Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.2019, Blaðsíða 49
FÓKUS 496. september
n Hvítur, hvítur dagur n Meira en bara fagur?
S
orgin getur gert sálinni
allan fjandann, ekki síst
þegar nátengdur einstak
lingur fellur frá. Tilfinninga
súpan getur slest í hinar furðu
legustu áttir og hreinlega breytt
manni í allt aðra manneskju. Því
er engin ein rétt leið til að takast á
við óvæntar aðstæður, en eins og
áhorfendur fá að kynnast í Hvít
um, hvítum degi stendur ekkillinn
Ingimundur frammi fyrir tveimur
ólíkum vegum. Þegar nýjar upp
lýsingar berast um líf og mögulega
ástæðu fráfalls eiginkonunnar síg
ur vogarskálin hægt og bítandi í
þyngri áttina, okkur til skemmt
unar.
Það má segja að þessi mynd
tikki í ákveðin box hjá staðalmynd
íslenskrar kvikmyndagerðar. En
ef svo er, þá tikka aðstandendur í
boxin bæði með stolti með ýmis
legt óvænt uppi í erminni. Annars
höfum við hér brotinn einstakling
í sveit, fortíðardrauga, fiskveiðar,
einangrun, óútreiknanlegt veð
ur, dýrðarinnar nekt til skrauts,
náttúrufókus og landslag er nýtt
til hins ítrasta. Myndin er einum
alkóhólista frá því að ná fullu húsi,
liggur við.
Heppilega tekur sagan nægi
lega ferskan vinkil á kaldan alvar
leikann, með því að sjóða saman
kómískt depurðardrama við lág
stemmdan spennutrylli. Útkom
an er kuldaleg, meingölluð en til
komumikil og mikið óskaplega er
stílblæti leikstjórans snoturt. Síð
an þarf varla að hafa augun opin
til að finna fyrir rembingslausum
og minnisstæðum leik Ingvars E.
Sigurðssonar.
Kaldhæðnin ríkjandi
Kvikmyndagerðarmaðurinn
Hlynur Pálmason ber öll merki
hæfileikamanns sem gæti komist
í þungavigtina á ókomnum árum.
Eins og sást einnig á fantagóðri
leikstjórafrumraun hans, Vinter
brødre frá 2017, er ljóst að gegn
umgangandi þráður liggur í dökk
um húmor og sterkri beitingu á
hvítum tónum og skuggum. Á
móti vantar alls ekki hversu hart
hann sækist í það að gera annan
hvern ramma að listaverki. Það
virðist líka vera sameiginlegur
þráður í báðum myndum hans
hvernig illviðri getur skorið á fjöl
skyldubönd á augabragði.
Í Hvítum, hvítum degi er ná
kvæmlega ekkert út á töku, hljóð,
strengjatónlist eða almennan stíl
að setja. Myndin er skotin á 70
millimetra filmu, sem gefur henni
flotta áferð og eru mörg hver skot
alveg stórfengleg. Auk þess er stór
um senum oft leyft að spilast út í
óslitnum tökum sem gefa andar
tökunum góðan svip.
Það hvernig Hlynur finnur
kaldhæðnina í hversdagsleik
anum og mjólkar undarlega
kómík úr grafalvarlegum ágrein
ingi er undirstaða húmorsins. Á
móti heldur leikstjórinn persón
unum í ákveðinni fjarlægð frá
áhorfendum en sækir samt
sem áður í til finningalega geð
hreinsun og tilheyrandi drama
þunga. Hvítur, hvítur dagur geng
ur samt ekki nægilega vel upp sem
dökk dramedía og grámygluleg
karakter stúdering.
Hvort í sínu lagi virkar á sinn
hátt en þegar myndin hallast meira
að kaldhæðni en tilfinningatengsl
um fara tónarnir að stangast á við
hver annan, sem mótar úr því af
spyrnu misjafna heild – og held
ur innantóma – sem samsett er úr
frábærum senum á milli. Hlynur
er of fastur í abstraktismanum og
því líklegri til að missa tök á mann
lega þættinum – og trúverðugleiki
framvindunnar víkur gjörsamlega
fyrir ljóðrænni kyrrð.
Titill myndarinnar vísar í
draumkennt mistur, þoku eða
snjókomu þar sem himinn og jörð
sameinast í eitt. Með náttúruna að
vopni nýtir Hlynur jafnframt tæki
færið til að daðra við yfirnáttúru
legar hugmyndir, sem þó virðast
ekki eiga mikinn sess í sögunni
nema í skilningi uppfyllingarefnis.
Myndmálsbeiting og ljóðræn skot
bjóða upp á ógrynni af symból
isma sem snýr að náttúrunni og
þróun Ingimundar, en yfirnátt
úrulegi þátturinn heldur ekki al
veg flugi og kemur þá í staðinn
tilgerðartónn sem myndin hefði
annaðhvort átt að sleppa, eða
keyra í botn.
Traustur samleikur og
barnaefni Satans
Að frátöldu sorgarþemanu hefur
Hvítur, hvítur dagur ýmislegt að
segja um mannlegt eðli og hvat
ir, þrátt fyrir að gjörðir og ákvarð
anir sumra persóna séu róbótum
líkar. Við sjáum Ingimund ganga í
gegnum sterka breytingu, trúverð
uga í eðli sínu, en það er happa og
glappa hvort áhorfandinn finni
almennilega fyrir henni. Slík er
fjarlægðin og kuldi frásagnarinn
ar nær lítið að styrkja tilfinninga
tengsl með þessu móti.
Í hlutverki Ingimundar verður
að segjast að Ingvar selji harða skel
manns sem er mögulega á barmi
tímabærs taugaáfalls. Bestar eru
þó senurnar með honum og afa
barninu hans, Sölku, sem bera
merki um ósvikinn mannúðleika,
hlýju og sakleysi. Hin átta ára
gamla Ída Mekkín, dóttir leikstjór
ans, rúllar í gegnum myndina með
flottum tilþrifum og lætur fara vel
um sig á móti gamla reynslubolt
anum. Verst er þó að stúlkan hef
ur ekki úr miklu að moða sem eina
kvenpersóna myndarinnar sem
fær fleiri en þrjár setningar. Ef út í
það er farið er illa farið með góðan
lager af aukapersónum úr nánasta
hring Ingimundar sem hefðu get
að bætt miklu við heildina.
Oft er mikið hægt að segja með
þögnum, endurtekningum og
augnaráði – en afraksturinn kem
ur litlu til skila sem hefði ekki dug
að álíka vel þótt korter hefði verið
saxað af lengdinni. En með fullri
virðingu fyrir meirihluta leikhóps
ins verður að segjast hreint út að
skemmtikrafturinn Sveppi stelur
algjörlega senunni með barnaefni
sínu. Þarna bregður honum fyrir
í litlu en bítandi gestahlutverki
þar sem hann bókstaflega leik
ur sjálfan sig, með viðbættum og
kærkomnum níhilisma sem gæfi
lykilmarkhópi hans þrumandi
raunveruleikaspark.
Tómas Valgeirsson
tomas@dv.is
Algjör
Sveppi
og svart-
hvíta grá-
myglan
Í stuttu máli:
Þrælvel leikin og glæsilega út
lítandi mynd þar sem sorg og
abstrakt kaldhæðni er allsráð
andi. En þótt tunnan sé fög
ur glymur furðu hátt í henni
tómri.
Sjáðu þessa mynd ef þú
kannt að meta …
Málmhaus (2013)
Vinterbrødre (2017)
Undir trénu (2017)
Mýrin (2006)
Héraðið (2019)
„Kuldaleg,
meingölluð
en tilkomumikil