Fréttablaðið - 07.06.2017, Side 60
HUGINN MUNINN
SKYRTUR
NÝ
VEFVERSLUN
www.huginnmuninn.is
s. 511 1100 | www.rymi.is
gRafma ns akkatj r
Kynningarverð:
82.897 kr. m/v2 sk
Þetta byrjaði allt á Verzlóballi …“ segir Snorri Ástráðsson, plötusnúður, en hann og Arnór Björnsson – Arnór FKN Björns – eru
að gíra sig upp í að ferðast norður
á Akureyri með tvo troðfulla bíla af
leikmunum. Þeir eru að fara að spila
á reivi fyrir norðan á laugardaginn,
en þetta verður endurtekning á goð-
sagnakenndu Verzlóballi sem þeir
félagar komu fram á fyrir nokkru og
innihélt hoppukastala, reykbyssur
og slatta af fíflaskap.
„… og þetta gerðist eiginlega óvart,
ég var spurður hvort strákur úr skól-
anum mætti hoppa upp á svið með
mér og láta eins og hálfviti, þetta
reyndist vera hann Arnór – þessu
balli var síðan reyndar frestað, þetta
var sem sagt hið fræga „Gillz ball“
sem var mikið í fréttum á þessum
tíma.“
Ballið sem um ræðir var umtalað
ball þar sem DJ Muscleboy, eða
Egill Einarsson, Gillzenegger, átti
að koma fram en var aflýst eftir
þrýsting frá femínistafélagi skólans.
Gamalt máltæki segir að upp úr
aflýstum böllum spretti oft önnur
og jafnvel betri böll.
„Það var í apríl að Arnór hafði
samband við mig og spurði hvort
ég væri til í að taka upp leika frá því
árinu áður og ég sagði auðvitað já.
Við fengum „budget“ og fórum þá
eiginlega að fíflast – þetta var hálf-
gert maníukast sem varði í þrjá daga
þar sem við vorum að leigja hoppu-
kastala, reykbyssur, konfettí og eitt-
hvert bull.“
Ballið sló í gegn og svo mikið að
framleidd var hálftíma löng stutt-
mynd um það. Þá var úr vöndu að
ráða fyrir Snorra og Arnór: Hvað
áttu þeir að gera við frægðina og
framann? Úr varð að þeir ákváðu
að halda í mekka skemmtanalífs
Norðurlands, jafnvel landsins alls,
Sjallann.
„Akureyri er einn af mínum
uppáhaldsstöðum að spila á og
þangað ætlum við með alls konar
leikmuni og hálfvitaskap í fartesk-
inu.“
Og giggið hefur verið kynnt með
stuttum leikþætti sem má finna á
viðburðinum á Facebook.
„Við verðum allir í ákveðnum kar-
akter þarna. Axel, sem er að skipu-
leggja þetta með okkur, verður í
ljónabúningi og ég verð mjög reiður
allan tímann. Þetta verður tekið alla
leið.“
Snorri segir að hluti af þessu sé
viðleitni hans til að taka plötu-
snúðamenninguna alla leið, að búa
til stóra viðburði þar sem plötu-
snúðar eru á aðalhlutverki eins og
tíðkast víða erlendis – en hann segir
fyrirmyndir þeirra í þessu reivi vera
meira „commercial“ á borð við alla
risa plötusnúðana sem til að mynda
skemmta reglulega í Las Vegas.
„Hér á Íslandi erum við litlu
hjálparmennirnir hjá röppur-
unum … ekki að ég hati það, þvert á
móti, en það er bara kominn tími til
þess að við upphefjum þennan DJ-
kúltúr, og sömuleiðis reivið. Nú er
hipphopp aðeins að dala eftir þessa
bylgju síðasta sumar og þá ætla ég
að koma sterkur inn með reivið í
staðinn.“ stefanthor@frettabladid.is
Plötusnúðamenningin
tekin alla leið í Sjallanum
Snorri Ástráðsson plötusnúður og Arnór Björnsson ætla að endur-
taka goðsagnakennt Verzlóball á Akureyri um helgina. Þetta verður
reiv af nýja skólanum og Sjallanum verður breytt í Las Vegas.
Strákarnir ætla með ferð sinni til Akureyrar að koma plötusnúðakúltúrnum heldur betur á kortið. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Sirka svona verður stemmingin í Sjallanum á laugardaginn.
NÚ ER HIPPHOPP
AÐEINS AÐ DALA
EFTIR ÞESSA BYLGJU SÍÐASTA
SUMAR OG ÞÁ ÆTLA ÉG AÐ
KOMA STERKUR INN MEÐ
REIVIÐ Í STAÐINN.
7 . J Ú N Í 2 0 1 8 F I M M T U D A G U R48 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð