Fréttablaðið - 21.11.2015, Blaðsíða 49
smáauglýsingar
smaar@frettabladid.is / visir.is
512 5000
Afgreiðsla smáauglýsinga og sími
er opinn alla virka daga frá 8-17
Allar smáauglýsingar
vikunnar á visir.isv nna Allar atvinnuauglýsingar vikunnar á visir.isSölufulltrúar Viðar Ingi Pétursson vip@365.is 512 5426Hrannar Helgason hrannar@365.is 512 5441
- Ægir sjávarfang ehf -
Starfssvið: Hæfniskröfur:
Verkstjóri
Ægir sjávarfang framleiðir hágæða þorsklifur í tveim niðursuðuverksmiðjum á Íslandi, annars vegar í Grindavík og hins vegar í
Ólafsvík. Ægir sjávarfang er fjölskyldurekið fyrirtæki sem hefur starfað frá árinu 1995.
Ægir sjávarfang óskar eftir að ráða verkstjóra til starfa í verksmiðju félagsins í Grindavík. Leitað er að einstaklingi til stjórnunarstarfa
við framleiðslu á vörum félagsins þar sem reynir á skipulögð vinnubrögð og hæfni til mannlegra samskipta.
Daglegur rekstur verksmiðju félagsins í Grindavík. Samskipti
við birgja og eftirlitsaðila. Gerð framleiðsluskýrslna.
Viðkomandi þarf að hafa haldbæra þekkingu á fiskvinnslu. Þar til
gerð menntun æskileg. Ensku og tölvukunnátta skilyrði. Lipurð í
mannlegum samskiptum.
- Umsóknir skulu sendast á info@aegirseafood.is fyrir 15 desember 2015 -
Embætti forstöðumanns Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins sem starfar á grundvelli laga
nr. 83/2003, með síðari breytingum, er laust til umsóknar. Félags- og húsnæðismálaráðherra
skipar í embættið til fimm ára frá 1. janúar 2016.
Upplýsingar veita:
Bolli Þór Bollason,
skrifstofustjóri skrifstofu félagsþjónustu,
bolli.thor.bollason@vel.is
Leifur Geir Hafsteinsson
leifurgeir@hagvangur.is
Umsóknir óskast fylltar út á
www.hagvangur.is
Konur jafnt sem karlar eru hvattar
til að sækja um embættið.
Um laun og starfskjör fer samkvæmt
ákvörðun kjararáðs, sbr. lög um
kjararáð nr. 47/2006.
Umsóknarfrestur er til og
með 11. desember nk.
SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700
www.hagvangur.is
Hlutverk Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins
er m.a. að annast eftirfarandi:
1. Greiningu barna og ungmenna með alvarlegar þroskaraskanir
sem er vísað til athugunar að lokinni frumgreiningu.
2. Ráðgjöf og fræðslu til einstaklingsins, foreldra eða annarra
aðstandenda og þjónustuaðila varðandi viðeigandi meðferð,
þjálfun og önnur úrræði sem þörf er á.
3. Tilvísanir til annarra meðferðaraðila og stofnana í því skyni að
hlutaðeigandi njóti þar þeirrar þjónustu sem þörf er á hverju sinni.
4. Langtímaeftirfylgd vegna þeirra einstaklinga sem búa við óvenju
flóknar eða sjaldgæfar þroskaraskanir.
5. Faglega aðstoð og ráðgjöf til samstarfsaðila, t.d. varðandi uppbygg-
ingu og starfrækslu greiningar- og ráðgjafarþjónustu, menntun og
þjálfun starfsfólks, sérhæfðan tækjabúnað og aðgengi fatlaðra,
kannanir á högum og þörfum fatlaðra, umsögn um þjónustu og vistun.
6. Þróun, rannsóknir og fræðslu og þátttöku í alþjóðastarfi á sviði
stofnunarinnar.
• Forstöðumaður skal hafa háskólapróf og
sérþekkingu á sviði fatlana og þroskaraskana.
• Jafnframt er mikilvægt að viðkomandi hafi
leiðtogahæfileika, þekkingu og reynslu á sviði
stjórnunar og stefnumótunar.
• Sömuleiðis er æskilegt að hann hafi þekkingu
og reynslu af opinberri stjórnsýslu.
• Einnig þarf viðkomandi að búa yfir færni í að tjá
sig í ræðu og riti á íslensku, ensku og einu öðru
Norðurlandamáli.
• Auk þess þarf viðkomandi að sýna lipurð og
hæfni í mannlegum samskiptum.
Forstöðumaður Greiningar-
og ráðgjafarstöðvar ríkisins
Brunavarnir Árnessýslu eru reknar sem byggðasamlag, hluti af Héraðsnefnd Árnessýslu bs., og
eru aðildarsveitarfélög alls átta talsins. Starfssvæðið er Árnessýsla og virkjanasvæði við Þjórsá og
hafa öll slökkvilið í sýslunni verið sameinuð undir merkjum Brunavarna Árnessýslu.
Upplýsingar veitir:
Rannveig J. Haraldsdóttir
rannveig@hagvangur.is
Umsóknir óskast fylltar út á
hagvangur.is
Umsóknarfrestur er til og
með 6. desember nk.
Laun og starfskjör eru samkvæmt
gildandi kjarasamningi Sambands
íslenskra sveitarfélaga við
viðkomandi stéttarfélag.
Konur jafnt sem karlar eru hvattar til
að sækja um.
SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700
www.hagvangur.is
Starfssvið:
• Yfirumsjón og ábyrgð á rekstri og stjórnun
slökkviliðsins
• Ábyrgð á faglegri starfsemi slökkviliðsins
• Úttektir, eldvarnaeftirlit og stjórnun aðgerða
• Stefnumótun og áætlanagerð
• Ábyrgð á þjónustusamningum
• Samskipti við hagsmunaaðila
Hæfniskröfur:
• Umsækjandi skal hafa löggildingu sem slökkviliðsmaður skv. 17. gr. laga
nr. 75/2000 og hafa starfað að lágmarki í eitt ár í slökkviliði sem löggiltur
slökkviliðsmaður og/eða hafa háskólamenntun með sérmenntun í brunamálum
• Reynsla og/eða haldgóð þekking á stjórnun slökkviliðs æskileg
• Leiðtogahæfni
• Sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð
• Góð almenn tölvukunnátta og færni til að tjá sig í ræðu og riti
• Þjónustulund, jákvæðni og lipurð í mannlegum samskiptum
Brunavarnir Árnessýslu óska eftir
að ráða slökkviliðsstjóra
Brunavarnir Árnessýslu hafa 6 fasta starfsmenn og 115 hlutastarfandi slökkviliðsmenn. Starfsstöð er í
Björgunarmiðstöðinni við Árveg á Selfossi og eru reknar 7 minni stöðvar í sýslunni. Íbúar á starfssvæði
BÁ eru ríflega 15.000 en á svæðinu eru um 5.200 sumarhús, auk fjölda fyrirtækja.
Tölvunarfræðingur
Skrifstofa Alþingis óskar eftir að ráða
tölvunarfræðing með forritunarreynslu
til starfa. Sjá nánari upplýsingar á starfatorg.is.