Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.2019, Síða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.2019, Síða 31
KYNNING JÓLATÓNLEIKARNIR ÆSKUJÓL: Hver eru þín æskujól? Hvernig lítur þín minning út þegar þú heyrir orðið „Æskujól“? Með ást og umhyggju fyrir hvert öðru viljum við búa til æskujól okkar allra. Þetta eru tónleikar fjölskyldu og vina og meginþemað er það að fjölskyldan komi saman um jólin og skapi saman fallega minningu um æskujól. Við viljum gera allri fjölskyldunni kleift að mæta saman á tónleikana og höfum því ákveðið að rukka ekki miðaverð fyrir börn sem geta setið í fanginu á foreldrum sínum eða forráðamönnum. Við teljum það mjög táknrænt fyrir tilgang tónleikanna, þ.e. að halda utan um börnin okkar. Þau eiga það skilið að fá að upplifa falleg og góð æskujól á aðventunni. Gæsahúðarlag fyrir allan peninginn Í fyrsta sinn í jólatónleikasögu Íslands höfum við skipulagt tónleikatúr í kringum landið með þremur gífurlega hæfileikaríkum unglingum, Ara Ólafssyni, Karó og Pétri Erni. Við vildum leita til unga fólksins okkar fyrir þessa tónleika, bæði til þess að gefa þeim tækifæri til að láta ljós sitt skína en einnig til þess að ná til yngri tónleikagesta. Mun þríeykið meðal annars flytja frumsamið lag eftir Pétur og Karó á tónleikunum. Að sjálfsögðu heitir lagið „Æskujól“ og um er að ræða gæsahúðarlag fyrir allan peninginn. Ari er landsmönnum kunnur þar sem hann tók meðal annars þátt í undankeppni Eurovision á Íslandi árið 2018. Hann er gríðarlega efnilegur tenórsöngvari og verður gaman að fylgjast með honum í framtíðinni. Karolína Sif, eða Karó eins og hún er oftast kölluð, er 18 ára stúlka frá Bolungarvík. Hún er gríðarlega efnileg söngkona og gaf út lagið „Þú ert sú eina“ á Spotify með Jógvan Hansen. Pétur Ernir er 19 ára gamall Ísfirðingur. Pétur er hálfgert undrabarn og framúrskarandi hæfileikaríkur listamaður. Hann bæði spilar á píanó á tónleikunum sem og syngur. Einnig sér hann um allar útsetningar á tónleikalögum. Heiðursgestur á völdum tónleikum er Högni Egilsson úr hljómsveitinni Hjaltalín, en nafn hans er nú þegar orðið vörumerki. Hefðinni samkvæmt verður lokalag tónleikanna Heims um ból sem verður almennur söngur. Þá fáum við alla þá krakka sem mæta á tónleikana til að koma til okkar og syngja með okkur fyrir gesti. Við vonumst til þess að geta sungið falleg og góð æskujól inn í hjörtu allra tónleikagesta. Nánari upplýsingar á Facebook: Æskujól Sala hefst fimmtudaginn 12. sept. kl. 12.00 Nældu þér í miða á Æskujól hjá tix.is Miðaverð kr. 4.500 Ókeypis aðgangur fyrir þau börn sem vilja sitja í fanginu á foreldrum/forráðamönnum. Aldurstakmark ekkert.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.