Fréttablaðið


Fréttablaðið - 13.05.2016, Qupperneq 18

Fréttablaðið - 13.05.2016, Qupperneq 18
Frá degi til dags Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir forStjóri: Sævar Freyr Þráinsson Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is aðStoðarritStjórar: Fanney Birna Jónsdóttir fanney@frettabladid.is, Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSn 1670-3871 fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is og Viktoría Hermannsdóttir viktoria@frettabladid.is menning: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is ljóSmyndir: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚtlitShönnun: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is Halldór Fanney Birna Jónsdóttir fanney@frettabladid.is Líkamleg og andleg líðan og starfsánægja mælist marktækt meiri á tveimur starfsstöðvum Reykja-víkurborgar sem tekið hafa þátt í tilraunaverkefni um styttingu vinnuvikunnar. Á sama tíma mælist eng- inn munur á viðhorfi til þjónustu eða opnunartíma. Undanfarna 14 mánuði hefur tilraunaverkefnið staðið yfir en það nær til tveggja starfsstöðva borgar- innar, Þjónustumiðstöðvar Árbæjar og Grafarholts og Barnaverndar Reykjavíkur. Þjónustumiðstöðinni er lokað klukkutíma fyrr alla virka daga en skrifstofu Barnaverndar er lokað eftir hádegi á föstudögum. Bak- vakt og neyðarþjónustu hefur verið sinnt með sama hætti og áður utan hefðbundins opnunartíma. Nú liggja fyrir niðurstöður eftir fyrsta árið og þær benda til jákvæðra áhrifa verkefnisins. Betri líðan og starfsánægja mælist marktækt meiri á tilraunavinnu- stöðunum en samanburðarstaðnum. Sömuleiðis dregur úr veikindum á tilraunavinnustöðunum en ekki á samanburðarstaðnum og engar breytingar er að merkja á hreyfingum í málaskrá hjá Barnavernd. Yfirvinna eykst hjá Barnavernd vegna bakvakta á föstu- dögum en ekki að öðru leyti. Almennt virðist starfsfólk hafa aðlagast verkefninu vel og ánægja ríkir með fyrir- komulagið. Það er mat stýrihópsins sem haldið hefur utan um tilraunaverkefnið að niðurstöðurnar sýni að brýnt sé að halda verkefninu áfram og afla frekari gagna á tilrauna- stöðunum tveimur, mæla áhrif til lengri tíma, enda hætta á að langtímaáhrif kunni að vera önnur en þau sem mælast eftir eitt ár. Að auki leggur stýrihópurinn til að tilraunin nái til fleiri starfsstöðva borgarinnar og verður slík tillaga lögð fram á næstu vikum. Jafnframt er lagt til að farið verði í samstarf við háskólasamfé- lagið um frekari rannsóknir, þar á meðal að kanna áhrif verkefnisins á heimilishald og fjölskylduaðstæður. Enn fremur verði óskað eftir samstarfi við starfshóp ríkis- stjórnarinnar um tilraunaverkefni um styttingu vinnu- vikunnar sem senn hefur störf. Ríki, sveitarfélög og stéttarfélög eiga að hjálpast að því styttri vinnuvika er hagur okkar allra. Það er því til mikils að vinna. Styttri vinnuvika virkar Sóley Tómasdóttir forseti borgarstjórnar Helga Jónsdóttir framkvæmda- stjóri BSRB Magnús Már Guðmundsson borgarfulltrúi í stýrihópi um styttingu vinnu- vikunnar D AN SKIR DAGAR BÆKLIN GURIN N ER KO MINN Ú T FULLUR AF FRÁ BÆRUM TILBO ÐUM Í boði Bláa lónsins Bláa lónið hefur gert samkomulag við velferðarráðuneytið um að veita psoriasissjúklingum með- ferð án greiðsluþátttöku og ríkis- sjóði einnig að kostnaðarlausu. Sagt er í tilkynningu að þetta spari ríkissjóði um 25 milljónir króna. Er þetta líklega einstakt dæmi um samfélagsábyrgð fyrir- tækis og öðrum til eftirbreytni. Hins vegar verður að segjast að hver ferð í þetta blessaða lón er orðin svo dýr að venjulegur ein- staklingur íslenskur hefur vart efni á því að fara nema á nokk- urra ára fresti. Hafa gárungur því spurt, í ljósi þess hversu gríðar- lega dýrt er að fara í lónið, hvort þessi „hlunnindi“ séu skattskyld. Kosningaumgjörð í molum Nú keppast forsetaframbjóð- endur við að safna nægum fjölda meðmælenda fyrir framboð sín. Ekki er því vitað hversu margir nákvæmlega verði í framboði þegar þetta er skrifað. Ragn- heiður Ríkharðsdóttir gagnrýndi lagaumgjörð forsetakosninganna harðlega á þingi í gær því nú væri hægt að kjósa utankjörfundar án þess að vita hverjir væru í framboði. Það er hárrétt hjá þing- konunni. Margt annað er einnig aftur úr grárri forneskju og þurfa frambjóðendur að safna með- mælendum af öllu landinu og er því skipt í fjórðunga. Ragnheiður vinnur á löggjafarsamkomunni og ætti því að einhenda sér í að laga þetta. sveinn@frettabladid.is S íðasta árið hefur Reykjavíkurborg verið með í gangi tilraunverkefni um stytt-ingu vinnuvikunnar án launaskerðingar. Niðurstöður þessarar tilraunar benda til að starfsmönnum hafi tekist að sinna verkefnum sínum til fulls þrátt fyrir fjórum til fimm klukkutímum styttri vinnuviku. Lengi hefur verið barist fyrir réttindum verka- lýðsins og hefur lengd vinnuvikunnar oft verið meðal baráttuefna. Framan af voru litlar sem engar takmarkanir á lengd vinnutíma og unnar allt að 14 til 16 klukkustundir á sólarhring. Lög voru síðan sett um 40 stunda vinnuviku árið 1971 sem standa enn, rétt eins og umræðan um styttingu vinnuvikunnar. Niðurstöður Reykjavíkurborgar gefa þeim sem vilja fækka vinnustundum byr undir báða vængi. Andleg og líkamleg líðan starfsmanna er betri, starfsánægja þeirra meiri og tíðni skammtíma- veikinda lækkar. Sóley Tómasdóttir, forseti borgar- stjórnar og formaður stýrihóps um innleiðingu verkefnisins, sagði í samtali við Fréttablaðið í gær æskilegt að halda áfram með verkefnið til að mæla hvort jákvæð áhrif vari. Í seinni tíð hefur það verið talið brýnt verkefni að auka samþættingu fjölskyldu- og atvinnulífs og tryggja þannig vellíðan starfsfólks. Samkvæmt skýrslum OECD um jafnvægi milli vinnu og frítíma kom Ísland illa út og er í 27. sæti af 36 löndum. Þannig má auðvelda umönnun barna, aldraðra eða langveikra aðstandenda og auka lífsgæði starfs- fólks. Reykjavíkurborg er ekki að finna upp hjólið, almenn reynsla þar sem þetta hefur verið reynt sýnir jákvæðar niðurstöður og að svigrúm til að bæta skipulag vinnutíma sé sannarlega fyrir hendi á ýmsum vinnustöðum. Í október síðastliðnum lögðu fjórir þingmenn stjórnarandstöðunnar fram frumvarp þar sem lagt var til að vinnuvikan yrði stytt í 35 klukkustundir þannig að vinnudagurinn styttist úr átta stundum í sjö. Síðar í sama mánuði skrifuðu Bjarni Benedikts- son fjármálaráðherra og Eygló Harðardóttir félags- málaráðherra undir viljayfirlýsingu þess efnis að kanna skyldi með tilraunaverkefni hvort unnt væri að stytta vinnutíma án launaskerðingar og ná fram gagnkvæmum ávinningi starfsfólks og stofnana. Fréttablaðið greindi frá því á þriðjudag að Íslend- ingar væru enn að flytja úr landi í stríðum straum- um. Á síðasta ári voru brottfluttir einstaklingar með íslenskt ríkisfang samtals meira en þúsund umfram aðflutta. Það er tæplega tilviljun að flestir brott- fluttra Íslendinga fara til Norðurlandanna þar sem kjörin eru heilt yfir betri að teknu tilliti til launa, vinnutíma og aðbúnaðar fjölskyldufólks. Framleiðni, sem mælir hversu vel við nýtum vinnuafl og fjármagn til að skapa verðmæti, er um fimmtungi minni hér á landi en í grannríkjunum. Við vinnum lengur en framleiðum minna. Því er niðurstaða tilraunar Reykjavíkurborgar afar jákvæð. Starfsmenn unnu minna en skiluðu sama verki. Þetta er hægt. Þetta er hægt Í seinni tíð hefur það verið talið brýnt verk- efni að auka samþættingu fjölskyldu- og atvinnulífs og tryggja þannig vellíðan starfsfólks. 1 3 . m a í 2 0 1 6 F Ö S T U D a G U R18 S k o ð U n ∙ F R É T T a B L a ð i ð SKOÐUN
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.