Fréttablaðið - 14.03.2016, Side 8
Íslandsstofa og Hönnunarmiðstöð Íslands boða til fundar
um hönnun og vörumerkjauppbyggingu (branding)
til að auka verðmæti íslenskra matvæla í sölu á erlendum
mörkuðum og til erlendra ferðamanna á Íslandi.
• Halla Helgadóttir, framkvæmdastjóri Hönnunar-
miðstöðvar Íslands fjallar um gildi hönnunar
• Brynhildur Pálsdóttir og Kristín María Sigþórsdóttir,
hönnuðir flytja erindi um stefnur og strauma í matar- og upplifunarhönnun
• Jakob S. Bjarnason, framkvæmdastjóri Foss Distillery
segir frá því hvernig fyrirtækið hefur mótað sér sýn
og unnið með hönnun í starfi sínu
Á fundinum verða einnig kynntar vinnustofur fyrir
matvælafyrirtæki um sama málefni, sem Íslandsstofa
mun halda í apríl og maí.
Nánari upplýsingar og skráning á vef Íslandsstofu,
www.islandsstofa.is eða í síma 511 4000.
Fundur fimmtudaginn 17. mars
kl. 9 - 10.30 á Bryggjunni brugghúsi,
Grandagarði 8
Bandaríkin Donald Trump, frambjóð-
andi í forvali Repúblikanaflokksins
fyrir forsetakosningarnar í Bandaríkj-
unum, segir að óeirðirnar sem brutust
út á framboðsfundi hans í Chicago síð-
astliðið föstudagskvöld og á laugardag-
inn séu Bernie Sanders, frambjóðanda í
forvali demókrata, að kenna.
„Þarna voru atvinnumótmælendur
í þúsundatali frá Sanders og einnig í
minna mæli frá Hillary,“ sagði Trump
í þættinum State of the Union á CNN.
Sanders hafnaði ásökunum Trumps
á sama vettvangi. Hann sagðist vona
að stuðningsmenn sínir væru ekki
að trufla framboðsfundi en sagði að
Trump ætti að líta sér nær þegar kæmi
að óeirðunum.
„Hann [Trump] er maður sem ýjar
að ofbeldi, en þá færðu einmitt það
sem þú kallar eftir,“ sagði Sanders.
Sanders fullyrðir að fyrirmæli um
að trufla framboðsfundi Trumps hafi
ekki komið úr herbúðum sínum en
hins vegar hefur sjálfstæður hópur
stuðningsmanna Sanders lýst yfir
ábyrgð á því að hafa truflað framboðs-
fund Trumps á föstudaginn.
Fjöldi mótmælenda hefur mætt á
framboðsfundi Trumps undanfarna
mánuði en nú virðist byrjað að sjóða
upp úr. Trump þurfti að hætta við
framboðsfund sinn á föstudaginn. – srs
Trump segir Sanders bera ábyrgð á ofbeldi á framboðsfundum
Mótmælandi er fjarlægður af öryggisvörðum eftir að hann hljóp upp á svið á fram-
boðsfundi Donalds Trump. NorDicphoTos/AFp
Þarna voru at-
vinnumótmælend-
ur í þúsundatali frá Sanders
og einnig í
minna mæli
frá Hillary.
Donald Trump
ingibjörg rafnar pétursdóttir, formaður BKr, sigríður Björk Guðjónsdóttir lögreglu-
stjóri, inga Dóra sigfúsdóttir prófessor og Dagur B. Eggertsson borgarstjóri.
samfélag Inga Dóra Sigfúsdóttir,
prófessor við Háskóla Íslands, hlaut
á laugardag viðurkenninguna Kona
ársins hjá þingi Bandalags kvenna í
Reykjavík.
Inga er stofnandi rannsóknarset-
ursins Rannsóknir og greining og
hlaut fyrir stuttu 300 milljóna króna
styrk frá ESB til að rannsaka hegðun
og heilsu íslenskra barna.
Þá fékk Lögreglan á höfuðborgar-
svæðinu og Reykjavíkurborg hvatn-
ingarverðlaun fyrir samstarfsverk-
efni vegna heimilisofbeldis. Sigríður
Björk Guðjónsdóttir lögreglustjóri
og Dagur B. Eggertsson borgarstjóri
veittu verðlaununum viðtöku.
Samstarfsverkefnið snýst meðal
annars út á að fleiri en lögregla komi
að hverju heimilisofbeldismáli, þar
með talin félagsmálayfirvöld og
barnaverndaryfirvöld.
Þetta var hundraðasta þing
Bandalags kvenna í Reykjavík sem
er regnhlífarbandalag kvenfélaga á
höfuðborgarsvæðinu. – snæ
Háskólaprófessor útnefndur Kona ársins
1,1
milljón manns sótti um hæli
eða alþjóðlega vernd í Þýska-
landi í fyrra.
✿ fylgi afd samkvæmt útgönguspám
hamborg
Berlín
Frankfurt
stuttgart
München
saxland-Anhalt
Stjórn Kristilegra demókrata
og Jafnaðarmanna
23%
fylgi AfD
rínarland-pfalz
Stjórn Jafnaðarmanna
og Græningja
10,6%
fylgi AfD
Baden-Württemberg
Stjórn Græningja og
Jafnaðarmanna
14,9%
fylgi AfD
Þýskaland Þjóðernisflokkurinn
AfD (Alternative für Deutschland)
vann nokkurn sigur í fylkiskosn-
ingum í Þýskalandi í gær.
Kosið var í þremur fylkjum, Sax-
landi-Anhalt, Rínarlandi-Pfalz og
Baden-Württemberg.
AfD-flokkurinn átti áður enga
fulltrúa á fylkisþingunum en náði
engu að síður góðum árangri.
Flokkurinn á þó þegar fulltrúa á
fimm öðrum fylkisþingum. Þrátt
fyrir sókn þjóðernissinna stefnir í
að stjórnir allra fylkjanna haldi velli.
Árangur AfD þykir vera mikið
áfall fyrir stjórn Angelu Merkel
Þýskalandskanslara en AfD hefur
mótmælt frjálslyndri innflytjenda-
og flóttamannastefnu hennar og vill
koma á harðari innflytjendalöggjöf.
Stefna og ummæli leiðtoga AfD
hafa vakið mikla reiði á meðal
fjölda Þjóðverja. Frauke Petry, einn
leiðtogi flokksins, lét þau ummæli
falla í kosningabaráttunni að landa-
mæralögreglu í Þýskalandi ætti að
vera heimilt að skjóta flóttamenn
sem koma ólöglega til Þýskalands.
Stuðningur við AfD er túlkaður
sem höfnun á stefnu Merkel en til
að mynda tapaði flokkur hennar,
Kristilegir demókratar, fylgi í öllum
kosningunum. Fylgistapið var mest í
Baden-Württemberg þar sem flokkur
Merkel tapaði um 12 prósentum sam-
kvæmt útgönguspám. Flokkurinn
hefur aldrei verið jafn lítill í fylkinu
með 27 prósent atkvæða. Kristilegir
demókratar eru þó enn sem áður
stærsti flokkurinn í Saxlandi-Anhalt
Varakanslari Þýskalands, Sig-
mar Gabriel, sagði á laugardaginn
að árangur AfD myndi ekki breyta
Þýskir þjóðernissinnar
eflast á fylkisþingunum
Niðurstaða fylkiskosninga í Þýskalandi þykir áfall fyrir Merkel og áfellisdómur
yfir frjálslyndri innflytjendastefnu hennar. AfD-flokkurinn á nú fulltrúa á átta af
sextán fylkisþingum Þýskalands. Berjast fyrir strangari innflytjendalöggjöf.
stefnu ríkisstjórnarinnar í innflytj-
endamálum. Á sama tíma gengu
um 2.000 þjóðernissinnar fylktu
liði um stræti Berlínarborgar og
hrópuðu: „Við erum fólkið, Merkel
þarf að fara.“
stefanrafn@frettabladid.is
1 4 . m a r s 2 0 1 6 m Á n U d a g U r8 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð