Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.2019, Page 31
KYNNING
JÓLATÓNLEIKARNIR ÆSKUJÓL:
Hver eru þín æskujól?
Hvernig lítur þín minning út þegar þú heyrir orðið „Æskujól“? Með ást og
umhyggju fyrir hvert öðru viljum við
búa til æskujól okkar allra. Þetta
eru tónleikar fjölskyldu og vina og
meginþemað er það að fjölskyldan
komi saman um jólin og skapi saman
fallega minningu um æskujól.
Við viljum gera allri fjölskyldunni
kleift að mæta saman á tónleikana
og höfum því ákveðið að rukka
ekki miðaverð fyrir börn sem geta
setið í fanginu á foreldrum sínum
eða forráðamönnum. Við teljum
það mjög táknrænt fyrir tilgang
tónleikanna, þ.e. að halda utan um
börnin okkar. Þau eiga það skilið að
fá að upplifa falleg og góð æskujól á
aðventunni.
Gæsahúðarlag fyrir allan peninginn
Í fyrsta sinn í jólatónleikasögu Íslands
höfum við skipulagt tónleikatúr
í kringum landið með þremur
gífurlega hæfileikaríkum unglingum,
Ara Ólafssyni, Karó og Pétri Erni. Við
vildum leita til unga fólksins okkar
fyrir þessa tónleika, bæði til þess að
gefa þeim tækifæri til að láta ljós
sitt skína en einnig til þess að ná til
yngri tónleikagesta. Mun þríeykið
meðal annars flytja frumsamið lag
eftir Pétur og Karó á tónleikunum. Að
sjálfsögðu heitir lagið „Æskujól“ og
um er að ræða gæsahúðarlag fyrir
allan peninginn.
Ari er landsmönnum kunnur þar
sem hann tók meðal annars þátt í
undankeppni Eurovision á Íslandi
árið 2018. Hann er gríðarlega
efnilegur tenórsöngvari og verður
gaman að fylgjast með honum í
framtíðinni.
Karolína Sif, eða Karó eins og
hún er oftast kölluð, er 18 ára
stúlka frá Bolungarvík. Hún er
gríðarlega efnileg söngkona
og gaf út lagið „Þú ert
sú eina“ á Spotify með
Jógvan Hansen.
Pétur Ernir er 19 ára
gamall Ísfirðingur.
Pétur er hálfgert
undrabarn og
framúrskarandi
hæfileikaríkur
listamaður. Hann
bæði spilar á píanó á
tónleikunum sem og syngur.
Einnig sér hann um allar
útsetningar á tónleikalögum.
Heiðursgestur á völdum
tónleikum er Högni Egilsson úr
hljómsveitinni Hjaltalín, en nafn hans
er nú þegar orðið vörumerki.
Hefðinni samkvæmt verður
lokalag tónleikanna Heims um ból
sem verður almennur söngur. Þá
fáum við alla þá krakka sem mæta
á tónleikana til að koma til okkar
og syngja með okkur fyrir gesti. Við
vonumst til þess að geta sungið
falleg og góð æskujól inn í
hjörtu allra tónleikagesta.
Nánari upplýsingar á
Facebook: Æskujól
Sala hefst
fimmtudaginn 12.
sept. kl. 12.00
Nældu þér í miða á
Æskujól hjá tix.is
Miðaverð kr. 4.500
Ókeypis aðgangur fyrir þau
börn sem vilja sitja í fanginu
á foreldrum/forráðamönnum.
Aldurstakmark ekkert.