Fréttablaðið - 07.06.2017, Page 52
Samkvæmt fræðunum fann Steven Spielberg upp „sumarsmellinn“ í Holly-wood árið 1975 með Jaws. Blóðþyrstur risahákarl sem kjamsaði á fólki sem
hætti sér í sjósund í sumarfríinu
virtist vera akkúrat það sem þurfti
til þess að draga fólk í milljónatali
í bíó.
Tveimur árum síðar breytti
George Lucas kvikmyndaheim-
inum varanlega með Star Wars
og 1981 sameinuðu þessir vinir
krafta sína og trommuðu upp með
Raiders of the Lost Ark. Einhverri
fjörugustu og ævintýralegustu
poppkornsmynd síðari tíma.
Hraðinn og hasarinn í æsilegu
kapphlaupi fornleifafræðingsins
Indiana Jones við nasista um að
finna Sáttmálsörkina var eitthvað
það geggjaðasta sem sést hafði í bíó
þótt í raun væri um að ræða berg-
mál þrjúbíó-myndanna sem Lucas
og Spielberg ólust upp við.
Lucas gaf Harrison
Ford ómetanlegt tæki-
færi þegar hann réð
hann í hlutverk
geimkúrekans
Han Solo í Star
Wars og sem betur
fer höguðu örlögin því
þannig til að Ford end-
aði einnig í hlutverki
Indiana Jones.
Ford hefur gert þá
báða, Jones og Solo, að
einhverjum dáðustu
persónum kvikmynda-
sögunnar og það væri
til þess eins að æra
óstöðugan að reyna
að telja saman allar
þær skrilljónir doll-
ara sem þessar tvær
kempur hafa rakað
saman í Star Wars
og Indiana Jones-myndunum.
Lucas og Spielberg hafa ekki enn
látið hvarfla að sér að fá annan
leikara til þess að leika fornleifa-
fræðinginn með hattinn og svipuna
enda myndi slíkt varla vita á gott.
Kannski reikar nefnilega hugur
manns tæp 40 ár aftur í tímann til
Fords og Indys vegna þess að nýj-
ustu Star Wars-myndinni, Solo: A
Star Wars Story, gengur ekki nógu
vel í miðasölunni.
Sem er að vísu rann-
sóknarefni vegna þess að
myndin er þvottekta Star
Wars-ævintýri en að manni
læðist sá grunur að þar sem
myndin segir forsögu Han
Solo, með nýjum ungum
leikara í hlutverkinu,
hafni heittrúaðir
myndinni einfaldlega vegna þess
að Alden Ehrenreich er ekki Harr-
ison Ford.
Misráðið vitaskuld, ekki síst þar
sem Ford sjálfur, sem í seinni tíð
virðist hafa umturnast í gamlan
nöldursegg, hefur ausið arftakann
unga lofi. „Alden negldi þetta.
Hann gerði þetta að sínu,“ hefur
Ron Howard, leikstjóri Solo, haft
eftir Ford. En betur má ef duga skal.
Greinilega.
Ágætt líka að hafa í huga í þessu
samhengi að þegar kvikmynda-
tímaritið Total Film efndi til skoð-
anakönnunar meðal lesenda sinna
í fyrra var Indiana Jones valinn með
yfirburðum stórkostlegasta kvik-
myndapersóna allra tíma. Og Han
Solo fylgdi honum eftir í 3. sæti
með Batman á milli.
Það er hvorki heiglum né hetjum
hent að feta í fótspor Fords en Indi-
ana Jones stendur þó enn óhagg-
aður og ómengaður í þvældum
leðurjakka, með hattinn og svipuna
á lofti. Indy er búinn að vera mesta
og besta sumarmyndayndið í 37 ár
og alltaf tilefni til þess að endurnýja
kynnin við hann.
thorarinn@frettabladid.is
SKOÐAÐU ÚRVALIÐ Á VEFSÍÐUNNI OKKAR
www.skornirthinir.is
ÖRUGG SKREF
ÚT Í LÍFIÐ
í fyrstu skónum frá Biomecanics
Stærðir: 18–24
Verð: 7.995
Margir litir
Biomecanics-skórnir auðvelda börnum að taka
fyrstu skrefin. Aukinn stuðningur frá hliðunum
bætir jafnvægi og eykur stöðugleika. Börnin
komast auðveldar áfram og af meira öryggi þökk
sé sveigjanlegum sóla og sérstyrktri tá.
Varmadælur &
loftkæling
Verð frá aðeins
kr. 155.000 m.vsk
Midea MOB12
Max 4,92 kW
2,19 kW við -7° úti og
20° inni hita (COP 2,44)
f. íbúð ca 60m2.
og kælir á sumrin
Uppsetningaaðilar og
umboðsmenn um allt
land
www.artasan.is
Fæst í næsta
apóteki og helstu
stórmörkuðum
Mundir þú eftir að
bursta og skola í
morgun?
Tannlæknar mæla með
GUM
tannvörum
Þær eru fáar klípurnar sem Indiana Jones getur ekki bjargað sér úr með því að sveifla nautasvipunni góðu.
Marion Ravenwood verður traustasti bandamaður Indiana Jones í Raiders
of the Lost Ark. Frábær persóna og harðasti naglinn í myndinni.
Harrison Ford státar
af því að hafa leikið
tvær af dáðustu
hetjum kvikmynda-
sögunnar, Indiana
Jones og geim-
kúrekann Han Solo.
Indiana Jones
er sumarhetja allra tíma
Þótt enginn skortur sé á alvöru sumarsmellum í ár er freist-
andi að stökkva örfáa áratugi aftur í tímann og horfa á Raiders
of the Lost Ark. Betri geta sumarmyndirnar tæpast orðið.
7 . J Ú N Í 2 0 1 8 F I M M T U D A G U R40 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
BÍÓ