Fréttablaðið - 07.06.2017, Blaðsíða 60

Fréttablaðið - 07.06.2017, Blaðsíða 60
HUGINN MUNINN SKYRTUR NÝ VEFVERSLUN www.huginnmuninn.is s. 511 1100 | www.rymi.is gRafma ns akkatj r Kynningarverð: 82.897 kr. m/v2 sk Þetta byrjaði allt á Verzlóballi …“ segir Snorri Ástráðsson, plötusnúður, en hann og Arnór Björnsson – Arnór FKN Björns – eru að gíra sig upp í að ferðast norður á Akureyri með tvo troðfulla bíla af leikmunum. Þeir eru að fara að spila á reivi fyrir norðan á laugardaginn, en þetta verður endurtekning á goð- sagnakenndu Verzlóballi sem þeir félagar komu fram á fyrir nokkru og innihélt hoppukastala, reykbyssur og slatta af fíflaskap. „… og þetta gerðist eiginlega óvart, ég var spurður hvort strákur úr skól- anum mætti hoppa upp á svið með mér og láta eins og hálfviti, þetta reyndist vera hann Arnór – þessu balli var síðan reyndar frestað, þetta var sem sagt hið fræga „Gillz ball“ sem var mikið í fréttum á þessum tíma.“ Ballið sem um ræðir var umtalað ball þar sem DJ Muscleboy, eða Egill Einarsson, Gillzenegger, átti að koma fram en var aflýst eftir þrýsting frá femínistafélagi skólans. Gamalt máltæki segir að upp úr aflýstum böllum spretti oft önnur og jafnvel betri böll. „Það var í apríl að Arnór hafði samband við mig og spurði hvort ég væri til í að taka upp leika frá því árinu áður og ég sagði auðvitað já. Við fengum „budget“ og fórum þá eiginlega að fíflast – þetta var hálf- gert maníukast sem varði í þrjá daga þar sem við vorum að leigja hoppu- kastala, reykbyssur, konfettí og eitt- hvert bull.“ Ballið sló í gegn og svo mikið að framleidd var hálftíma löng stutt- mynd um það. Þá var úr vöndu að ráða fyrir Snorra og Arnór: Hvað áttu þeir að gera við frægðina og framann? Úr varð að þeir ákváðu að halda í mekka skemmtanalífs Norðurlands, jafnvel landsins alls, Sjallann. „Akureyri er einn af mínum uppáhaldsstöðum að spila á og þangað ætlum við með alls konar leikmuni og hálfvitaskap í fartesk- inu.“ Og giggið hefur verið kynnt með stuttum leikþætti sem má finna á viðburðinum á Facebook. „Við verðum allir í ákveðnum kar- akter þarna. Axel, sem er að skipu- leggja þetta með okkur, verður í ljónabúningi og ég verð mjög reiður allan tímann. Þetta verður tekið alla leið.“ Snorri segir að hluti af þessu sé viðleitni hans til að taka plötu- snúðamenninguna alla leið, að búa til stóra viðburði þar sem plötu- snúðar eru á aðalhlutverki eins og tíðkast víða erlendis – en hann segir fyrirmyndir þeirra í þessu reivi vera meira „commercial“ á borð við alla risa plötusnúðana sem til að mynda skemmta reglulega í Las Vegas. „Hér á Íslandi erum við litlu hjálparmennirnir hjá röppur- unum … ekki að ég hati það, þvert á móti, en það er bara kominn tími til þess að við upphefjum þennan DJ- kúltúr, og sömuleiðis reivið. Nú er hipphopp aðeins að dala eftir þessa bylgju síðasta sumar og þá ætla ég að koma sterkur inn með reivið í staðinn.“ stefanthor@frettabladid.is Plötusnúðamenningin tekin alla leið í Sjallanum Snorri Ástráðsson plötusnúður og Arnór Björnsson ætla að endur- taka goðsagnakennt Verzlóball á Akureyri um helgina. Þetta verður reiv af nýja skólanum og Sjallanum verður breytt í Las Vegas. Strákarnir ætla með ferð sinni til Akureyrar að koma plötusnúðakúltúrnum heldur betur á kortið. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR Sirka svona verður stemmingin í Sjallanum á laugardaginn. NÚ ER HIPPHOPP AÐEINS AÐ DALA EFTIR ÞESSA BYLGJU SÍÐASTA SUMAR OG ÞÁ ÆTLA ÉG AÐ KOMA STERKUR INN MEÐ REIVIÐ Í STAÐINN. 7 . J Ú N Í 2 0 1 8 F I M M T U D A G U R48 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.