríði ósk kristjánsdóttur.
Þrír af fjórum stjórnendum kóranna sem fram koma, þau Hákon Leifsson, Arnhildur Valgarðsdóttir og Julian Hewlett.
Mynd/GuðSteinn
Gunnþóra
Gunnarsdóttir
gun@frettabladid.is
Bjarni Bernharður Bjarnason
opnar málverkasýningu í Borgar-
bókasafninu/Menningarhúsi,
Gerðubergi, í dag klukkan 14. Hún
nefnist: Það skrjáfar í nýjum degi.
Efnistökin í málverkum Bjarna
Bernharðs spanna vítt svið en hafa
þó öll í sér þræði abstraktsjónar.
Verk hans eru tilfinningarík og
kröftug og tærleiki litanna nýtur
sín í afmörkuðum litaflötum.
Honum hefur tekist að finna
sjálfan sig í málverkinu og bera
verkin sterk persónueinkenni.
– gun
Skrjáfar í nýjum degi
7 . m A í 2 0 1 6 L A u G A r D A G u r52 m e N N i N G ∙ F r É t t A B L A ð i ð
menning