Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.2019, Side 6
6 6. desember 2019FRÉTTIR
Rekstrarumsjón ehf. • Dalshrauni 11, 220 Hafnarfirði • S: 571 6770 • www.rekstrarumsjon.com • umsjon@rekstrarumsjon.com
LÁTIÐ OKKUR UM REKSTUR
HÚSFÉLAGSINS
Við sérhæfum okkur í umsjón með rekstri húsfélaga
og bjóðum trausta og faglega þjónustu á góðu verði
Hafðu samband og fáðu tilboð strax í dag!
Allt að 87% verðmunur á lausasölulyfjum
n DV kannaði verð á 13 lyfjum n Ódýrust í Costco n Oftast dýrust í Lyfjum og heilsu
L
ausasölulyf eru dýrust í Lyfjum
og heilsu samkvæmt nýrri
verðkönnun DV á þrettán al-
gengum lausasölulyfjum.
Ellefu af þeim þrettán sem DV kann-
aði voru dýrust í Lyfjum og heilsu. Öll
þrettán lyfin voru ódýrust í vöruhús-
inu Costco. Vert er að taka fram að
viðskiptavinir Costco þurfa að greiða
ársgjald í versluninni til að geta verslað
þar.
Verðkönnun DV var framkvæmd þann
23. nóvember síðastliðinn og voru heim-
sóttar fimm stórar keðjur sem selja lyf;
Costco, Lyf og heilsa, Lyfjaval, Lyfjaver
og Lyfja. um 35% verðmunur er á körfu
sem inniheldur öll þrettán lausasölulyfin.
Ódýrasta karfan var á rúmlega 25 þúsund
krónur í Costco, sú dýrasta á tæplega 34
þúsund krónur í Lyfjum og heilsu.
Mestur munur á Panodil Hot
Mestur verðmunur var á verkjastillandi og
hitalækkandi lyfinu Panodil Hot. Það er
87% ódýrara í Costco en í
apótekinu þar sem það er
dýrast, Lyfjum og heilsu. Í
Costco kosta tíu skammtar,
eða 500 milligrömm, tæp-
lega 850 krónur en í Lyfjum
og heilsu er sama magn á 1.588
krónur.
Ofnæmislyfið Loritin er dýrast í Lyfja-
vali. Þar eru hundrað 10 milligramma töfl-
ur á 2.690 krónur. Í Costco, þar sem verðið
er lægst er sama magn á 1.484 krónur. Það
jafngildir 81% verðmun á hæsta og lægsta
verði. Loritin var eina lyfið af þessum
þrettán sem var dýrast í Lyfjavali.
Kveflyfið Strepsils með hunangi og
sítrónu var dýrast í Lyfju á 2.199 krónur,
einni krónu dýrara en í Lyfjum og heilsu.
Sama lyf kostaði 1.600 krónur í Costco,
var um 37% ódýrara. Einnig var talsverður
verðmunur á slímlosandi lyfinu Otri-
vin Menthol. Það kostaði 1.218 krónur í
Lyfjum og heilsu en 868 krónur í Costco.
Það er 40% verðmunur.
Níkótínlyf ódýrust í Costco
Ef litið er til níkótínlyfja er Costco með
hagstæðasta verðið. Þar kosta
204 stykki af 2 milligramma
Nicotinell Fruit rúmlega
3.500 krónur, en tæplega
4.700 krónur í Lyfjum og
heilsu. Tveir úðaskammtar-
ar af Nicorette QuickMist eru
einnig ódýrastir í Costco á tæp-
lega 6.800 krónur. Sama magn er
á tæplega 8.600 krónur í Lyfjum
og heilsu.
Þá var 31–36% verðmunur
á algengu verkjalyfjunum Treo,
Paratabs og Íbúfen. Sextíu stykki af
Treo voru á rúmlega 1.700 krónur í
Costco en rúmar 2.300 krónur í Lyfj-
um og heilsu. Paratabs, þrjátíu stykki
af 500 milligramma töflum, var ódýr-
ast í Costco á 380 krónur en dýrast á 498
krónur í Lyfjum og heilsu. Þá var Íbúfen,
fimmtíu stykki af 400 milligramma töflum,
á rúmar 700 krónur í Costco en tæpar þús-
und krónur í Lyfjum og heilsu.
Heildarniðurstöður verðkönnunar DV
má sjá hér fyrir neðan:
Tegund lyfs Costco Lyfjaver Lyfja Lyfjaval Lyf&heilsa Mismunur hæsta
og lægsta verð
Níkótínlyf Nicotinell Fruit 2mg 204 stk 3.564 3.989 4.549 4.524 4.698 32%
Magalyf Omeprazol Actavis 20mg 28 stk 1.518 1.649 1.879 1.852 1.998 32%
Slímlosandi Otrivin Menthol 868 1.063 1.089 970 1.218 40%
Verkjalyf Voltaren Gel 150ml 3.149 3.821 3.762 3.824 4.298 36%
Verkjalyf Paratabs 500mg 30 stk 380 453 471 464 498 31%
Kveflyf Strepsils hunang og sítrónu 36 stk 1.600 1.797 2.199 1.952 2.198 37%
Verkjalyf Treo 60 stk 1.713 1.967 2.166 2.089 2.318 35%
Verkjalyf Íbúfen 400mg 50 stk 712 769 862 798 968 36%
Frunsulyf Valablis 500mg 10 stk 1.520 1.995 1.814 1.855 2.098 38%
Verkjastillandi Panodil Hot 848 995 1.348 1.034 1.588 87%
Ofnæmislyf Loritin 10mg 100 stk 1.484 1.751 1.876 2.690 1.998 81%
Hægðalyf Imodium 2mg 16 stk 998 1.227 1.370 1.216 1.428 43%
Níkótínlyf Nicorette QuickMist 2 x 150 úðaskammtar 6.759 7.362 8.349 8.574 8.598 27%
25.113 28.820 31.698 31.846 33.904
Verðsamanburður 15% 26% 27% 35%
Lilja Katrín Gunnarsdóttir
lilja@dv.is