Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.2019, Page 37

Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.2019, Page 37
FÓKUS 376. desember 2019 Tónlistarkonan GDRN, eða Guðrún Ýr Eyfjörð Jóhannes­ dóttir, býr í húsi föður síns að Reykjamel í Mosfellsbæ. Um er að ræða fallegt hús sem fellur vel í umhverfið og er tæpir 190 fermetrar. Húsið keypti faðir tónlistarkonunnar árið 1999 en þess ber að geta að aðeins ofar í sömu götu býr herra Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands. Ekki leiðinleg­ ur nágranni. Tónlistarkonan BRÍET (Ísis Elfar) býr einnig í foreldrahúsum, í íbúð að Laugarnesvegi í Reykjavík sem er í eigu móður hennar. Íbúðin er tæp­ lega 93 fermetrar og fasteignamat næsta árs rúm 41 milljón. Frægðar­ sól BRÍETAR fer sífellt ofar á stjörnuhimnum eftir að hún gaf út sitt fyrsta lag í byrjun síðasta árs, In Too Deep. Í kjölfarið fékk hún alls kyns gylliboð utan úr heimi en stendur fast á að vera bara hún sjálf, eins og Birgitta Haukdal söng um. Herra Hnetusmjör, sem fékk nafnið Árni Páll við skírn, byrjaði að leigja í apríl í fyrra með kærustu sinni, Söru Linneth, að Litlagerði í Fossvoginum í Reykjavík. Fyrir það greiða skötuhjúin 190 þúsund krónur á mánuði en íbúðin er tæpir 103 fermetrar og er fasteignmat næsta árs rúmar 44 milljónir. Það er nóg að gera hjá parinu því um þessar mundir undirbúa þau komu síns fyrsta barns, auk þess að Herrann er á kafi í alls kyns jólatónleikum og rappgleði. Birnir Sigurðarson vakti mikla athygli árið 2017 þegar hann gaf út sitt fyrsta lag, Sama Tíma. Síðan þá hefur hann unnið með mörgum af þekktustu listamönnum landsins og er talinn afspyrnufær í því sem hann gerir. Birnir er úr Kópavoginum og býr með for­ eldrum sínum á Huldubraut í Kópavogi, einni af flottustu götunum á Kársnesinu. Hús­ ið er rúmir 240 fermetrar og er fasteignamat næsta árs tæpar níutíu milljónir. Eins og Herra Hnetusmjör þá sker rapparinn Birgir Hákon sig úr hópi unga tónlist­ arfólksins því hann býr ekki í foreldrahúsum. Birgir hefur talað opinskátt um bar­ áttu sína við vímuefnafíkn, raunar líkt og Herra Hnetusmjör og Birnir, en byrjaði að leigja raðhús að Brekkutanga í Mosfellsbæ í október síðastliðnum. Húsið er tæplega þrjú hundruð fermetrar og fyrir það borgar rapparinn 180 þúsund krónur á mánuði. Við Ásvallagötu er að finna afar reisulegt hús, hvítt með rauðu þaki. Þar býr tón­ listarkonan Una Schram ásamt foreldrum sínum. Hún stefnir hátt, í tónlistarnám í Englandi og enn meiri lagaútgáfu. Hún staldrar því eflaust stutt við í foreldrahúsum sem er rúm níutíu fermetra íbúð í miðbæ Reykjavíkur. Tryggur Kópavogsbúi Þetta má Hún sjálf Nýbyrjaður að leigja Góðir grannar Staldrar stutt við

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.