Fréttablaðið - 13.05.2016, Qupperneq 6
BÍLDSHÖFÐA
AKUREYRI
SELFOSSI
ALLT FYRIR
BOLTANN!
7.990
SKILZ
MINI GOAL
3.490
SKILZ
STAR-KICK
Háskólatorgi www.boksala.is s. 5 700 777
www.facebook.com/boksala
Útsala á erlendum bókum
og völdum kaupfélagsvörum
út maí í Bóksölu stúdenta
á Háskólatorgi.
Útsala
50-70% afsláttur
Viðskipti Eðlilegur afsláttur af
eigin fé bankanna við sölu ríkisins
væri tíu til tuttugu prósent, í stað
40 prósenta sem tíðkast um þessar
mundir í Evrópu. Þetta kemur fram
í nýrri greiningu Capacent. Miðað
við þetta nemur virði hlutar ríkisins
í bönkunum 390 til 440 milljörðum
króna.
Fram kemur í greiningunni, sem
ber yfirskriftina Bankablús: „Mara
þon í yfirvikt“, að gríðarlegir fjár
munir ríkisins liggi í bönkunum.
Eigin fé Íslandsbanka og Lands
bankans nemi 462,8 milljörðum
króna og 13 prósenta hlutur ríkis
ins í eigin fé Arion banka sé 25,1
milljarður króna.
„Samtals hefur ríkið því 487,9
milljarða króna bundna í bönkun
um. Áætlaður kostnaður við bygg
ingu Landspítalans nemur um 85
milljörðum króna og því nema fjár
munir sem eru bundnir í bönkunum
verðmæti sex Landspítala,“ segir í
greiningunni. Miklu skipti hvaða
verð fáist fyrir bankana. „Ef gefinn
er 10 prósenta afsláttur af eigin fé
bankanna er það um 48,8 milljarðar
króna, ríflega hálfur Landspítali.“
Bent er á að verð banka ráðist af
undirliggjandi rekstri og verðkenni
tölum annarra banka. „Ein ástæða
fyrir því að verð banka liggur lægra
en það eigið fé sem bundið er í
honum er að arðsemi rekstrarins er
lægri en sú arðsemiskrafa sem gerð
er til rekstrarins.“
Bornar eru saman lykiltölur úr
rekstri banka víðsvegar úr Evrópu,
en þar er miðað við að gefinn sé 40
prósenta afsláttur af eigin fé banka.
Í umhverfi þar sem svo mikill
afsláttur sé gefinn virðist tæplega
rétti tíminn til að selja íslensku
bankana. „Hins vegar er nær
ómögulegt að sjá fyrir verðþróun á
mörkuðum og hvenær rétti tíminn
sé kominn. Vel má rökstyðja að það
sé varla verjandi að ríkið liggi með
svo mikla fjármuni í bankakerfinu.“
Bæði myndu fjármunirnir nýtast
annars staðar og svo fylgi banka
rekstri áhætta. „Ekki ætti að þurfa
að minna íslenska þjóð á banka
hrunið.“
Í greiningunni er bent á að arð
semi banka af kjarnarekstri sé sú
sama hér og í Evrópu. Eftir hrun sé
heldur ekki sama óvissa um gæði
eigna þeirra hér. Þá sé íslenskum
bönkum gert að vera með hærra
hlutfall eigin fjár en gerist erlendis,
líkt og titill skýrslunnar ber með sér.
„Kennitölusamanburður bendir til
að verð íslensku bankanna ætti að
liggja á bilinu 80 til 90 prósent af
innra virði eða eigin fé.“
olikr@frettabladid.is
Bankarnir skili ríkinu
390 til 440 milljörðum
Miðað við verð á bönkum í Evrópu er tæpast réttur tími til að selja hlut ríkisins
í bönkunum. Í greiningu Capacent segir að verð hér ætti að miðast við 80 til 90
prósent af virði eigin fjár, í stað 60 prósenta ytra. Ómögulegt að spá í verðþróun.
487,7
milljarðar króna er virði
eignarhlutar ríkisins af eigin
fé stóru viðskiptabankanna.
Sýningin Dansandi hestur er haldin í Peking í Kína þessa dagana. Þetta er fjöllistasýning með dansi og tónlist.
Þátttakendur eru frá Spáni, Frakklandi og Norður-Ameríku og taka 40 hestar þátt. Fréttablaðið/EPa
Viðskipti Stóru viðskiptabankarnir
þrír högnuðust um 9,7 milljarða
króna á fyrsta ársfjórðungi 2016,
samanborið við 26,7 milljarða á
fyrsta ársfjórðungi á síðasta ári.
Hagnaður þeirra dróst því saman
um 64 prósent á milli ára.
Einskiptisliðir sköpuðu veru
legan hagnað á síðasta ári. Afkoma
bankanna á fyrsta ársfjórðungi er
viðunandi, segir í uppgjörum þeirra.
Í uppgjöri Landsbankans segir meðal
annars að uppgjörið lýsi nú reglu
bundnum rekstri bankans, án veru
legra áhrifa frá óreglulegum liðum.
Hagnaður af reglulegri starfsemi
dróst saman hjá Íslandsbanka og
Arion banka og arðsemi eigin fjár
dróst saman hjá öllum bönkunum.
Eiginfjárhlutfall bankanna nam
milli 27 og 31,2 prósentum í lok
tímabilsins. Heildareignir Íslands
banka og Landsbankans minnkuðu
frá desemberlok 2015, en heildar
eignir jukust hjá Arion banka.
Aukinn launakostnaður í kjölfar
kjarasamninga hafði áhrif á afkomu
bankanna. Laun og launatengdur
kostnaður hækkaði mest milli ára
hjá Arion banka, eða um átján pró
sent. Í uppgjöri Arion banka segir að
rekstrarkostnaður bankans aukist
ekki síst vegna áhrifa kjarasamninga
en einnig vegna fjölgunar starfs
fólks. – sg
Helmingi minni hagnaður
Hagnaður 2016 3,5 milljarðar
króna
2,9 milljarðar
króna
3,3 milljarðar
króna
Hagnaður 2015 5,4 milljarðar
króna
14,9 milljarðar
króna
6,4 milljarðar
króna
Arðsemi eigin fjár 6,9% 5,7% 5%
Hagnaður af
reglulegri starfsemi
3,6 milljarðar
króna
2,6 milljarðar
króna
Eiginfjárhlutfall 29,70% 27% 31,20%
Útlán til
viðskiptavina
677,1 millj-
arður króna
694 milljarðar
króna
814,7 millj-
arðar króna
Heildareignir
(breyting)
1.021 millj-
arður króna
1.028,6 millj-
arðar króna
1.106,7 millj-
arðar króna
Laun og
launatengd gjöld
3,9 milljarðar
(14% )
4,1 milljarður
(18% )
3,8 milljarðar
(1,4% )
✿ Lykiltölur úr ársfjórðungsuppgjöri
64%
minni hagnaður varð hjá
viðskipabönkunum þremur.
Dansandi hestur í Kína
1 3 . m A í 2 0 1 6 F Ö s t U D A G U R6 F R é t t i R ∙ F R é t t A B L A ð i ð