Fréttablaðið - 13.05.2016, Qupperneq 39
Á hönnunarvikunni í Mílanó sem haldin var nýlega kvað við nýjan tón.
Húsgagnahönnuðir líta nú æ meir til þess að hanna undir eigin nafni í
stað þess að hanna fyrir húsgagnafyrirtæki eins og hefur tíðkast. Fylgja
þeir þannig í fótspor tískuhönnuða sem margir hverjir eiga eigin tísku-
línur.
Frumkvöðlar í þessu eru þeir Tom Dixon og Lee Broom en þeir hafa
lengi hannað húsgögn og muni í eigin nafni.
Stefano Giovannoni, Sebastian Wrong og Matteo Thun voru meðal
þeirra sem frumsýndu muni úr eigin línum á hönnunarvikunni. Giovanni
sýndi til dæmis gyllta stóla í kanínulíki undir nýju merki sínu, Qeeboo.
Hann hefur einnig fengið aðra hönnuði til liðs við sig, til dæmis Andrea
Branzi, Marcel Wanders, Richard Hutten, Nika Zupanc og Front sem allir
hanna fyrir Qeeboo.
Hanna undir eigin merkjum
Hvað borðar
þú í morgun
mat?
Ég fæ mér
oft chia-
graut með
möndlu-
mjólk og
berjum sem
ég útbý kvöld-
ið áður. Sem milli-
mál fyrir hádegismat finnst
mér dásamlegt að fá mér tvö
soðin egg, ef ég er í stuði þá
set ég dropa af truffluolíu og
sjávarsalti á eggin. Svo fæ ég
mér annaðhvort espresso með
sítrónu heima eða gríp mér
soja-cappuccino á Te og kaffi í
Hamraborginni.
Hver er uppskriftin að góðri
helgi?
Að vera með vinum og eða fjöl-
skyldu í einhvers konar útivist.
Þá uppi á fjöllum, á kajak eða
í einhverjum hamagangi utan-
dyra.
Hvernig tónlist hlustar þú á?
Í mér leynast margir tónlistar-
karakterar og mætti segja að ég
væri eins konar alæta á tónlist.
Ég nota taktmikla raftónlist við
hlaup og aðrar æfingar, stund-
um dett ég í klassíska tónlist,
djass og þá helst Ellu Fitzgerald
þegar ég er í þannig stuði. Inn á
milli get ég svo hækkað í græj-
unum og spilað Jimi Hendrix
eða annað eins fágað rokk.
Ég er líka textasjúk og hlusta
mikið á þá. Sumir vilja meina að
ég sé óþolandi því ég kunni alla
texta, ég kannast nú ekki við
það að öllu leyti.
Hver er uppáhaldsvefurinn
þinn?
Er ég óskaplega sjálfhverf að
nefna minn eigin vef, rikka.is?
Ok, þá ætla ég bara að vera það.
Hvað ertu að lesa þessa dag
ana?
Bókin á náttborðinu mínu heit-
ir Spámennirnir í Botnleysufirði
en þetta er margverðlaunuð
söguleg skáldsaga sem byggð
er á atburðum í dansk-norska
konungsveldinu á 18. öld og
uppbyggingu kristinnar trúar í
Grænlandi .
Þess á milli hlusta ég mikið á
hljóðbækur og hef klárað heilu
bækurnar í fjallgöngum sem og
við heimilisþrif. Hljóðbókunum
hleð ég niður í gegnum Audible-
appið.
Hver er uppáhaldsmaturinn
þinn?
Já, þegar stórt er spurt er minna
um svör. Ég er svolítið flókinn
karakter býst ég við og breyt-
ist því smekkurinn kannski eftir
því. Eftir því sem ég eldist finnst
mér líka skipta meira máli að
maturinn fari vel í mig og ég
lognist ekki út af eftir síðasta
munnbitann.
er eitthvað spennandi að ger
ast hjá þér um helgina?
Ja, það er ýmislegt í deiglunni.
Á föstudaginn ætla ég að fara
á frumsýningu leikritsins Sími
látins manns í Tjarnarbíói. Um
helgina er svo þríþrautarkeppni
Þríkó hérna í Kópavogi, ætli ég
kíki ekki á hana.
Friðrika Hjördís geirs
dóttir setti nýlega upp
sína eigin Heimasíðu,
rikka.is, auk þess sem
Hún er dugleg á snap
cHat.
Lífsstíll
Rikku
Allt sem þú þar ...
Skv. prentmiðlakönnun Gallup, janúar–mars 2016
íbúa á höfuðborgarsvæðinu
á aldursbilinu 12–80 ára lesa
Fréttablaðið daglega.*
59,5%
Sá öldi myndi fara langt með að fylla
sæti Laugardalsvallar tíu sinnum.
59,5% lesa
Fréttablaðið
28,6% lesa
Morgunblaðið
F ó l k ∙ k y n n i n g a r b l a ð ∙ X X X X X X X X 9F Ö S T U D a g U r 1 3 . m a í 2 0 1 6 F ó l k ∙ i ∙ l í F S S T í l l