Fréttablaðið - 14.03.2016, Page 14
Stærstu úrslitin Það kom flestum í
opna skjöldu að Watford skyldi
skella Arsenal í bikarnum og það á
útivelli. Arsenal mun því ekki verja
bikarinn í ár og pressa á Arsene
Wenger, stjóra Arsenal, minnkaði
lítið við þessi úrslit.
Hetjan Chelsea afþakkaði starfs-
krafta Romelu Lukaku á sínum
tíma og hann launaði félaginu
lambið gráa um helgina. Skoraði
þá tvö mörk gegn Chelsea og sá
til þess að Everton komst áfram í
bikarkeppninni.
Kom á óvart Norwich er ekki búið
að gefast upp í botnbaráttunni og
nældi í afar mikilvægt stig gegn
Man. City. Norwich er þó enn í
fallsæti en þetta stig gæti reynst
drjúgt í lokin.
Í dag
19.50 Leicester - Newcastle Sport
22.00 Messan Sport
Olís-deild karla
19.30 ÍR - Afturelding Austurberg
19.30 Valur - Víkingur Valshöllin
19.30 Fram - FH Framhús
19.30 Haukar - Grótta Schenkerh.
Lengjubikar karla
18.00 Valur - ÍBV Valsvöllur
ARoN SkoRAði í fyRStA LEik
fjölnismaðurinn Aron Sigurðar-
son hóf atvinnumannsferil sinn
með stæl í gær er hann skoraði
fyrir tromsö í 1-1 jafntefli gegn
Molde. Hann sólaði sig í gegnum
vörn Molde og lagði boltann í
gegnum klofið á markverði Molde.
Eiður Smári Guðjohnsen lék
sinn fyrsta leik fyrir Molde og var
í byrjunarliðinu. Hann var tekinn
af velli á 66. mínútu við dynjandi
lófatak. Stuðningsmenn Molde
augljóslega þegar komnir með nýja
hetju.
Nýjast
Aston Villa 0 – 2 Tottenham
Bournemouth 3 – 2 Swansea
Stoke 1 – 2 Southampton
Norwich 0 – 0 Man. City
Efst
Leicester 60
Tottenham 58
Arsenal 52
Man. City 51
West Ham 49
Neðst
Swansea 33
Sunderland 25
Norwich 25
Newcastle 24
Aston Villa 16
Enska úrvalsdeildin
Enska bikarkeppnin
Man. Utd - West Ham 1-1
0-1 Dimitri Payet (68.), 1-1 Anthony Martial
(83.).
Arsenal - Watford 1-2
0-1 Odion Ighalo (50.), 0-2 Adléne Guedio-
ura (63.), 1-2 Danny Welbeck (88.).
Everton - Chelsea 2-0
1-0 Romelu Lukaku (77.), 2-0 Romelu
Lukaku (82.)
Gylfi Þór Sigurðsson er algjörlega óstöðvandi á EM-árinu mikilvæga
Enn einu markinu fagnað Gylfi Þór Sigurðsson fagnar hér marki sínu gegn Bournemouth um helgina. Það var sjöunda mark Gylfa Þórs á árinu en
hann er næstmarkahæstur á Englandi á árinu. Aðeins Sergio Aguero hefur skorað fleiri mörk í ár. NORdiC pHOtOs/GEtty
Undankeppni EM
Ísland - sviss 20-19
Ísland: Ramune Pekarskyte 3 (7), Thea Im-
ani Sturludóttir 3 (7), Sunna Jónsdóttir 2 (2),
Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir 2/2 (3/2),
Solveig Lára Kjærnested 2 (4), Þórey Anna
Ásgeirsdóttir 2 (4), Arna Sif Pálsdóttir 2 (5),
Karen Knútsdóttir 2/1 (7/2), Hildigunnur
Einarsdóttir 1 (2), Steinunn Hansdóttir 1 (2),
Hildur Þorgeirsdóttir (1).
Varin skot: Florentina Grecu-Stanciu 25/1
(44/2, 57%).
staðan:
Frakkland 8
Þýskaland 4
Ísland 2
Sviss 2
Handbolti „Eins og leikurinn
þróaðist þá áttum við að vera að
löngu búin að gera út um þennan
leik. Við klúðruðum örugglega
20 dauðafærum í leiknum,“ segir
Ágúst Þór Jóhannsson, þjálfari
kvennalandsliðsins, eftir nauman
20-19 sigur á Sviss í gær.
Ramune Pekarskyte skoraði sig-
urmark liðsins en stjarna leiksins
var florentina Stanciu sem varði
25 skot í íslenska markinu og var
með hátt í 60 prósent markvörslu.
Geggjuð frammistaða.
Þarf margt að ganga upp
Þetta var fyrsti sigur íslenska liðs-
ins í undankeppni EM. Liðið var
búið að tapa þrem leikjum í röð
áður en kom að leiknum í gær.
Stelpurnar eiga því enn möguleika
á að komast áfram en sú von er þó
veik enda eru hin liðin í riðlinum
mun sterkari en Sviss.
„Það þarf margt að ganga upp ef
við eigum að fara áfram. Ef þessi
leikur hefði tapast þá væri þetta
búið. Það var mjög jákvætt að ná
í sigur eftir það sem á undan var
gengið.“
Ágúst segir að það eigi sínar
skýringar af hverju hafi ekki gengið
betur í þessari undankeppni en
raun ber vitni.
„Við höfum ekki mikið viljað tala
um það en það vantar sterka leik-
menn í liðið. Leikmenn eins og Rut
Jónsdóttur og Birnu Berg Haralds-
dóttur sem eru sterkar skyttur. Það
munar um það og svo vantar Þór-
eyju Rósu líka. Breiddin er ekkert
svakalega mikil en til framtíðar þá
er fullt af flottum leikmönnum að
koma upp. Það er heilmikil framtíð
í þessu liði,“ segir Ágúst.
Viljað komast oftar áfram
Stelpurnar komust í lokakeppni
stórmóts árin 2010, 2011 og 2012.
Síðan hefur ekki gengið að koma
liðinu alla leið. Er ísland að dragast
aftur úr öðrum liðum í kvennabolt-
anum?
„Auðvitað hefðum við viljað vera
inni á fleiri stórmótum. Við vorum
mjög nálægt því fyrir síðasta EM.
Við erum aðeins að narta í hælana
á hinum liðunum en auðvitað
hefðum við viljað vera oftar með á
stórmótum,“ segir landsliðsþjálfar-
inn. En hvað þarf til að koma liðinu
aftur í hóp þeirra bestu?
Vantar fleiri atvinnumenn
„Við þurfum að fá fleiri sterka leik-
menn. Við vorum með fleiri stelpur
að spila erlendis og það hafa leik-
menn verið að koma heim aftur.
Þær stelpur sem eru að spila úti
eru að æfa með betri leikmönnum
og allar æfingar eru erfiðari. Mitt
mat er að við þurfum að koma
fleiri stelpum út sem eru að kom-
ast í landsliðsklassa. Stelpur eins og
Hrafnhildur Hanna, thea og fleiri
stelpur. Það mun síðan auka gæðin
í landsliðinu. Það að við séum án
sterkra leikmanna núna eykur
samt breiddina í landsliðinu núna
sem er mjög gott til lengri tíma
litið.“
Hættir hann í sumar?
Ágúst er með samning við HSí fram
á sumarið en hann hefur verið við
stjórnvölinn hjá landsliðinu síðan
2011. Heyrst hefur að hann ætli sér
að hætta með liðið er samningur-
inn rennur út.
„Ég er nú bráðum búinn að vera
með liðið í sex ár. Við munum
skoða það og það er ekki tímabært
að ræða þessi mál núna. Á ein-
hverjum tímapunkti þarf samt að
skipta um þjálfara,“ segir Ágúst og
þverneitaði að ræða frekar um að
hann væri að hætta.
henry@frettabladid.is
Þurfum að fá fleiri stelpur út
Ágúst Jóhannsson landsliðsþjálfari segir að það sé bjart fram undan hjá íslenska kvennalandsliðinu. Efni-
legir leikmenn séu að koma upp en það vanti fleiri atvinnumenn. Ágúst hættir líklega með liðið í sumar.
Það er ekki tíma-
bært að ræða þessi
mál núna en á einhverjum
tímapunkti þarf samt að
skipta um þjálfara.
Ágúst Þór Jóhannsson
Nýliðinn thea imani sturludóttir átti virkilega flotta innkomu í íslenska liðið í gær.
Hún skoraði þrjú mörk og var órög við að taka af skarið. FRéttABLAðið/ERNiR
1 4 . M a r S 2 0 1 6 M Á n U d a G U r14 S p o r t ∙ F r É t t a b l a ð i ð
sport