Fréttablaðið - 13.05.2016, Page 64

Fréttablaðið - 13.05.2016, Page 64
Dreifing dreifing@postdreifing.is Ef blaðið berst ekki 800 1177 Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5000 Vísir Ritstjórn 512 5200 Fax: 512 5301 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja Maríu Bjarnadóttur Bakþankar Tjáningarfrelsið hefur lengi verið uppáhaldsmannrétt-indi mín. Það er ástríðufullt, hávært og alltaf að lenda í vand- ræðum með mörk. Allt eiginleikar sem ég tengi við. Væri mannrétt- indum líkt við fegurðarsamkeppni, yrði tjáningarfrelsið oftast vin- sælasta stúlkan, a.m.k í vestrænum ríkjum. Það kæmist þó sjaldan á verðlaunapall, því að það er oft subbulegt, dónalegt og jafnvel ljótt. Þar að auki er stundum erfitt að hafa það óhamið innan um við- kvæm og brothætt réttindi eins og friðhelgi og félagafrelsi. Friðhelgi einkalífs er næstmestu uppáhaldsréttindin mín. Það er stúlkan sem varð í 4. sæti í Ungfrú Vesturland nánast barn að aldri, en flutti til útlanda, varð heims- fræg fyrirsæta og er búin að byggja sér alþjóðlegt fasteignaveldi skv. upplýsingum úr Panama-skjöl- unum. Á internetöld hefur það heldur betur fengið uppreist æru. Auðvitað ætti rétturinn til lífs alltaf að sigra í hverri keppni óháð tíma, stað eða rúmi, verandi sígild fegurð. En stundum er svindlað til þess að krýna til sigurs önnur atriði eins og landtöku hernum- inna svæða eða gæslu forréttinda tiltekinna hópa. Það er óþolandi og grefur undan mannréttindum. Þó að ég sé mótfallin fegurðar- samkeppnum er valdefling kvenna mikilvæg og ekki mitt að dæma hvernig ungar konur vilja æfa sig í framkomu. Hins vegar leyfi ég mér að fullyrða að mannréttindi myndu ekki fara í fegurðarsam- keppni, þó þau takist oft hressi- lega á. Þau vilja nefnilega ekki bara heimsfrið eins og fegurðardrottn- ingar, heldur eru þau og virðing fyrir þeim forsenda heimsfriðar. Þegar þau vinna vinnum við öll. Ungfrú mannréttindi 2016 FAXAFENI 5 Reykjavík 588 8477 DALSBRAUT 1 Akureyri 588 1100 SKEIÐI 1 Ísafirði 456 4566 AFGREIÐSLUTÍMI Mán.–fös. 10–18 | Lau. 11–16 www.betrabak.is HEILSUDÝNA HÖNNUÐ Í SAMVINNU VIÐ AMERICAN SLEEP FOUNDATION TIL AÐ LEYSA 5 ALGENGUSTU SVEFNVANDAMÁLIN L O S A Ð U Þ I G V I Ð S V E F N VA N D A M Á L I N Í E I T T S K I P T I F Y R I R Ö L L KEMUR Í VEG FYRIR MYNDUN ÞRÝSTIPUNKTA CARBON STEEL POKAGORMA- KERFI HELDUR JÖFNU OG RÉTTU SVEFN- HITASTIGI HINDRAR ÓÞARFA HREYFINGU MILLI REKKJUNAUTA STEYPTAR HLIÐAR- ST YRKINGAR A F S L ÁT T U R 25% KO M D U N Ú N A ! S E R TA-D A G A R Opið allan sólarhringinn í Engihjalla, Vesturbergi og Arnarbakka GSM 2.990 KR.* 1817 365.is ÓTAKMARKAÐ TAL, SMS OG ÓTAKMARKAÐ GAGNAMAGN Endalaust *Greitt er aukalega fyrir farsímanotkun erlendis, til útlanda og í upplýsinganúmer. Nánari upplýsingar á 365.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.