Fréttablaðið - 07.06.2017, Blaðsíða 52

Fréttablaðið - 07.06.2017, Blaðsíða 52
Samkvæmt fræðunum fann Steven Spielberg upp „sumarsmellinn“ í Holly-wood árið 1975 með Jaws. Blóðþyrstur risahákarl sem kjamsaði á fólki sem hætti sér í sjósund í sumarfríinu virtist vera akkúrat það sem þurfti til þess að draga fólk í milljónatali í bíó. Tveimur árum síðar breytti George Lucas kvikmyndaheim- inum varanlega með Star Wars og 1981 sameinuðu þessir vinir krafta sína og trommuðu upp með Raiders of the Lost Ark. Einhverri fjörugustu og ævintýralegustu poppkornsmynd síðari tíma. Hraðinn og hasarinn í æsilegu kapphlaupi fornleifafræðingsins Indiana Jones við nasista um að finna Sáttmálsörkina var eitthvað það geggjaðasta sem sést hafði í bíó þótt í raun væri um að ræða berg- mál þrjúbíó-myndanna sem Lucas og Spielberg ólust upp við. Lucas gaf Harrison Ford ómetanlegt tæki- færi þegar hann réð hann í hlutverk geimkúrekans Han Solo í Star Wars og sem betur fer höguðu örlögin því þannig til að Ford end- aði einnig í hlutverki Indiana Jones. Ford hefur gert þá báða, Jones og Solo, að einhverjum dáðustu persónum kvikmynda- sögunnar og það væri til þess eins að æra óstöðugan að reyna að telja saman allar þær skrilljónir doll- ara sem þessar tvær kempur hafa rakað saman í Star Wars og Indiana Jones-myndunum. Lucas og Spielberg hafa ekki enn látið hvarfla að sér að fá annan leikara til þess að leika fornleifa- fræðinginn með hattinn og svipuna enda myndi slíkt varla vita á gott. Kannski reikar nefnilega hugur manns tæp 40 ár aftur í tímann til Fords og Indys vegna þess að nýj- ustu Star Wars-myndinni, Solo: A Star Wars Story, gengur ekki nógu vel í miðasölunni. Sem er að vísu rann- sóknarefni vegna þess að myndin er þvottekta Star Wars-ævintýri en að manni læðist sá grunur að þar sem myndin segir forsögu Han Solo, með nýjum ungum leikara í hlutverkinu, hafni heittrúaðir myndinni einfaldlega vegna þess að Alden Ehrenreich er ekki Harr- ison Ford. Misráðið vitaskuld, ekki síst þar sem Ford sjálfur, sem í seinni tíð virðist hafa umturnast í gamlan nöldursegg, hefur ausið arftakann unga lofi. „Alden negldi þetta. Hann gerði þetta að sínu,“ hefur Ron Howard, leikstjóri Solo, haft eftir Ford. En betur má ef duga skal. Greinilega. Ágætt líka að hafa í huga í þessu samhengi að þegar kvikmynda- tímaritið Total Film efndi til skoð- anakönnunar meðal lesenda sinna í fyrra var Indiana Jones valinn með yfirburðum stórkostlegasta kvik- myndapersóna allra tíma. Og Han Solo fylgdi honum eftir í 3. sæti með Batman á milli. Það er hvorki heiglum né hetjum hent að feta í fótspor Fords en Indi- ana Jones stendur þó enn óhagg- aður og ómengaður í þvældum leðurjakka, með hattinn og svipuna á lofti. Indy er búinn að vera mesta og besta sumarmyndayndið í 37 ár og alltaf tilefni til þess að endurnýja kynnin við hann. thorarinn@frettabladid.is SKOÐAÐU ÚRVALIÐ Á VEFSÍÐUNNI OKKAR www.skornirthinir.is ÖRUGG SKREF ÚT Í LÍFIÐ í fyrstu skónum frá Biomecanics Stærðir: 18–24 Verð: 7.995 Margir litir Biomecanics-skórnir auðvelda börnum að taka fyrstu skrefin. Aukinn stuðningur frá hliðunum bætir jafnvægi og eykur stöðugleika. Börnin komast auðveldar áfram og af meira öryggi þökk sé sveigjanlegum sóla og sérstyrktri tá. Varmadælur & loftkæling Verð frá aðeins kr. 155.000 m.vsk Midea MOB12 Max 4,92 kW 2,19 kW við -7° úti og 20° inni hita (COP 2,44) f. íbúð ca 60m2. og kælir á sumrin Uppsetningaaðilar og umboðsmenn um allt land www.artasan.is Fæst í næsta apóteki og helstu stórmörkuðum Mundir þú eftir að bursta og skola í morgun? Tannlæknar mæla með GUM tannvörum Þær eru fáar klípurnar sem Indiana Jones getur ekki bjargað sér úr með því að sveifla nautasvipunni góðu. Marion Ravenwood verður traustasti bandamaður Indiana Jones í Raiders of the Lost Ark. Frábær persóna og harðasti naglinn í myndinni. Harrison Ford státar af því að hafa leikið tvær af dáðustu hetjum kvikmynda- sögunnar, Indiana Jones og geim- kúrekann Han Solo. Indiana Jones er sumarhetja allra tíma Þótt enginn skortur sé á alvöru sumarsmellum í ár er freist- andi að stökkva örfáa áratugi aftur í tímann og horfa á Raiders of the Lost Ark. Betri geta sumarmyndirnar tæpast orðið. 7 . J Ú N Í 2 0 1 8 F I M M T U D A G U R40 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð BÍÓ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.