Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.2019, Blaðsíða 23
Tómstundir og útivist06. desember 2019 KYNNINGARBLAÐStóra jólablaðið 22. nóvember 2019KYN I GARBLAÐ
GÆLUDÝR.IS:
Gæludýrin og jólin
Ingibjörg Salóme hefur rekið verslanir Gæludýr.is í að verða 10 ár og hefur séð ýmsar breytingar í jólavenjum
gæludýraeigenda. Við sjáum það sífellt
betur hversu mikill hluti af fjölskyldunni
gæludýrin eru að verða. Eigendur vilja
aðeins það besta fyrir þau og leggja
metnað í að finna fyrir dýrin jólagjafir
og einhverja ljúffenga jólasteik.
Aðventan
Flest þekkjum við frá barnæsku hversu
erfitt getur verið að bíða eftir jólunum
og hve gaman er að eiga jóladagatal
sem styttir okkur biðina. Við erum
með, þriðja árið í röð, jóladagataölin
frá Trixie fyrir hunda og ketti en þau
hafa svo sannarlega slegið í gegn
hjá okkur. Þau eru á frábæru verði
og eru fyllt með góðgæti fyrir dýrin.
Dýrin hafa vissulega enga hugmynd
um aðventuna en þau eru fljót að læra
að dagatalið þýðir gotterí!
Jólagjöfin
Síðustu árin höfum við
séð það aukast mjög
að dýraeigendur gefi
gæludýrunum
jólapakka. Einnig hefur á sama tíma
aukist að ættingjar sem ekki eiga dýr
komi til okkar og kaupi smá jólapakka
fyrir dýrin í fjölskyldunni. Ömmur
og afar, frænkur og frændur sem
almennt koma ekki í dýrabúðir koma
hingað og fá aðstoð við að velja
smápakka fyrir dýrin svo þau fari nú
ekki í jólaköttinn. Það sem eigendur
eru oftast að kaupa eru jólavörur eins
og t.d. jólasokkar eða litlu jólapakkarnir
sem við erum með, en einnig kaupa
þeir mikið heilaþrautir og leikföng
eða tuskudýr. Meirihluti starfsfólksins
hjá okkur á gæludýr og hefur verið
afskaplega duglegt að prófa vörur
þegar við fáum inn spennandi
nýjungar og getur því verið til aðstoðar
þegar finna þarf réttu jólagjöfina.
Afþreying meðan á borðhaldi og
boðum stendur
Við þekkjum það flest sem eigum
hunda að þeim finnst yfirleitt maturinn
okkar mjög
áhugaverður. Við sjáum meira og
meira að eigendur vilja finna eitthvað
fyrir hundinn sinn að dunda við meðan
á jólaborðhaldinu stendur eða á
meðan jólaboðin standa yfir. Það sem
við höfum fengið hvað jákvæðustu
viðbrögðin við er Kong. Það sameinar
kosti leikfangs, heilaþrautar og
nagdóts á sama tíma og það er
ótrúlega sterkt. Kong-ið má fylla
með ýmsum fyllingum (blautfóðri,
uppbleyttu þurrfóðri, hundakæfu,
hundanammi) og er mjög sniðugt að
græja í það góða fyllingu og smella
svo í frystinn til að eiga þegar á þarf að
halda. Kong má svo fara í uppþvottavél
svo lítið vesen er að halda því hreinu
og er einnig til fyrir ketti og smádýr.
Önnur útgáfa af heilaþraut og leikfangi
eru Snack Snake-snákarnir og Lick
N Snack-sleikiplatan. Þessi leikföng
ásamt Kong hvetja hunda og ketti til
þess að sleikja, sem hjálpar þeim að
losa um spennu. Hægt er að
gera þrautirnar erfiðari
með því að stinga þeim
fylltum í frystinn svo
þær eiga að henta
öllum hundum og
köttum.
Jólasteikin fyrir hundinn og köttinn
Fleiri og fleiri eru farnir að kaupa
gott í jólamatinn fyrir gæludýrin á
heimilinu. Fyrir smádýrin eru oftast
keyptar nammistangir en fyrir hunda
og ketti verður yfirleitt fyrir valinu
einhver ljúffengur blautmatur. Það
blautfóður sem sló í gegn í fyrra
hjá okkur var Pussy Deluxe fyrir
kisurnar og Meatlove fyrir hundana.
Báðar fóðurtegundirnar koma
frá Þýskalandi og eru eldaðar við
lágan hita undir þrýstingi til þess að
viðhalda sem best næringarefnum
og sem besta bragðinu. Engin
aukaefni eru í fóðrinu og þar sem
það er til í nokkrum bragðtegundum
ættu bæði gikkir og dýr með
fæðuóþol að geta fundið eitthvað
við sitt hæfi. Við sjáum svo meira og
meira af því að hundarnir fái stórt
og veglegt jólabein til að smjatta
á eftir matinn til þess að þeir séu
síður líklegir til að fara smjatta á
jólapökkunum.
Nánari upplýsingar á vefsíðu
Gæludýr.is
Get Off-sprey – Er hundurinn eða
kötturinn að missa sig yfir jólatrénu
og pökkunum? Þá mælum við með
Stop Indoor-spreyinu til þess að fæla
dýrið frá trénu.