Fréttablaðið - 07.06.2017, Blaðsíða 44

Fréttablaðið - 07.06.2017, Blaðsíða 44
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, Erla Bernharðsdóttir frá Ærlækjarseli í Öxarfirði, lést 31. maí. Útför hennar fer fram frá Skinnastaðarkirkju föstudaginn 8. júní kl. 14. Jón Grímsson Guðný M. Guðnadóttir Helgi Valur Grímsson Jóna Kristín Einarsdóttir Arnþór Grímsson Heiðrún Pétursdóttir Grímur Örn Grímsson Stefán Haukur Grímsson Sigríður Benediktsdóttir Bernharð Grímsson Eyrún Egilsdóttir og fjölskyldur þeirra. Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Halla Guðný Erlendsdóttir Laufásvegi 50, Reykjavík, lést miðvikudaginn 30. maí á Landspítalanum við Hringbraut. Útförin fer fram frá Hallgrímskirkju mánudaginn 11. júní 2018 klukkan 13. Anna Erla Guðbrandsdóttir Egill Sveinbjörnsson Margrét Traustadóttir Ámundi Halldórsson Hjördís Steina Traustadóttir Kristinn Jónsson Erlendur Traustason Björg Sigrún Ólafsdóttir Þórður Ólafur Traustason Ágústa Ragnarsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Í dag, fimmtudaginn 7. júní, eiga hjónin Kristmann Magnússon og Hjördís Magnúsdóttir – oftast kennd við Pfaff – 60 ára brúðkaupsafmæli. Þau munu fagna tímamótunum, ástinni og lífinu á sólarströnd ásamt sínum nánustu. DEMANTS BRÚÐKAUP Elsku hjartans móðir okkar, tengdamóðir og amma, Björg Bjarndís Sigurðardóttir frá Hesteyri/Boðahlein 15, Garðabæ, lést á Hrafnistu í Hafnarfirði fimmtudaginn 31. maí sl. Útförin fer fram föstudaginn 8. júní kl. 11.00 frá Garðakirkju í Garðabæ. Soffía Margrét Jónsdóttir Guðmundur Jón Jónsson Hjördís Alexandersdóttir Marín Rún Jónsdóttir Brynjúlfur Erlingsson Gunnar Jónsson Steinar Skarphéðinn Jónsson Sigrún Gissurardóttir Rósa Ingibjörg Jónsdóttir Oddgeir Björnsson ömmubörn, langömmubörn og langalangömmubörn. Ástkær eiginkona mín, mamma, tengdamamma, amma og langamma, Ragna Rósberg Ásfelli 1, Hvalfjarðarsveit, lést mánudaginn 28. maí í faðmi fjölskyldunnar sinnar á Sjúkrahúsi Akraness. Útförin fer fram frá Akraneskirkju 11. júní kl. 13.00. Stefán Skagfjörð Óskarsson Hjalti Hauksson Benedikt Hólm Hauksson Jóhanna Steinunn Hauksd. Haukur Magnússon Guðný Ósk Stefánsdóttir Sveinbjörn Reyr Hjaltason Sigrún Mjöll Stefánsdóttir Bjarni Rúnar Jónsson barnabörn og barnabarnabörn. Ég er á ferð og flugi um heim-inn 27 daga af 30 í mánuði,“ segir Guðrún Björt Yngva-dóttir, verðandi alþjóðafor-seti Lions. Hún er að hend-ast til Frakklands á vorþing þegar ég næ í hana og heldur þaðan til Kína, að fagna sigri Lions í 15 ára bar- áttu gegn augnsjúkdómnum trakoma í landinu. Svo liggur leiðin á finnska Lionsþingið. Eftir nokkurra daga stopp heima fer hún til Bandaríkjanna meðal annars til að taka við embættinu form- lega. „Starfsárið er 1. júlí til 30. júní, ég tek við 3. júlí,“ segir hún. Það var árið 2015 sem Guðrún ákvað að fara í framboð. Hún segir embættið þó ekki hafa höfðað til hennar en hvatningin um að gefa kost á sér hafi verið svo mikil að á endanum hafi hún ákveðið að láta reyna á stuðninginn. „Ég var fyrst kosin í embætti 3. vara- forseta, þá valin úr fjórtán frambjóð- endum, svo 2. varaforseta og síðan 1. og þá átti enginn möguleika á móti mér. En sem varaforseti og fráfarandi forseti er maður í forsvari fyrir hreyfinguna og tekur ábyrgð með forsetanum. Fyrir svona lítið land eins og Ísland er það sérstakt að eiga fólk í forystu þessara samtaka. Í 101 árs sögu hreyf- ingarinnar hafa bara verið sjö forsetar frá Evrópu, flestir frá Bandaríkjunum og aldrei verið kona í embættinu áður.“ Guðrún Björt á eiginmann, tvö börn og sex barnabörn, þar af eina sjö mánaða nöfnu. Hún er lífeinda- fræðingur en starfaði við stjórnun innan menntakerfisins í 30 ár, síðast hjá Endurmenntun Háskólans – þar til heimshornaflakkið hófst. Lions eru stærstu samtök í heimi sinnar tegundar, með tæpa eina og hálfa milljón félaga í 210 löndum og enn að vaxa. Höfuðstöðvarnar eru í Chicago og þar er Guðrún Björt með skrifstofu. Hún skreppur oft þangað út og heldur fundi með starfsfólkinu og öðrum. „Starfið felst í að stýra þessum stóru samtökum og hins vegar að fara um heiminn að fagna stórum áföngum, veita upplýsingar, hvetja félagana og mynda tengsl, til dæmis við stórfyrir- tæki sem vilja setja fé í góðgerðarverk- efni en þurfa öruggan samstarfsvett- vang.“ Um 30 ár eru síðan konur voru teknar inn í hreyfinguna. Nú eru þær um 30 prósent félagsmanna. Býst Guðrún Björt við að breyta einhverju með sinni formennsku? „Ég held að það gerist ósjálfrátt. Konur hafa annað sjónarhorn en karlar og fólk er almennt farið að taka tillit til fleiri sjónarmiða í sambandi við verk- efni og embætti en áður. Klúbbar sem sinna bara fjáröflun til bygginga og tækjakaupa laða ekki til sín konur eða yngra fólk heldur eru það grasrótar- verkefnin sem efla klúbbana og það þykir styrkja hreyfinguna að konur og karlar vinni saman.“ Nú stendur yfir fjáröflun vegna þessa kjörs þíns. Er það venjulegt innan hreyf- ingarinnar? „Nei, í öðrum löndum leggja allir Lionsfélagar eitthvað lítið á hverju ári í framboðssjóð. Það eru alltaf 10 til 15 manns í framboði á hverjum tíma og flestir eru í 8 til 10 ár í framboði að kynna sig áður en þeir komast áfram. Það tók mig fjóra mánuði að fá opin- bera stuðningsyfirlýsingu og svo tíu mánuði að ferðast um heiminn og kynna mig í hverri heimsálfu til að ná kosningunni á alþjóðaþingi. En Íslendingar hafa aldrei reiknað með að eiga forseta og því áttum við engan sjóð til að standa við bakið á framboðinu og vissum ekki hversu kostnaðarsamt það yrði. Við fórum í söfnun innan deildanna en sá sjóður gekk til þurrðar strax fyrsta árið sem ég var í framboði enda ferðakostnaðurinn mestur þá. Stundum þarf að leigja sal og taka á móti gestum, þetta verðum við að borga sjálf, boð eru aldrei greidd af félagsgjöldum. Svo þegar ég fer land úr landi er skipst á gjöfum, ég borga þær úr eigin vasa. Kaupi eitthvað íslenskt.“ Eru góð laun í boði fyrir forsetaemb- ættið? „Allt sem við gerum í Lions er sjálf- boðavinna, engin laun, bara gleði og ánægja. Því meira sem við vinnum, því meiri ánægja!“ gun@frettabladid. Verður alþjóðaforseti Lions, fyrst allra kvenna Guðrún Björt Yngvadóttir horfir bjartsýn til nýja embættisins og vílar ekki fyrir sér að taka flugið hvert sem er til að láta gott af sér leiða. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN KARLSSON Guðrún Björt Yngvadóttir er að taka við forsetaembætti Lions á alþjóðavísu. Hún verður áttundi evrópski for- setinn í 101 árs sögu hreyf- ingarinnar og fyrsta konan. Konur hafa annað sjónarhorn en karlar og fólk er almennt farið að taka tillit til fleiri sjónarmiða í sambandi við verkefni og embætti en áður. 7 . J Ú N Í 2 0 1 8 F I M M T U D A G U R32 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð TÍMAMÓT
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.