Fréttablaðið - 07.06.2017, Blaðsíða 54
Njóttu þess að fara í sund / sjósund
Verndaðu eyrun með Ear Band-It Ultra
eyrnaböndum og eyrnatöppum
Fæst í apótekum, Sundlaug Kópavogs, Útilíf, Heimkaup og barnavöruverslunum. Pakkinn inniheldur bæði eyrnatappa og eyrnaband.
EAR CARE BAND-IT vörurnar eru hannaðar af Háls-, nef- og
eyrnalækni og voru sérstaklega þróaðar fyrir börn með rör í eyrum
og fyrir þá sem eru viðkvæmir og vilja halda vatni frá eyrum og
eyrnatöppum á réttum stað.
einu sinni fyrir sex ára aldur.
Með því að nota EAR BAND-It eyrnatappa og eyrnabandið getur
þú komið í veg fyrir að vatn komist inn í eyrun og þar að leiðandi
gerir það að verkum að börn, fullorðnir og allir sund iðkendur
geta verið áhyggjulausir í vatni.
Verndar viðkvæm eyru
– hentar bæði börnum og fullorðnum
Til í þremur stærðum.
S - frá 1. til 3. ára
L - frá 10 ára og eldri ( fullorðnir )
7. JÚNÍ 2018
Tónlist
Hvað? Hamskipti, tónleikar með sál-
fræðitvisti
Hvenær? 20.30
Hvar? Hof, Akureyri
Tónlistarparið Lára Sóley
Jóhannsdóttir og Hjalti Jónsson
ásamt hinum góðkunna Valmari
Valjaots halda tónleika í Hofi.
Tónleikarnir eru hluti af tónleika-
röð undir yfirskriftinni Hamskipti
sem þau hafa staðið fyrir nú í vor
og sumar víða um Norðurland.
Á tónleikunum flytja þau fjöl-
breytta tónlist, klassík, þunga-
rokk og allt þar á milli. Tónlistin
er fléttuð saman með frásögnum
og sálfræðilegum pælingum um
samskipti fólks og áhrif tónlistar á
lífið, en Hjalti starfar sem sálfræð-
ingur ásamt því að vera tónlistar-
maður. „Markmið tónleikanna
er að áhorfendur eigi notalega
kvöldstund þar sem við flytjum
fjölbreytilega tónlist, spjöllum á
persónulegum nótum um eigið
líf og spinnum út frá því sálfræði-
legar pælingar. Þetta er svolítið
eins og fyrsti tími hjá sálfræðingi,“
segir Hjalti.
Hvað? Geisha Cartel útgáfupartí
Hvenær? 21.00
Hvar? Prikið, Bankastræti
Fyrsta plata Geisha Cartel kemur
loks út nú 7. Júní. Komið og fagnið
með á Prikinu.
Hvað? Behzod spilar Rakhmanínov
Hvenær? 19.30
Hvar? Harpa
Undrabarnið frá Úsbekistan, Beh-
zod Abduraimov, spilaði sig inn
í hjörtu tónleikagesta Sinfóníu-
hljómsveitar Íslands haustið 2015
þegar hann lék píanókonsert eftir
Prokofíev með slíkum tilþrifum
að tónleikagestir supu hveljur
af hrifningu. Nú snýr hann aftur
með einn vinsælasta konsert allra
tíma í farteskinu. Píanókonsert
nr. 2 eftir Rakhmanínov er ljóð-
rænn og tilþrifamikill í senn,
sannkölluð flugeldasýning fyrir þá
sem hafa gaman af píanóleik eins
og hann gerist bestur.
Viðburðir
Hvað? The Lover
Hvenær? 20.00
Hvar? Tjarnarbíó
The Lover er sjónrænt dans-
verk, hugleiðing um samband
manns og náttúru. Fjallað er um
tengslin milli tilvistar, híbýla og
aðstæðna mannverunnar í eilífðar
samhengi. Hvernig maðurinn
og jörðin bæði skapa og eyða.
Hvernig manneskjan býr í nátt-
úrunni og hvernig náttúran býr
í mannskepnunni. Líkami Báru
og umhverfi hans eru í stöðugri
þróun og umbreytingu á meðan
á sýningunni stendur. Í verkinu
er áhorfendum boðið í rými til
íhugunar; hvað er mennskt, hvað
er dýrslegt, hvað er náttúrulegt,
hvað er af mannavöldum, hvað er
lífrænt …
Hvað? Box – Skeifunni
Hvenær? 12.00 og 17.00
Hvar? Skeifan
Box – Skeifunni verður opnað
fimmtudaginn 7. júní klukkan
12.00 Á svæðinu verður fjöldi
seljenda bæði matar og drykkjar,
einnig verður á svæðinu risaskjár,
frábær tónlistaratriði og pop-up
búðir (opnaðar þarnæstu helgi).
Box – Skeifunni verður opið
alla fimmtudaga til sunnudaga
frá 7. júní til 29. júlí. Þeir selj-
endur sem verða á svæðinu fyrstu
helgina eru KO:Re, Jömm, Krúska,
Magellan, Skræðuvagninn,
Naustið, Indican, Flatbökubíllinn,
Prikið, Vöffluvagninn, Box-barinn
og fleiri. (ATH. breytingar geta
orðið á seljendum eftir dögum.)
Sýningar
Hvað? Djúpþrýstingur
Hvenær? 18.00
Hvar? Nýlistasafnið
Nýlistasafnið býður ykkur
hjartan lega velkomin á opnun
afmælissýningar Nýló í dag.
Nýlistasafnið (Nýló) var stofnað
árið 1978 af hópi 27 listamanna
og er í dag eitt elsta safn og sýn-
ingarrými í Evrópu sem rekið er af
listamönnum. Í fjörutíu ára sögu
Nýló hafa yfir 2.500 íslenskir og
erlendir listamenn komið að sýn-
ingum og viðburðum í safninu.
Hvað? 111 – Ljósmyndasýning Spessa
á Listahátíð í Reykjavík
Hvenær? 14.00
Hvar? Rýmd, Völvufelli
Breiðholtið og stoltir íbúar þess
birtast í öllum sínum fjölbreyti-
leika í nýrri röð ljósmynda Spessa
sem sýndar eru í galleríinu Rýmd í
Völvufelli. Portrettmyndir Spessa
úr póstnúmerinu 111 bera það
með sér að hann hefur komist í
nálægð við alls konar fólk sem
byggir Breiðholtið. Hann gætir
þess að halda hæfilegri fjarlægð af
virðingu við viðfangsefnið. Hér er
á ferðinni örsaga kynslóða í hverfi
sem á margan hátt er óvenjulegt í
borginni.
Hvað? Pillow Talk – Listahátíð í
Reykjavík
Hvenær? 17.00
Hvar? Norræna húsið
Koddahjal eða „Pillow Talk“ gefur
innsýn í líf hælisleitenda og flótta-
fólks á Íslandi með því að bjóða
fólki að setja sig í spor þeirra og
hlusta á sögur þess. Hátölurum
hefur verið komið fyrir í rúmum,
sem notuð eru fyrir hælisleit-
endur, og þátttakendum býðst
að leggjast í rúmin og hlusta á
frásagnir fólksins. Sögurnar eru
vandasamlega settar fram með
það að markmiði að gefa þátt-
takendum nýja leið til að skilja
„sögur flóttafólks“.
Hvað? Street View (Reassembled) á
Listahátið í Reykjavík
Hvenær? 17.00
Hvar? Norræna húsið
Listaverk finnska listamannsins
Anssi Pulkkinen samanstendur
af rústum heimila sem hafa verið
fluttar frá Sýrlandi sjóleiðina til
Evrópu. Efniviðurinn var keyptur
af fyrri eigendum og fluttur burt
með fullu samþykki þeirra. Um
er að ræða steypt veggjabrot, s.s.
stiga og hluta gólfs en ekki er
mögulegt að átta sig á uppruna,
nákvæmri staðsetningu eða sögu
hússins út frá þessum brotum.
Hvað? Bókverk
Hvenær? 15.30
Hvar? Safnahúsið
Á þessari sýningu bókverka eru
dregin fram áhugaverð dæmi um
skapandi prentverk, bókband og
tilraunir með form bókarinnar úr
safneign Landsbókasafns Íslands –
Háskólabókasafns. Leitað er fanga
allt aftur til loka 19. aldar og eru
verkin sett í samhengi við bóka-
gerð listafólks fram til dagsins í
dag. Dieter Roth (1930-1989), sem
var einn af frumkvöðlum bók-
verkagerðar í heiminum, vann
sín fyrstu bókverk hér á landi í
kringum 1957 og ruddi brautina
fyrir bókverkagerð íslensks lista-
fólks.
Hvað?
Hvenær?
Hvar?
Fimmtudagur
Hvar@frettabladid.is
Box verður opnað í dag – matur og stuð í Skeifunni. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
7 . J Ú N Í 2 0 1 8 F I M M T U D A G U R42 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð