Fréttablaðið - 07.06.2017, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 07.06.2017, Blaðsíða 4
UMBOÐSAÐILI FIAT - ÞVERHOLTI 6 - 270 MOSFELLSBÆR - S. 534 4433 - WWW.FIATPROFESSIONAL.IS WWW.ISBAND.IS - ISBAND@ISBAND.IS - OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 - LAUGARDAGA 12-16 FIAT TALENTO BUS TILBOÐSVERÐ TAKMARKAÐ MAGN BÍLA Í BOÐI - TIL AFGREIÐSLU STRAX 6 MANNA 3.701.613 ÁN VSK. 4.590.000 MEÐ VSK. 9 MANNA 3.911.290 ÁN VSK. 4.850.000 MEÐ VSK. LISTAVERÐ MEÐ AUKAHLUTUM 5.850.000 MEÐ VSK. Búnaður: 125 hö. dísel, 6 gíra, beinskiptur, loftkæling frammi í og aftur í og stór afturhleri sem opnast upp. Premium pakki: 17” álfelgur, bakkmyndavél, SAMFÉLAG Nýjung verður á tónlist- arhátíðinni Secret Solstice í ár sem fer fram 21. til 24. júní. Armbönd sem gestirnir fá innihalda örgjörva og verða tengd við bankareikning armbandshafa og þannig geta þeir borgað fyrir veitingar og annað á hátíðinni. „Fólk fær armband þegar það kaupir miða á hátíðina sem verður tengt við bankareikning viðkom- andi. Þetta virkar eins og snerti- laus debetkort. Gestir nota svo Sol- stice-appið til að fylla á armbandið. Einnig verða básar á svæðinu og þangað getur fólk leitað með pen- ing eða greiðslukort þar sem starfs- fólk hjálpar gestum að fylla á arm- böndin,“ segir Jón Bjarni Steinsson, einn skipuleggjenda hátíðarinnar. „Við höfum verið að leita leiða til að koma í veg fyrir að fólk undir aldri geti keypt áfengi á hátíðinni og svona getum við tryggt það. Við erum ekki í neinni tilrauna- starfsemi. Fyrirtækið sem við kaupum þjónustuna hjá er erlent og framarlega á sínu sviði. Þetta hefur reynst vel á öðrum hátíðum.“ Miklir peningar eru í umferð yfir hátíðina og getur verið mikið umstang í kringum það að ferja peninga á milli svæða. Armbandið mun því létta mikið undir. „Þetta eykur öryggi starfsmanna og ein- faldar bókhald,“ segir Jón Bjarni. „Við getum ekki fylgst með því hvað hver og einn er að kaupa, þetta er ekki persónugreinanlegt.“ – gj Armband með örgjörva á Secret Solstice Secret Solstice hefst þann 21. júní og lýkur 24. júní. FRÉTTABLAÐIÐ/JÓHANNA ALÞINGI Þreifingar milli formanna og þingflokksformanna stjórnmála- hreyfinga á þingi héldu áfram í allan gærdag. Bjarkey Olsen Gunnars- dóttir, þingflokksformaður Vinstri grænna, segist vera farin að sjá í land með samkomulag milli þingflokka um þinglok og vonast eftir því að samkomulag náist í dag. „Eins og staðan er núna erum við ekki búin að klára samkomulag um neitt mál,“ segir Bjarkey. „Þetta er allt saman einn pakki sem við erum að reyna að ná samkomulagi um milli stjórnar og stjórnarandstöðu og því er þetta nokkuð mikil vinna þegar allt kemur til alls. Þar inni eru líka mál sem þarf að ræða í þingsal og því er ljóst að þingið verður starf- rækt vel fram í næstu viku.“ Þingstörf hafa verið í skötulíki síðustu tvo daga þar sem samninga- viðræður milli flokkanna hafa átt sér stað í bakherbergjum þingsins. Þó hafa fastanefndir þingsins nýtt sér þennan tíma til að fara yfir mál sem enn eru í meðförum þeirra og þarf að klára á þessu þingi. Mál sem talið er að verði snúin eru frumvörp um rafsígarettur og frumvarp heilbrigðisráðherra um steranotkun. Ný persónuverndar- lög og fjármálaáætlun Bjarna Bene- diktssonar verða einnig rædd mikið á næstu dögum nái menn sam- komulagi um störf þingsins. Einnig hafa heyrst raddir um að 28 ný þingmál bíði fyrstu umræðu, 60 þingmál eru í meðferðum nefnda þingsins, önnur 17 bíða annarrar umræðu og síðast en ekki síst eru fjögur mál sem bíða þriðju umræðu í þinginu. Um 30 mál voru á dagskrá þingsins í gær og störfum um tíu leytið í gærkvöld. Á morgun verður að öllum lík- indum rætt um fjármálaáætlun til ársins 2023 sem þarf að samþykkja fyrir þinglok. Sáttatillaga forsætisráðherra um með hvaða hætti þingið taki á veiði- gjaldamálinu er undirstaða þeirrar vinnu sem nú er unnin milli þing- flokksformanna um þinglokin. Af samtölum að dæma ríkir þokka- legur friður um þá vinnu og hún virðist ganga ágætlega. Hins vegar sé afar flókið að semja um þinglok þar sem aldrei hafa jafn margir flokkar setið á þingi og nú. „Það er jákvæður gangur í þessu og þetta mjakast áfram. Nú er bara unnið hörðum höndum að því að ná lendingu og það er í höndum þing- flokksformanna að semja. Eins og þingið er oft á tíðum þá tekur þetta bara tíma en við reynum að vinna þetta í sátt,“ bætir Bjarkey við. sveinn@frettabladid.is Sjá til lands í viðræðum á þingi Þingið hefur starfað með afar óvenjulegum hætti eftir eldhúsdagsumræður. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Aldrei hafa fleiri flokkar setið á þingi og því flóknara verkefni fyrir þingflokksformenn en áður að semja um þing- lok. Ágætur gangur er í viðræðum og mun samkomulag að öllum líkindum sjá dagsins ljós í dag. Þingfundir standa líkast til fram í miðja næstu viku. Eins og staðan er núna erum við ekki búin að klára samkomulag um neitt mál. Bjarkey Olsen Gunn- arsdóttir, þing- flokksformaður VG 1. Björgólfur Thor endurskapar aldargamlan gæsileika langafa 2. Geir Ólafs safnar fyrir lyfjakostnaði Ægis Þórs 3. KSÍ: „Íslendingar kunna ekki að lesa leiðbeiningar“ 4. Eldur í hóteli í miðborg Lundúna 5. Farþegum Icelandair fjölgaði um 10 prósent MEST LESIÐ 7 . J Ú N Í 2 0 1 8 F I M M T U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.