Fréttablaðið - 14.03.2016, Page 41

Fréttablaðið - 14.03.2016, Page 41
Nanna Kristín og Atli Rafn í hlutverkum Elsu og Hrings. KviKmyndir reykjavík HHHHH Leikstjóri og handritshöfundur: Ásgrímur Sverrisson Framleiðendur: Ingvar Þórðarson og Júlíus Kemp Myndataka: Nestor Calvo Klipping: Ragnar Vald Ragnarsson Tónlist: Sunna Gunnlaugsdóttir Aðalleikarar: Atli Rafn Sigurðarson, Nanna Kristín Magnúsdóttir, Guð- mundur Ingi Þorvaldsson og Gríma Kristjánsdóttir Ásgrímur Sverrisson hefur getið sér gott orð sem einn helsti kvik­ myndamógúll Íslands, hann er ritstjóri vefritsins klapptre.is og hefur fengist við ýmislegt eins og dagskrárstjórn Bíós Paradísar og umsjón Stuttmyndadaga. Færri vita þó að hann er menntaður kvikmyndagerðarmaður og hefur gert stuttmyndir, tónlistarvídeó og stuttar heimildarmyndir og leikstýrði einum af fimm hlutum myndarinnar Villiljóss. En það er fyrst núna sem Ásgrímur sendir frá sér mynd í fullri lengd, myndina Reykjavík. Hún segir frá Hring (Atli Rafn Sigurðarson) sem rekur kvikmynda­ búð í miðbæ Reykjavíkur. Hringur er kvæntur Elsu (Nanna Kristín Magnúsdóttir) og saman eiga þau dóttur og hafa nýlega fundið draumaíbúðina. En brestir koma í sambandið þegar í ljós kemur að Hringur er stórskuldugur og rekstur kvikmyndabúðarinnar er í hættu. Hringur og Elsa neyðast til að endur skoða líf sitt og samband og slíta á endanum samvistum. Hér er á ferðinni mikill óður til kvikmyndalistarinnar og myndin er full af beinum og óbeinum kvik­ myndavísunum og þá helst í Woody Allen og myndir frönsku nýbylgj­ unnar (búð Hrings heitir Ameríska nóttin, eftir mynd Francois Truff­ aut). Myndin er svolítið eins og dæmigerð Woody Allen ræma, eins og Manhattan með dassi af Annie Hall og svo smá slettu af frönsku nýbylgjunni. Sjónrænn stíll myndar­ innar er þó tiltölulega hefðbundinn. Það má greina vott af tilgerð hérna en hún skrifast þó að mestu á að aðalhetjan er svolítið til­ gerðarlegur náungi, sem lærir þó í myndinni að vera aðeins minna tilgerðarlegur. Reykjavík er smá tíma að komast í gang og hún er svolítið stirð í upphafi. En smám saman nær hún manni og má segja að þetta sé ein af þessum myndum sem verða betri er líður á. Fyrst er hún bara ágæt en um miðbikið nær hún mjög góðu flugi og verður bráð­ skemmtileg. Ásgrímur sýnir með þessari mynd að hann hefur ágætis hæfileika bak við myndavélina og er fínasti penni, en hann hafði einnig vit á því að fylla myndina af góðum leikurum og fékk auk þess gamlan vin sinn úr kvikmyndanáminu, Spánverja að nafni Nestor Calvo, til að skjóta myndina. Myndin var gerð fyrir lítinn pening en maður finnur lítið fyrir því þar sem tæknivinnsla er yfirhöfuð ágætlega vönduð. Leikararnir standa sig flestir mjög vel. Atli Rafn Sigurðarson hefur löngu sannað að hann er toppleikari og hér heldur hann því áfram. Honum tekst að skapa mjög sannfærandi og þrívíðan karakter og maður kaupir hann alveg sem þennan sjálfumglaða og bitra kvik­ myndalúða (fyrir utan húðflúrin hans Atla sem eru ekki alveg í takti við persónuna). Einnig má minnast á hina ungu Grímu Kristjánsdóttur sem hefur lítið sést á hvíta tjaldinu hingað til en þarna er greinilega á Kvikmyndalúði í tilvistarkreppu ferðinni mjög efnileg og skemmtileg leikkona. Reykjavík er í heildina skemmtileg og ljúfsár mynd þótt hún nái ekki alveg sömu hæðum og áhrifavald­ arnir, enda var svo sem ekki að búast við því að hérna væri á ferðinni önnur Manhattan. Myndin er bæði smá­ tíma að komast í gang og sömuleiðis hefði endirinn getað verið sterkari. Lokakaflinn er alls ekki slæmur en það hefði kannski mátt hnýta hlut­ ina saman á knappari máta, manni finnst á einum tímapunkti eins og myndin sé búin en svo heldur hún áfram lengur og segir kannski aðeins meira en hún þurfti að gera. Annað sem má aðeins hnýta í er að þótt myndinni takist að sýna fegurð Reykjavíkur og sé hin fínasta Reykjavíkurmynd þá hefði e.t.v. mátt nýta borgina enn betur. En þetta skrifast þó líklega á lágan kostnað við myndina. Atli Sigurjónsson niðurstaða: Myndin er svolítið stirð í byrjun og endirinn hefði getað verið sterkari en annars er hér á ferðinni bráð- skemmtileg og ljúfsár dramedía og hinn ágætasti óður til kvikmyndasögunnar. Hér er á ferðinni mikill óður til kvikmyndalistarinnar og myndin er full af beinum og óbeinum kvikmyndavísunum. HEIMILISM ATUR Tímalaus máltíð ORA Heimilismatur lætur tímann og hjartað ráða för því réttirnir eru tilbúnir á aðeins örfáum mínútum. Ljúengir, hollir og ölbreyttir réttir fyrir alla ölskylduna. Ding og maturinn er tilbúinn. V E R T m e n n i n g ∙ F r É t t a B L a ð i ð 21m Á n u d a g u r 1 4 . m a r s 2 0 1 6

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.