Fréttablaðið - 14.03.2016, Page 10
VERÐDÆMI:
boxer buxur kr. 1990,- áður 2490,- 20% lækkun
skyrtur kr. 6990,- áður 7990,- 12,5% lækkun
Gallabuxur kr. 9990,- áður 11990,- 16,7% lækkun
DRESSMANN
LÆKKAR VERÐ
Frá 1. mars 2016 höfum við stórlækkað verð á flestum okkar vörum
vegna afnáms tolla og gengisþróunnar
SMÁRALIND 5659730 / KRINGLAN 5680800 / AKUREYRI 4627800 / SMÁRALIND XL 5650304
heilbrigðismál Einelti um borð í
íslenskum fiskiskipum virðist miklu
algengara en gengur og gerist hjá
öðrum starfsstéttum. Ríflega þriðjung-
ur sjómanna, eða 38,9%, sem tóku þátt
í nýlegri rannsókn sögðust hafa orðið
fyrir eða upplifað einelti eða áreitni
um borð á síðastliðnum sex mán-
uðum áður en rannsóknin var gerð.
Þetta er meðal niðurstaðna Salóme
Rutar Harðardóttur, íþrótta- og heilsu-
fræðings, í meistaraverkefni hennar
við Menntavísindasvið Háskóla
Íslands sem fjallar um lífsánægju og
starfsumhverfi sjómanna.
Salóme, sem starfar sem íþrótta-
kennari og forvarnarfulltrúi Verk-
menntaskóla Austurlands, segir
niðurstöðurnar gefa vísbendingar
sem verði að taka alvarlega, en 132
sjómenn víða af landinu á aldrinum
21-70 ára tóku þátt í rannsókninni
– þar af tvær konur. Þá kom einnig í
ljós að lífsánægja og heilsa þeirra sjó-
manna sem höfðu upplifað eða orðið
fyrir eineltinu var marktækt minni en
þeirra sem höfðu það ekki.
Salóme setur þessar tölur í sam-
hengi við aðrar rannsóknir um efnið –
innlendar sem erlendar. Er þetta hlut-
fall með því hæsta sem hún hefur séð.
Sé hlutfallið yfirfært á alla sjómenn á
Íslandi, eða þá 4.100 sem störfuðu á
sjó á árunum 2013 til 2014, má áætla
að tæplega 1.600 þeirra hafi orðið
fyrir eða upplifað einelti eða áreitni á
vinnustað sínum.
Til samanburðar segir Salóme að
nákvæmlega sömu spurningar voru
lagðar fyrir starfsmenn stórs versl-
unarfyrirtækis hér á landi, þar sem
rúmlega 200 manns svöruðu, og þar
voru tölurnar sláandi mikið lægri –
eða 4,4% samanborið við 38,9% hjá
sjómönnunum.
Salóme segir að niðurstöðurnar
er varða einelti um borð í skipunum
hafi komið henni á óvart, og eftir á
að hyggja hefði hún viljað að rann-
sóknin tæki á þessum þætti með
nákvæmari hætti. Hins vegar var
nákvæmlega útlistað í rannsókninni
til hvers væri verið að vísa til þegar
spurt var um einelti. Þess vegna gefi
niðurstöðurnar mikilvægar upp-
lýsingar um þætti í starfsumhverfi
sjómanna sem hafa neikvæð áhrif á
andlega heilsu þeirra og líðan.
Salóme bendir á að það sé vitað
mál að afleiðingar eineltis geti verið
mjög alvarlegar. Það ætti að vera
forgangsmál sjávarútvegsfyrirtækja,
eins og annarra fyrirtækja, að taka
rétt á einelti og sporna gegn því.
„Einelti getur haft áhrif á öryggi á
vinnustöðum og valdið samskipta-
örðugleikum milli starfsmanna
þegar hættuástand skapast, sem
óvíða eru verri fréttir en um borð í
skipi,“ segir Salóme.
svavar@frettabladid.is
Einelti algengt meðal sjómanna
Af 132 sjómönnum sem tóku þátt í nýlegri rannsókn höfðu tæplega 40 prósent orðið fyrir eða upplifað
einelti frá vinnufélögum um borð. Sama rannsókn í stóru verslunarfyrirtæki sýndi tíu sinnum lægra hlutfall.
DANmÖrK Sex tannlæknar í Viborg
í Danmörku hafa stofnað félagið
Samfélagslega meðvitaðir tann-
læknar og býður félagið heim-
ilislausum og öðrum sem þurfa
endurgjaldslausa þjónustu. Koma
tannlæknarnir til viðskiptavinanna
með tannlæknastofu á hjólum.
Danska ríkisútvarpið hafði það
eftir einum tannlæknanna að von-
andi væri hægt að laga tennur
sumra þannig að þeir treystu sér
til að sækja um vinnu. Skemmdar
tennur væru oft hindrun. – ibs
Gera við tennur
heimilislausra
sAmfélAg Íslendingum fjölgaði
um eitt prósent í fyrra eða um
3.429 manns og eru orðnir 332.529
talsins. Þetta kemur fram á vef Hag-
stofunnar. Fjölgunin er í takt við
meðalfólksfjölgun í heiminum sem
er 1,2 prósent samkvæmt Alþjóða-
bankanum.
Fólksfjölgun var á öllum land-
svæðum nema þremur. Mest fækk-
aði á Vestfjörðum. Einnig fækkaði á
Norðurlandi vestra og Austurlandi.
Fjölgunin var hlutfallslega mest
á Suðurnesjum en þar var 2,2 pró-
senta fjölgun. – srs
Fólki fækkar á
Vestfjörðum
Einelti getur haft
áhrif á öryggi á
vinnustöðum og valdið
samskiptaörðugleikum milli
starfsmanna þegar hættu-
ástand skapast.
Salóme Rut Harðardóttir, íþrótta- og
heilsufræðingur
Stöðugt andlegt álag
l Einelti á vinnustað er skilgreint
sem áreitni, móðgun, útilokun,
særandi sérmeðferð eða nei-
kvæð áhrif á vinnu annarra
starfsmanna.
l Einelti er ferli sem stigmagnast
og veldur mjög mikilli and-
legri vanlíðan þolandans þar
sem honum finnst hann ekki
geta varið sig fyrir stanslausu
neikvæðu athæfi. Þetta á sér þá
stað oft og reglulega og yfir langt
tímabil. Ekki er einelti ef jafnokar
eigast við eða ef um einstakan
atburð er að ræða.
l Rannsóknir sýna að margir
sjómenn finna fyrir stöðugu and-
legu álagi við vinnu sína; vegna
veðurfars, hávaða, mikilla vinnu-
krafna, vaktavinnu og langrar fjar-
veru frá fjölskyldu og vinum sem
getur reynt verulega á andlega
heilsu þeirra.
Heimild: Salóme Rut Harðardóttir,
Lífsánægja og starfsumhverfi sjó-
manna, Háskóli Íslands 2015
Depurð, kvíði og svefnleysi var staðfest í svörum sjómannanna. fréttablaðið/hari
fækkunin er mest á Vestfjörðum.
fréttablaðið/rósa JóhannsDóttir
1 4 . m A r s 2 0 1 6 m á N U D A g U r10 f r é t t i r ∙ f r é t t A b l A ð i ð