Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.2019, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.2019, Blaðsíða 32
32 PRESSAN 6. desember 2019 J ohn Wayne Gacy heillaði alla þegar hann brá sér í hlut­ verk trúðsins Pogo. En á bak við yfirborð trúðsins leyndist einn skelfilegasti raðmorðingi sögunnar. Flestir héldu að hann væri hress, kátur og gjafmildur maður. Hann var virkur í stjórn­ málastarfi og kom oft fram í trúðsgervinu og skemmti börn­ um í heimabæ sínum, Norwood Park í Illinois í Bandaríkjun­ um. Hann var einnig iðinn við að skipuleggja samkomur fyr­ ir nágranna sína þar sem hann skemmti börnunum með blöðr­ um og bröndurum. „Ég segi alltaf að það hræði­ lega við Gacy var að hann var alls ekki hræðilegur,“ sagði Sam Amriante, verjandi hans, í sam­ tali við Chicago Tribune. Amrian­ te var verjandi Gacy á áttunda og níunda áratugnum. „Hann gat verið bróðir allra, faðir, frændi. Hann var alls ekki hræðileg manngerð nema þegar hann skipti skyndilega úr því að vera hlýr og heillandi yfir í að vera sá morðingi sem hann var,“ sagði Amriante um þennan fyrrverandi skjólstæðing sinn. Óhætt er að segja að fólki hafi brugðið illa við þegar Gacy játaði að hafa pyntað, nauðgað og myrt að minnsta kosti 33 unglingspilta og unga menn. Mörg líkanna hafði hann falið í kjallara sínum. Þegar kjallarinn var orðinn full­ ur af líkum henti hann þeim í á nærri heimili sínu. „Hann leit á fórnarlömb sín sem rusl. Hann hafði engar til­ finningar í þeirra garð,“ sagði Amriante. Bandarískir fjölmiðlar gáfu Gacy viðurnefnið „The Killer Clown“ (Drápstrúðurinn). Hann er sagður hafa verið innblástur rithöfundarins Stephens King að bókinni „It“ sem kom út 1986. Bókin fjallar um trúðinn „Penny­ wise“ sem laumast um holræsa­ kerfi og drepur og limlestir börn. Fagurt yfirborð Gacy fæddist 1942 í Chicago. Fað­ ir hans, John Stanley Gacy, var áfengissjúklingur og ofbeldisfullur. Hann lamdi Gacy og systkin hans reglulega. Móðir barnanna, Marion, fékk einnig að kenna á ofbeldi eiginmannsins reglulega. Gacy átti erfitt með að eignast vini en hann sagði það vera vegna meðfædds hjartagalla sem gerði að verkum að hann gæti ekki leik­ ið við önnur börn. Hann var einnig í yfirþyngd og var strítt vegna þess. Um leið og hann varð lög­ ráða flutti hann að heiman og lá leiðin til Las Vegas. Hann varð heillaður af hryllingsmyndum og ­sögum og dauðinn heillaði hann mikið. Hann fékk vinnu í líkhúsi í Las Vegas og starfaði þar í þrjá mánuði. Þegar lögreglan yfir­ heyrði hann sagðist hann eitt sinn hafa lagst upp í kistu hjá látnum unglingspilti og látið vel að líkinu klukkustundum saman. Hann fékk síðan starf hjá skyndibitakeðju, seldi skó og stýrði verktakafyrirtæki. Hann tók virkan þátt í stjórnmálum og hitti meðal annars Rosalynn Carter, eiginkonu Jimmys Carter forseta. Hann kvæntist unnustu sinni, Marlynn, 1964 og eignuðust þau Michael og Christine. Allt leit vel út á yfirborðinu enda hafði Gacy mikla hæfileika til að heilla fólk upp úr skónum og stýra því. „Allir sem hittu John Gacy vissu eitt um hann: Hann var snillingur í að stjórna fólki. Hann gat selt eski­ móum ís,“ skrifaði Sam Amriante í bók sem hann skrifaði um Gacy, „John Wayne Gacy: Defending a Monster“. Dæmdur í fangelsi Árið 1968 var Gacy dæmdur í tíu ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn tveimur piltum í Waterloo í Iowa. Hann hafði lokkað pilt­ ana heim til hans undir því yfir­ skini að þeir gætu fengið starf í byggingariðnaðinum. Hann nauðgaði þeim síðan. Hann ját­ aði brot sín og skömmu síðar krafðist Marlynn skilnaðar. Hann sá hana aldrei aftur og heldur ekki börnin. Eftir aðeins 18 mánuði í fang­ elsi var hann látinn laus vegna góðrar hegðunar. Hann kvæntist á nýjan leik, Carol, og fluttu þau í hús í Nordwood Park. Carol vissi ekki að þá hafði Gacy stungið unglingspilt til bana í húsinu sem varð síðar sannkallað hryllings­ hús. Hann fékk þá mikinn áhuga á trúðum og lærði að setja upp trúðsgervi með öllu tilheyrandi. Hann skapaði síðan trúðana Pogo og Patches. Hann varð fé­ lagi í sirkushóp, Jolly Joker Club, sem kom meðal annars fram á barnasjúkrahúsum. Með tímanum vöknuðu ýmsar spurningar hjá Carol í tengslum við áhuga eiginmannsins á trúð­ um og dóminn sem hann hafði fengið. Þegar hún fann blað með myndum af nöktum körlum gekk hún á hann og spurði hvort hann væri samkynhneigður. Hann ját­ aði að vera tvíkynhneigður og tæki unga pilta fram yfir konur. Þá var Carol nóg boðið, pakkaði saman og yfirgaf hann. Hryllingshúsið Nú sat Gacy einn og yfirgefinn í húsinu og rann þá mikið morð­ æði á hann. Hann pyntaði, nauðgaði og myrti tugi unglings­ pilta í húsinu. Mörg morðanna framdi hann í gervi Pogo. Þegar Carol var yfirheyrð mörgum árum síðar játaði hún að hafa séð Gacy fara með unga pilta inn í bíl­ skúrinn. Jason Moran lögreglumaður hefur haft það verkefni á undan­ förnum árum að reyna að bera kennsl á öll fórnarlömb Gacy. Morðin voru framin á sex ára tímabili og mörg líkanna voru svo illa farin að ekki var hægt að bera kennsl á þau. Mörg lík­ anna voru nánast orðin að engu og engar samsvaranir fundust í Kristján Kristjánsson ritstjorn@dv.is n John Wayne Gacy skemmti öllum í gervi trúðsins Pogo n Undir skemmtilegu yfirborði lá grimmd og illska Eiginkonan, börnin og nágrannarnir vissu ekki um leyndarmál hans „Kiss my ass Í dulbúningi Sem trúðurinn Pogo. Illskan uppmáluð Gacy sýndi aldrei iðrun.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.