Fréttablaðið - 07.06.2017, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 07.06.2017, Blaðsíða 6
Hörður Ægisson FRÉTTABLAÐIÐ Nýtt skipurit hefur tekið gildi hjá Torgi, útgáfufélagi Fréttablaðsins. Kristín Þorsteinsdótt- ir, sem verið hefur útgefandi og aðal- ritstjóri undanfarin fjögur ár, mun einbeita sér að rekstri fréttastofunnar og verður áfram útgefandi í aðalstarfi. Ritstjórar Fréttablaðsins verða þau Kjartan Hreinn Njálsson, Ólöf Skafta- dóttir og Sunna Karen Sigurþórsdótt- ir sem ritstýrt hefur vefútgáfu blaðs- ins, Fréttablaðið.is. Hörður Ægisson mun áfram ritstýra Markaðnum, fylgiriti Fréttablaðsins. Þá hefur verið stofnuð ný deild innan fyrirtækisins, Stafræn verkefni, IT og markaðsmál og mun Jóhanna Helga Viðarsdóttir stýra henni þvert á svið. Sigrún L. Sigurjónsdóttir mun áfram stýra fjármálasviði og Elmar Hallgríms Hallgrímsson sölu, grein- ingum og dreifingu. Markmið nýs skipulags er að efla alla þætti starfsemi Torgs með sér- staka áherslu á stafrænan hluta og um leið skilgreina verksvið betur með það að markmiði að bjóða neytendum og auglýsendum betri fjölmiðla. Ingibjörg Stef- anía Pálmadóttir er forstjóri Torgs. – þea Fjórir nýir ritstjórar á Fréttablaðinu HEILBRIGÐISMÁL Frá og með næstu áramótum verða allir þeir sem ekki hafa hug á að líffæri þeirra, að þeim látnum, verði notuð við læknis- meðferð annars einstaklings að gefa andstöðu sína upp meðan þeir lifa. Frumvarp um ætlað samþykki við líffæragjöf, í stað ætlaðrar neitunar, var samþykkt á Alþingi í gær. Lögin taka gildi fyrsta dag ársins 2019. Í upphafi gerði frumvarpið ráð fyrir því að ætlað samþykki lægi fyrir hjá einstaklingum sem væru sjálfráða en sú breyting var felld úr lögunum við meðferð þingsins. Í frumvarpinu felst hins vegar að óheimilt sé að slík aðgerð fari fram leggist nánasti vandamaður hans gegn því. Slíkt gildir óháð því hvort um yfirlýst samþykki er að ræða eða ætlað samþykki. „Þetta varð niðurstaðan í nefnd- inni, að reka þennan varnagla. Almennt er það mikill léttir fyrir aðstandendur að þekkja vilja hins látna og nær undantekningalaust virða þeir afstöðu hans,“ segir Silja Dögg Gunnarsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, en hún var fyrsti flutningsmaður frumvarpsins. Meðan á undirbúningi málsins stóð var meðal annars rætt við líf- færagjafarteymi á Sahlgrenska- sjúkrahúsinu í Svíþjóð. Í þeim viðræðum kom fram að aðeins er eitt þekkt tilfelli í Svíþjóð þar sem aðstandendur viku frá vilja hins látna. „Þessi lög eru mjög ánægjulegur áfangi,“ segir Runólfur Pálsson, umsjónarmaður líffæraígræðslu- teymis Landspítalans. Tölur og gögn frá ríkjum heims- ins benda til þess að í löndum þar sem ætlað samþykki er lögfest sé gjafatíðni líffæra hærri en í ríkjum sem búa ekki við slík lög. Hingað til hefur sú leið verið farin hér á landi að fólk þurfi að láta vilja sinn til líf- færagjafar skýrt í ljós. Stjórnvöld hafa meðal annars ráðist í herferðir til að fjölga á lista líffæragjafa en það hefur skilað sér í því að rétt rúm tíu prósent landsmanna eru á þeim lista. „Staðreyndin er sú að í flestum til- fellum liggur ekkert fyrir um afstöðu mögulegs gefanda. Liggi slíkt ekki fyrir hefur verið leitað til aðstand- enda til að kanna hvort afstaða hins látna hafi legið fyrir meðan hann lifði,“ segir Runólfur. Í lögunum er kveðið á um að vel- ferðarráðuneytið þurfi að kynna innihald þeirra fyrir landsmönnum áður en þau taka gildi um næstu áramót. Þeir sem eindregið leggjast gegn því að líffæri þeirra séu notuð verða að gefa þá afstöðu sína upp á þar til gerðu skráningarformi Emb- ættis landlæknis. „Ég vil ítreka við fólk að ræða um afstöðu sína við eldhúsborðið heima. Slíkt getur komið í veg fyrir að fólk lendi í erfiðri stöðu ef slys eða sjúkdóm aðstandanda ber að,“ segir Silja Dögg. joli@frettabladid.is Nánasti vandamaður getur virt fyrirmæli hins látna að vettugi Frumvarp um ætlað samþykki til líffæragjafar varð að lögum í gær og tekur gildi um áramótin. Almennt ríkir ánægja með efni laganna meðal þeirra sem starfa í stéttinni. Fólk sem ekki vill láta gefa líffæri sín að sér látnu mun þurfa að lýsa því sérstaklega yfir. „Ánægjulegur áfangi,“ segir sérfræðingur hjá Landspítala. Rúmlega tíu prósent þjóðarinnar hafa skráð sig á lista Landlæknis fyrir líffæragjafa frá 2014. NORDIC PHOTOS/GETTY Ég vil ítreka við fólk að ræða um afstöðu sína við eldhúsborðið heima. Silja Dögg Gunnarsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins NÝSKÖPUN Sextíu og þremur verk- efnum verður úthlutað styrkjum úr Tækniþróunarsjóði. Umsóknum um styrki úr sjóðnum hefur fjölgað og hlutfall kvenna hefur hækkað mikið síðustu ár. Sífellt fleiri konur fá styrk Hrund Gunnsteinsdóttir, stjórnarformaður Tækniþróunar- sjóðs „Þetta er stærsta úthlutun ársins úr sjóðnum, upphæðin er nálægt 700 milljón krónum. Við mælum hlutfall karla og kvenna sem fá styrki út frá kyni verkefnastjóra. Hlutfall kvenna hefur hækkað mikið síðustu misseri. Nú eru konur 37% verkefnastjóra. Síðasta haust var hlutfall kvenna sem verkefnisstjóra um 45%,“ segir Hrund Gunnsteinsdóttir, stjórnar- formaður Tækniþróunarsjóðs. „Ég held að í þessu samhengi sé það mikilvægt að Tækniþróunar- sjóður tali áfram til stærri hóps,“ segir Hrund. „Nýsköpun þrífst á fjölbreytni. Umsóknum hefur einnig fjölgað þvert á atvinnulífið. Umsóknir núna voru 377 talsins sem er 17 prósenta aukning frá því í fyrra,“ segir hún. – kg DANMÖRK Forsætisráðherra Dan- merkur, Lars Løkke Rasmussen, á nú í viðræðum við leiðtoga í öðrum Evrópuríkjum, þar á meðal Þýska- landi, Austurríki og Hollandi, um að setja upp sérstakar búðir fyrir hælis- leitendur sem fengið hafa synjun. Rasmussen vonast til að fyrstu skrefin verði tekin þegar á þessu ári. Hugmyndin gengur út á að setja upp búðirnar einhvers staðar í Evrópu en utan Evrópusambands- ríkjanna. Það er mat Rasmussen að koma eigi þeim fyrir sem synjað hefur verið um hæli í landi sem ekki er efst á lista hælisleitenda og þeirra sem smygla fólki. – ibs Ræða búðir utan ESB DÓMSMÁL Barnaverndarstofa var í gær sýknuð fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í máli Freyju Haralds- dóttur gegn stofnuninni. Freyja stefndi Barnaverndarstofu fyrir að hafa synjað henni leyfi til að gerast fósturforeldri. Segir í dómnum að ekki verði annað séð en að mat Barnaverndarstofu hafi verið reist á hlutlægum og málefnalegum sjónarmiðum sem miði að því höfuðmarkmiði að gæta öryggis og réttinda fósturbarna, en að engin vægari úrræði en höfnun umsóknar hefðu verið tæk með góðu móti. „Þetta eru náttúrulega mikil von- brigði og augljóslega ekki niður- staðan sem við vildum,“ segir Freyja í samtalið við Fréttablaðið. Aðspurð að því hvort til standi að áfrýja dómnum segir Freyja að ákvörðun hafi ekki verið tekin um það. „Fatlað fólk á að hafa fullan aðgang að réttlátri málsmeðferð. Við eigum rétt á friðhelgi frá for- dómum sem ákveða fyrir fram að við séum vanhæf bara út frá því hvernig líkaminn okkar er eða lítur út eða hreyfir sig. Þetta mál hefur einkennst af því að það er verið að ákveða fyrir fram að ég sé vanhæf út af því hvernig líkama ég er í. Það er ekki einu sinni vilji til að kanna það frekar. Það eru augljóslega for- dómar,“ segir Freyja. Í niðurstöðukafla dómsins segir að óumdeilt sé að Freyja sé vel menntuð og atorkusöm kona sem er virk félagslega og hefur áður komið að störfum með börnum. Jafnframt sé það óumdeilt að Freyja búi í ágætum húsakynnum og við traustar fjölskylduaðstæður. Segir dómurinn að það liggi fyrir að heimilishald Freyju byggi á því að fjórar til sex aðstoðarkonur ganga vaktir, og að það myndi skapa óstöðugleika í tengslamyndun við barn og valda því að nokkur stofn- anabragur yrði á umhverfinu. Einn- ig segir að slíkar aðstæður feli ekki í sér þann langtíma stöðugleika sem ber sérstaklega að stuðla að fyrir fósturbarn. – jt Freyja segir niðurstöðu héraðsdóms vera mikil vonbrigði Freyja Haraldsdóttir segir að um fordóma sé að ræða. FRÉTTABLAÐIÐ/FREYJA Sunna Karen Sigurþórsdóttir Ólöf Skaftadóttir Kjartan Hreinn Njálsson Kristín Þorsteinsdóttir 7 . J Ú N Í 2 0 1 8 F I M M T U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.