Brautin - 15.12.1965, Blaðsíða 17
JÓLABLAÐ BRAUTARINNAR 1965
15
DULARFULLIR...
Framh. af síðustu lcsmálssíðu.
izt á eitthvað og sokkið, hefðu bóm
ullarballarnir, sem á dekki voru,
áreiðanlega flotið og fundizt, og
ef ketilsprenging hefði orðið, er
fullvíst að eitthvað brak hefði
fundizt úr skipinu.
En ekki nokkur hlutur fannst,
skip ,sem var 180 feta langt og 35
feta breitt, fullhlaðið vörum, með
55 farþega innanborðs og alla á-
höfn, fer fyrir bugðu á fljótinu og
hverfur — fyrir fullt og allt.
SKÓLASKIP HVERFUR.
Hinn 14. desember 1928 lá danska
skólaskipið Köbenhavn ferðbúið í
Montevideo, beðið var eftir þeim
50 nemendum, sem á.skipinu voru,
þeir voru í kveðjuveizlu í danska
sendiráðinu. Þetta var þeirra síð-
asta ferð með skipinu. Þegar til
Danmerkur kæmi, færu þeir af skip
inu sem fullgildir sjómenn. Piltarn-
ir litu björtum augum til framtíðar-
innar og engan grunaði, að Köben-
havn með öllum, sem um borð voru,
yrði horfið af yfirborði sjávar eft-
ir nokkrar klukkustundir.
Rétt fyrir klukkan tólf komu
þeir um borð, landfestar voru leyst-
ar o gskipið leið hægt út úr höfn-
inni, fór fram hjá nokkrum litlum
fiskibátum — og hvarf. Skip, sem
skömmu seinna komu til Montevi-
deu, hefðu átt að mæta hinu danska
skólaskipi, en enginn varð var við
það eða áhöfn þess. Eins og Iron
Mountain var Köbenhavn gjörsam-
lega horfin, án þess að svo mikið
sem ein spíta fyndist úr því.
IIERFLOKKAR IIVERFA.
Dæmi eru þess ,að stórir herflokk
ar hafi horfið á óskiljanlegan hátt,
slíkt skeði t. d í spánska erfða-
stríðinu. 4000 manna velþjálfaður
og vel útbúinn her tók sér náttból
á bakka ár einnar nálægt Pyren-
eafjöllunum. Morguninn eftir tóku
þeir saman föggur sínar, röðuðu
sér upp og héldu af stað, sást síð-
ast að þeir stefnudu til fjalla. Síð-
an hefur ekkert til þeirra spurzt.
Ekki einn einasti maður af þessum
fjórum þúsundum hefur fundizt,
hvorki lifandi eða dauður.
Sömu sögu er að segja af 650
manna flokki franskra nýlenduher-
manna, sem voru á göngu til Sai-
gon í Indó-Kína árið 1858. Þar sem
þeir þrömmuðu áfram á sléttu
svæði um það bil 25 km. frá borg-
inni, hurfu þeir gjörsamlega eins og
jörðin hefði gleypt þá, og fundust
aldrei síðan.
Það var hráslagalegan jóladags-
morgun á Themsárbökkum. Lotinn
aldurhniginn og blindur maður
handlék fiðlu krókloppinn og
reyndi að spila. Það var hans lifi-
brauð. Tveir menn, vel til fara,
áttu leið þarna fram hjá, og þeir
stöldruðu við, til að virða fyrir sér
þennan aumkunarverða mann.
Annar þeirra, skarpholda maður
og útitekinn, klappaði vingjarnlega
á öxlina á blinda manninum og
sagði á dálítið bjagaðri ensku:
— Óheppinn í dag, ha? Enginn
gefur peninga. Slæmur dagur?
— Víst er jóladagurinn góður
dagur, herra, svaraði blindi maður-
inn. En veðrið er svo kalt og bless-
að fólkið kærir sig ekki um að opna
hjá sér gluggana.
— Láttu það opna, svaraði hinn,
sargkenndri, óstyrkri röddu. —
Spilaðu þangað til það opnar
gluggana.
— Eg vildi að ég gæti það í allra
heilagra nafni, svaraði blindi mað-
urinn.
Skyndilega rétti hinn grannleiti
aðkomumaður út höndina og greip
fiðluna.
— Kannski að ég ætti að spila?
sagði hann. — Kannski að ég geti
fengið það til að opna gluggana?
Hann tók af sér hanzkana og
sveiflaði boganum eins og hljóm-
sveitarstjóri með taktsprota, og
litla fiðlan eins og vaknaði af
blundi. Hún var sem þrungin lífi
og þrótti í höndum hans. Tónarnir
dönsuðu og streymdu fram, og það
var eins og æðri heimur hljóma og
hrynjandi hefði skyndilega opnazt
þarna á svalri götunni.
Gluggi var opnaður og skildíng-
ur flaug niður á gangstéttina. Það
marraði í öðrum glugga, og annarr
skildingur fauk. Peningar komu
nú eins og skúr yfir gangstéttina,
þar sem mennirnir þrír stóðu
Karlar, konur og börn lágu úti í
gluggum og dyrum og hlustuðu
bergnumin. En svo hætti hann að
spila, og skildingarnir glömruðu í
vasa gamla mannsins.
—- Þetta er helgidagur, sagði sá,
sem leikið hafði, farðu nú heim,
vinur, og hvíldu þig, haltu daginn
hátíðlegan.
— Nafn þitt, nafn þitt, hvíslaði
öldungurinn, þegar hann tók skjálf
andi við fiðlunni.
-— Þeir kalla hann Paganini, svar
aði hinn aðkomumaðurinn.
FÉLAGIÐ HJARTAVERND
heldur almennan fund á 3. í jól-
um í K. F. U. M. húsinu. Aðal-
fundur félagsins verður á eftir. —
Tekið á móti nýjum félögum.
í’undurinn hefst kl. 8,30.
■OFTLIIÐIS LANDA MILL
ÖRYGGI
ÞÆGINDI - HRAÐI
\
>ÆGILEGAR HRAÐFEREHR HEIMAN 0G HEIM WGILEGAR HRAÐFERÐIR HEIMAN 0G HEIM
Fljúgið með hinum góðkunnu Rolls
Royce 400 og Cloudmaster flugvélum
vorum, sem búnar eru ratsjóm.
Seljum farseðla til flugstöðva
um heim allan.
Umboðsmaður vor í Vestmannaeyjum
er
JAKOB Ó. ÓLAFSSON
Sími 1194.
hamiiom
SPARISJOÐUR VESTMANNAEYJA
óskar öllum Eyjabúum
GLEÐILEGRA JÓLA
og farsældar á komandi ári.
Þökkum viðskiptin á liðnum árum.
SPARISJÓÐUR VESTMANNAEYJA
Sendum viðskiptavinum vorum beztu óskir um
GLEÐILEG JÓL
og farsælt komandi ár.
Þökkum viðskiptin á árinu, sem er að líða.
MAGNÚSARBAKARÍ.