Fréttablaðið - 07.06.2017, Blaðsíða 50
DANS
Óður og Flexa – rafmagnað
ævintýri
★★★ ★★
Hannes Þór Egilsson og Þyri Huld
Árnadóttir
Flytjendur: Höfundar ásamt Er-
nesto Camilo Aðldazabal Valdes.
Leikstjóri: Pétur Ármannsson
Hljóðmynd: Garðar Borgþórsson
Ljósahönnun: Kjartan Darri Krist-
jánsson
Búningar og sviðsmynd: Sigríður
Sunna Reynisdóttir
Borgarleikhúsið
2. júní 2018
Þegar áhorfendur hittu Óð og Flexu fyrst árið 2014 voru þau börn í ofurhetjuleik heima
í stofu sem létu ímyndunaraflið
leiða sig í leiknum. Þá voru þau tvö
á sviðinu og léku sér við hvort annað
í kúnstugum sófa. Vináttan var í for-
grunni með öllu sem henni fylgir.
Árið 2016 birtust Óður og Flexa
aftur á sviðinu en þá til að halda upp
á afmæli. Eins og í fyrsta verkinu var
ímyndunaraflið í aðalhlutverki og
áhorfendur fengu að sjá hvernig
leikurinn þróaðist með hjálp þess. Í
þetta skipti urðu draumar og ævin-
týraheimur þeirra vinanna sýnileg
áhorfendum þegar fígúrur sem
börnin hafa búið til úr prumpu-
slími lifna við. Ævintýrið tók síðan
yfir leik barnanna og með aðstoð
sögumannsins Glæsibuxna hurfu
vinirnir og áhorfendur inni í annan
heim.
Í verkinu Óður og Flexa – raf-
magnað ævintýri, sem nú er sýnt
sem hluti af Listahátíð í Reykjavík,
eru hversdagsbörnin Óður og Flexa
nánast horfin en ofurhetjukarakt-
erarnir Óður og Flexa eingöngu
sýnilegir. Núna eru áhorfendurnir
ekkert leiddir inn í ævintýraheima
ímyndunarafls síns heldur er ævin-
týrið þegar hafið þegar verkið hefst.
Hannes Þór og Þyri Huld, höfund-
ar verksins, hafa þróað karakterana
í átt að sterkara látbragði og leik
með líkamsfærni sína. Öll tjáning
er orðin ýktari og börnin Óður og
Flexa sem einkenndust af einlægni
og leik í fyrsta verkinu hafa vikið
fyrir karakterunum Óð og Flexu
sem minna meira á trúða.
Þyri hefur frá fyrstu tíð á sviði
Borgarleikhússins sýnt óvenju
mikla og sérstaka fimi sem nýtur sín
ekki síst í hlutverki Flexu. Hannes
hefur þroskað með sér aukið vald
yfir líkamlegu látbragði sem gerir
samspil þeirra skemmtilegt. Strax í
upphafsatriðinu er tónninn sleginn
því þegar Óður og Flexa hefja leik þá
láta líkamar þeirra ekki að stjórn
með tilheyrandi uppákomum og
skemmtun fyrir áhorfendur. Þessar
kúnstir náðu salnum sem veltist um
af hlátri.
Líkamsbeitingin í sýningunni
tengdist síðan á skemmtilegan
hátt mismunandi dansstílum bæði
úr ranni listdansins og félagslegra
dansa. Eins og í fyrri verkum var
áhorfendum boðið upp á fallegar
samtímadanssenur á milli þess sem
almennari dansspor eins og línu-
dans og salsa voru stigin.
Bæði Þyri og Hannes voru frábær
í öllu sem þau gerðu. Mitt í tiltekt-
inni allri hjá Óð og Flexu fengu þau
heimsókn frá dularfullu vélmenni
að nafni Rafmax sem túlkað var
af Ernesto Camilio. Þrátt fyrir að
vera stirt í upphafi sýndi það veru-
lega góða danstakta og hreyfifærni
um leið og það komst af stað. Sam-
spil þeirra allra þriggja var mjög
skemmtilegt.
Söguþráðurinn í verkinu er
ekkert sérlega merkilegur né boð-
skapurinn áhrifamikill en það skipti
ekki endilega máli. Það voru annars
konar töfrar sem glöddu og heilluðu
áhorfendur, eða eins og samferða-
maður minn á sýninguna sagði:
„Það er ekkert leiðinlegt í verkinu
það er bara skemmtilegt.“
Þær 45 mínútur sem verkið stóð
voru fljótar að líða enda alltaf eitt-
hvað nýtt og spennandi að gerast.
Frammistaða allra á sviðinu var með
ólíkindum og verkið rann vel. Það
var ekki síst gleði og aðdáun sem
verkið vakti hjá áhorfendum sem
voru á þeirri sýningu sem undir-
rituð fór ár, heldur yngri en þeim
sem verið höfðu á fyrri verkunum
um þau Óð og Flexu.
Hljóðmyndin, samsett af hljóðum
tengdum rafmagni og vel þekktri
eðaltónlist, var grípandi og flott.
Lýsingin sem lék líka stórt hlut-
verk, enda var aðalþema verksins
rafmagn, virkaði einnig mjög vel.
Búningarnir voru litríkir og flottir
sem og sviðsmyndin, þrjár drasl-
hrúgur á gólfinu – efni verksins var
tiltekt eftir afmælið – og þrír stórir
ljósarammar.
Oftast í dansverkum er hlutverk
umgjarðar eins og hljóðs, lýsingar
og sviðs að undirstrika og styrkja
sjálfan dansinn. Í þessu verki urðu
ljósin og sviðsmyndin nánast eins
og viðbótarkarakterar. Þessi sýning
var allsherjar húllumhæ, fjör og
kraftur þar sem hreyfing, hljóð og
ljós heillaði áhorfendur.
Sesselja Magnúsdóttir
NIÐURSTAÐA: Fjörug og flott sýning þar
sem áhorfendur fengu að sjá mátt leik-
hústækninnar og mannslíkamans.
Rafmagnað sjónarspil
Ofurhetjurnar eru í essinu sínu í dansverkinu Óður og Flexa – rafmagnað
ævintýri. MYND/JÓNATAN GRÉTARSSON
Við hjónin höfum starfað mikið saman í tónlistinni en nú erum við með nýtt form því við blönd-um saman tónum og
tali,“ segir Lára Sóley Jóhannsdóttir
um dagskrána Hamskipti sem hún,
eiginmaðurinn Hjalti Jónsson og
Valmar Valjaots standa að undir
yfirskriftinni Hamskipti. Þau verða
í Hofi á Akureyri í kvöld klukkan
20.30 en eiga að baki ferðalag með
efnið um Norðurlandið endilangt,
frá Þórshöfn í austri til Blönduóss
í vestri. „Svo ætlum við að vera í
Grímsey á sumarsólstöðum,“ upp-
lýsir Lára Sóley glaðlega.
Lára Sóley er fiðluleikari og hefur
verið konsertmeistari Sinfóníu-
hljómsveitar Norðurlands, Hjalti er
menntaður í klassískum söng, spilar
á gítar og er sálfræðingur og Valmar
Valjaots er organisti Glerárkirkju,
hann er frá Eistlandi en hefur verið
búsettur á Íslandi í á þriðja áratug
og er virkur í tónlistarlífinu fyrir
norðan. Hann spilar á píanó á þess-
um tónleikum. „Við spjöllum á per-
sónulegum nótum um eigið líf inn á
milli laga og Hjalti fléttar inn í það
sálfræðilegum pælingum,“ lýsir Lára
Sóley og heldur áfram: „Tónlistin
er frá ólíkum tímabilum, þar koma
Presley, Platters og Metallica við
sögu og svo klassík – sérstök blanda
en býsna fjölbreytt. Við renndum
blint í sjóinn með þetta prógramm
en höfum fengið góðar viðtökur svo
það hefur gengið upp.“
Tónleikar og spjall á persónlegum nótum í Hofi
Tónlistarparið Lára Sóley Jóhannsdóttir og Hjalti Jónsson ásamt Valmar Valjaots organista heldur tónleika
með sálfræðitvisti í Hofi á Akureyri í kvöld. Þau hafa flutt þá víða á Norðurlandi en eiga Grímsey eftir.
Lára Sóley og Hjalti hafa starfað mikið saman í tónlist og nú blanda þau sögum úr eigin lífi inn í tónleikadagskrána sem hefur yfirskriftina Hamskipti. MYND/AUÐUNN NÍELSSON
TÓNLISTIN ER FRÁ
ÓLÍKUM TÍMABILUM,
ÞAR KOMA PRESLEY, PLATTERS
OG METALLICA VIÐ SÖGU OG
SVO KLASSÍK – SÉRSTÖK
BLANDA EN BÝSNA FJÖLBREYTT.
Gunnþóra Gunnarsdóttir
gun@frettabladid.is
7 . J Ú N Í 2 0 1 8 F I M M T U D A G U R38 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð