Fréttablaðið - 12.01.2016, Page 32
Mitsubishi L200
Bílar
Fréttablaðið
10 12. janúar 2016 ÞRIÐJUDAGUR
F
immta kynslóðin af pall
bílnum Mitsubishi L200
er komin til landsins en
hann hefur verið fram
leiddur frá árinu 1978.
Hann kemur nú með
nýrri 2,4 lítra dísilvél
með forþjöppu sem skilar 181 hest
afli til allra hjólanna. Þessi nýja
vél er mun eyðslugrennri en í for
veranum og uppgefin eyðsla henn
ar er aðeins 7,2 lítrar í blönduðum
akstri. Það er 15 prósentum minna
en í þeirri gömlu og nú mengar
hann aðeins 173 g/km af CO2. Allt
eru þetta fínar tölur en það gleð
ur einnig hversu hljóðlát og þýð
geng þessi vél er og reynsluöku
maður minnist þess ekki að hafa
ekið pallbíl með dísil vél sem er
eins hljóðlátur og á reyndar góð
hljóðeinangrun einnig þátt í því.
Þá gleður það líka hve vélin togar
vel á lágum snúningi og er í raun
öflug á öllu snúningssviðinu. Með
þessa öflugu og skemmtilegu vél
er L200 aðeins 10,4 sekúndur í
hundraðið og tekur hann þar fram
flestum pallbílum sem í boði eru.
Í fjórhjóladrifi í háa drifinu
Reynsluakstursbíllinn var með
sex gíra beinskiptingu sem er
eins góð og beinskiptingar verða.
Fyrir vikið reyndist aksturinn
hinn ljúfasti og jafnvel skemmti
legra að aka honum beinskipt
um en sjálfskiptum. Staðsetn
ing bakkgírsins vinstra megin við
fyrsta gír var það eina sem fór
létt í pirrurnar á ökumanni, sem
greinilega er vanari því að hann
sé niðri lengst til hægri en uppi
lengst til vinstri. Öllu má nú pirra
sig á! Nú má velja um hvort not
ast er aðeins við afturhjóladrif
eða fjórhjóladrif með Super Sel
ect snúningshring sem staðsett
ur er í miðjustokknum. Í ófærð
inni sem verið hefur undanfarið
var valið einfalt, hann var yfirleitt
í fjórhjóladrifinu og kom það sér
vel. Mikill kostur er að setja má
bílinn í fjórhjóladrif í háa drifinu
og eykur það grip og stöðugleika
hans. L200 er eini pallbíllinn sem
býður upp á þennan valkost, sem
telst mikill kostur. Svo telst það
einnig til mikilla kosta að læsa má
millikassa bílsins bæði í háa og
lága drifinu. Fyrir vikið er drif
geta þessa bíls framúr skarandi.
Fyrir einum ókosti fannst við
aksturinn, en það er stór beygju
radíus og þurfti því stundum að
hræra dálítið í gírunum svo kom
ast mætti leiðar sinnar.
Vinnuþjarkur en samt fágaður
Mitsubishi L200 tekur þó fram
öðrum pallbílum á fleiri sviðum.
Hann er með mestu flutningsget
una í sínum flokki, en með eigin
þyngd getur hann flutt 4.090 kíló
og dregið heil ósköp, eða 3.100
kíló og flutningsgetan á pallin
um er eitt tonn. Þarna er því kom
inn heilmikill vinnuþjarkur. Þó
hann sé það er hann einnig fág
aður, bæði í akstri og frágangi
öllum. Innréttingin er eins og
komið sé inn í fremur smekkleg
an fólksbíl og minnir margt þar
á innréttinguna í Mitsubishi Out
lander. Ekki verður kvartað yfir
sætum bílsins, hvort sem er fram
í eða aftur í, þótt þar mætti vera
meira höfuðrými. Snertiskjár er
í bílnum með bakkmyndavél, ak
reinaskiptivari, sjálfvirkur regn
skynjari og sjálfvirk ljósastýr
ing, blá tannarbúnaður, lyklalaust
aðgengi, sjálfvirk loftkæling, sex
hátalarar og býsna gott hljóð
kerfi, leðurklætt stýri og sjö ör
yggispúðar. Því má sjá að býsna
vel er í lagt með þennan bíl. Svo
er hann með varadekk í fullri
stærð á 17 tommu álfelgu. Mikill
kostur hérlendis.
Á flottu verði
Yfir það heila verður að segjast
að nýr Mitsubishi L200 hafi vakið
undrun fyrir gæði, aksturs og
drifgetu, fágun, búnað, flutnings
og toggetu og alls ekki síst útlit.
Þar tekur hann öðrum pallbílum í
sama flokki fram. Hér er því kom
inn bíll sem mjög auðvelt er að
mæla með og sannast sagna átti
reynsluökumaður alls ekki von á
svo góðum bíl er hann var sótt
ur. Líklega er hér kominn fyrsti
pallbíll sem greinarritari gæti
hugsað sér að eiga. L200 býðst
frá 6.890.000 kr. Þar slær hann
við sambærilega búnum Toyota
Hilux í SR útgáfu á 7.340.000 kr.
og Isuzu DMax á 7.090.000 kr.
sem er þó sjálfskiptur. Það hjálpar
mjög verðinu á L200 að hann fell
ur í 35 prósenta vörugjaldsflokk
en samkeppnisbílarnir í 45.
Fágaður og eyðslugrannur vinnuþjarkur
Vekur kæti fyrir gæði, aksturs- og drifgetu, fágun, búnað, flutnings- og toggetu og ekki síst fyrir útlit.
Kemur nú af fimmtu kynslóð með sprækri en eyðslugrannri vél og fellur því í lágan vörugjaldsflokk.
2,4 l dísilvél, 181 hestafl
Fjórhjóladrif
Eyðsla 7,2 l./100 km í bl. akstri
Mengun 173 g/km CO2
Hröðun 10,4 sek.
Hámarkshraði 178 km/klst
Verð Frá: 6.890.000 kr.
Umboð Hekla
l Vél
l Drifmöguleikar
l Aksturseiginleikar
l Verð
l Beygjuradíus
l Staðsetning bakkgírs
Mitsubishi L200 pallbíllinn. Mynd/gva
Hin laglegasta innrétting í L200.