Fréttablaðið - 14.03.2016, Qupperneq 45
Glært
lok
Rauður
borði
KOLVETNASKERT
Þú þekkir það á rauðu röndinni og glæra lokinu
Þitt er valið
ms.is/thittervalidH
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
-
1
6-
02
28
KOLVETNA
SKERT
ur. Bein og líkamspartar hafa þann-
ig verið ofarlega á baugi hjá okkur,“
segir hún og hlær. Helga segir upp-
lifunina að heimsækja katakombu
eða neðanjarðargrafhvelfingu í
Perú hafa verið magnaða. „Þetta eru
svona neðanjarðargrafhvelfingar
þar sem mannabeinum er safnað
saman í eins konar fjöldagröf.
Beinin eru flokkuð eftir tegund
þannig að öllum hauskúpunum er
raðað saman, lærleggjunum saman
o.s.frv. og síðan er þeim raðað upp í
form, til dæmis hringi. Uppröðunin
á þessum líkamsleifum er svo frík-
uð og svo áhugavert að skipuleggja
fjöldagrafir á þennan hátt, að búa
til hálfgert verk úr mannabeinum,
það er eiginlega súrrealískt að
hugsa um að þetta hafi verið lifandi
fólk eins og ég og þú,“ bendir hún á.
Helga segir þau Orra sannarlega
njóta þess að hræra upp í því list-
formi sem þau einskorða sig við
dags daglega. Gullsmiðsaugað er þó
líklega sjaldan í pásu lengi í einu,
því Helga segir verkið sem þau
sýndu á HönnunarMars mögulega
geta gefið tóninn fyrir komandi
skartgripalínu hönnunarteymisins.
„Þetta er líklega að einhverju leyti
það sem koma skal í línunni sem
kemur út með haustinu. Við erum
enn að vinna úr öllum þessum hug-
myndum,“ segir hún að lokum.
gudrun@frettabladid.is
500 g kotasæla
200 g spínat
1 msk. ólífuolía
3 msk. basilíka, smátt söxuð
2 hvítlauksgeirar, smátt saxaðir
3 – 4 msk. rifinn parmesanostur
Rifinn mozzarellaostur
Tómatapassata frá Sollu, ca. hálf
krukka
¾ dós af söxuðum tómötum frá
Heinz, með hvítlauk, oreganó og
basilíku.
2 tsk. tómatpúrra
Salt og nýmalaður pipar
Hitið olíu á pönnu við vægan hita.
Saxið hvítlaukinn smátt og mýkið
hann á pönnunni.
Bætið spínatinu saman við, leyfið
að malla á pönnunni í tvær mín-
útur. Kryddið til með salt og pipar.
Setjið kotasælu í skál og bætið spín-
ati (þerrið spínatið vel áður), basil-
íku og rifnum parmesanosti út í.
Sjóðið lasagne-plöturnar eða pasta-
rörin samkvæmt leiðbeiningum á
pakkanum, aðskiljið plötur eða
rör og setjið til hliðar undir
rakan klút.
Setjið 2-3 msk. af fyllingu á
hverja plötu.
Rúllið hverri plötu var-
lega upp, þekið botninn á
eldföstu móti með sósunni
og raðið rúllunum í eldfasta
mótið. Setjið inn í ofn við
180°C í 25- 30 mínútur eða þar til
osturinn er orðinn gylltur og fínn.
Uppskrift frá Evu Laufeyju Kjaran.
Spínat- og ostafyllt cannelloni
Orri og Helga voru afar sátt við
útkomuna.
L í f i ð ∙ f R É T T A B L A ð i ð 25M Á N U D A G U R 1 4 . M A R s 2 0 1 6