Fréttablaðið - 12.01.2016, Page 13
Varnarsamningur
við Dani
1DANMÖRK Nýtt varnarsam-komulag milli Danmerkur og
Svíþjóðar er í burðarliðnum. Í því
felst að löndin geta á friðartímum
skipst á upplýsingum og notað hafnir
og flugvelli hvort annars. Kostirnir
við að skiptast á upplýsingum eru
sagðir vera þeir að þá hafi báðar
þjóðir yfirsýn yfir það sem er að
gerast á Eyrarsundssvæðinu. Áætlað
er að skrifa undir samkomulagið á
fimmtudag.
NoRðuRlÖNDiN
1
2 3
Sælgæti bjargar
landamæraverslun
2NoREGuR Gengi norsku krónunnar hefur ekki verið lægra
frá aldamótum og Norðmenn sjá
sér ekki jafn mikinn hag og áður í
því að skjótast yfir landamærin til
að gera innkaup í Svíþjóð. Sælgæti í
lausasölu er þó enn miklu ódýrara í
Svíþjóð og binda Svíar vonir við að
það bjargi landamæraversluninni.
Hátt verð er líka enn á landbúnaðar-
vörum í Noregi vegna stuðnings við
bændur.
Beittar ofbeldi
á tónleikum
3SVÍÞJÓð Sænska lögreglan sætir nú gagnrýni fyrir að hafa
ekki opinberlega greint frá kyn-
ferðislegu ofbeldi hópa ungra flótta-
manna gegn ungum stúlkum tvö ár í
röð á stærstu unglingahátíð Evrópu,
We are Sthlm. Lögreglan sagði allt
hafa farið tiltölulega friðsamlega
fram. Dagens Nyheter greinir frá
því að á minnisblöðum lögreglu sé
greint frá ofbeldinu.
hEilbRiGðiSMál Gunnlaugur Sigur-
jónsson heimilislæknir segir í nýj-
asta tölublaði Læknablaðsins að
áhugi yngri lækna á heilsugæslunni
hafi aukist en þó er þessi fjölgun
heimilislækna innan við helmingur
þess sem nauðsynlegt væri. Á tíma-
bili var nýliðun í stétt heimilislækna
afar lítil og telur Gunnlaugur það
meðal annars vera vegna áhuga-
leysis stjórnvalda á heilsugæslunni
og vegna aukins áhuga á hátækni-
læknisfræði.
Gunnlaugur telur heilsugæsluna
vera í vanda og segir að einungis
sextán prósent lækna á Íslandi
séu starfandi í heilsugæslunni en
til samanburðar má geta þess að
í OECD-löndunum er meðaltalið
um þrjátíu prósent. Gunnlaugur
segir að á meðan hlutfall heimilis-
lækna á Íslandi sé svo lágt sé upp-
lifun heimilislækna sú að geta ekki
mætt þörfum skjólstæðinga sinna.
Lausnin á þeim vandamálum sem
þessu fylgja er að mati Gunnlaugs
sú að sérhver Íslendingur þurfi að
hafa heimilislækni, þá fyrst muni
heilsugæslan geta gegnt sínu hlut-
verki. – þv
Yngri læknar hafa meiri
áhuga á heilsugæslunni
Tímamótum fagnað
Ungar japanskar konur í litríkum kimono-klæðum skemmta sér í rússíbana
eftir nokkurs konar manndómsvígslu á „Fullorðinstímamótadeginum“ í
Toshimaen skemmtigarðinum í Tókýó í Japan. Þennan dag fagna þeir sem
náð hafa tvítugu, en í Japan er litið svo á að þá hefjist fullorðinsárin. Eftir
tvítugt mega Japanar kjósa, kaupa áfengi og reykja. Fréttablaðið/EPa
16%
lækna starfa í heilsugæslunni
hér á landi, sem er helmingi
lægra hlutfall en innan ríkja
OECD.
Opnunarávarp
Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra
Skattabreytingar: Íslenskur virðisaukaskattur á EM?
Vala Valtýsdóttir, sviðsstjóri skatta- og lögfræðisviðs Deloitte
Hver borgar? - Skattar á Íslandi
Ásdís Kristjánsdóttir, forstöðumaður efnahagssviðs SA
Opinbert eftirlit: Dulin skattheimta?
Marta Guðrún Blöndal, lögfræðingur Viðskiptaráðs Íslands
Skráning á www.deloitte.is, netfanginu skraning@deloitte.is og í síma 580-3000.
Gullteigur, Grand Hótel Reykjavík léttur morgunverður frá kl. 8.00 verð kr. 3.900.
Skattabrunnur Deloitte: Er borin von að vinna Stóra Bróður?
Pétur Steinn Guðmundsson, skatta- og lögfræðisvið Deloitte
Fundarstjórn
Bala Kamallakharan, fjármálastjóri Guide to Iceland og stofnandi
Startup Iceland
Skattadagurinn
2016
Morgunverðarfundur
fimmtudaginn 14. janúar
kl. 8.30-10.00 á Grand
Hótel Reykjavík
Ábendingahnappinn má
finna á www.barnaheill.is
Ábendingahnappinn má
finna á www.barnaheill.is
Ábendingahnappinn má
finna á www.barnaheill.is
f R é t t i R ∙ f R é t t A b l A ð i ð 13Þ R i ð J u D A G u R 1 2 . J A N ú A R 2 0 1 6