Fréttablaðið - 21.11.2015, Blaðsíða 20
RANDALÍN, MUNDI OG AFTURGÖNGURNAR
ÞÓRDÍS GÍSLADÓTTIR OG ÞÓRARINN M. BALDURSSON
Fyrsta bók höfunda hlaut
Bóksalaverðlaunin
og Fjöruverðlaunin.
Þórarinn M. Baldursson myndskreytti.
SELJA
VEITINGASTAÐIR
KATTAKJÖT?
Þórdís GísladóttirFRÁBÆR BÓK
FYRIR 5-10 ÁRA
Í þau tæplega níu ár sem ég hef verið aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, hef ég
ferðast til margra staða víða um
heim þar sem afleiðingar lofts-
lagsbreytinga eru þegar farnar að
blasa við. Ég hef margoft rætt við
leiðtoga ríkja heims, forystumenn
í atvinnulífi og almenna borgara
um brýna þörf fyrir andspyrnu á
heimsvísu.
Hvers vegna er þetta mál mér
svo kært?
Í fyrsta lagi vegna þess að eins
og allir afar ber ég hag barna-
barnanna fyrir brjósti og vil að
þau njóti fegurðar og allsnægta
heilbrigðrar plánetu. Og eins og
allar manneskjur tek ég nærri mér
að sjá að flóð, þurrkar og eldsvoðar
færast í aukana, að eyþjóðir eigi
á hættu að missa land sitt og að
ófáar dýrategundir séu að hverfa.
Hans heilagleiki Frans páfi og
aðrir trúarleiðtogar hafa minnt
okkur á að það er siðferðileg
skylda okkar að sýna þeim sam-
stöðu sem eru fátækastir og
minnst mega sín og hafa í senn
gert minnst til að valda loftslags-
breytingum og verða fyrst og harð-
ast fyrir barðinu á þeim.
Í öðru lagi þá hef ég sem oddviti
Sameinuðu þjóðanna lagt áherslu
á loftslagsbreytingar vegna þess
að þær eru vandamál sem engin
þjóð getur glímt við upp á eigin
spýtur. Loftslagsbreytingar skeyta
ekki um vegabréf; losun á einum
stað veldur usla alls staðar. Þær
ógna lífi og lífsviðurværi um allan
heim. Efnahagslegur stöðugleiki
og öryggi þjóða eru í hættu, Sam-
einuðu þjóðirnar einar eru í stakk
búnar til þess að bregðast við
þessu einstaka hnattræna vanda-
máli sem krefst sameiginlegra and-
svara.
Farin að sjá árangur
Samningaviðræður fyrir Lofts-
lagsráðstefnu Sameinuðu þjóð-
anna í París (30. nóvember til 11.
desember) hafa gengið hægt og
treglega. En við erum farin að sjá
árangur. 166 ríki, sem í samein-
ingu standa fyrir 90% losunar efna
sem valda gróðurhúsaáhrifum,
hafa hlýtt kalli Sameinuðu þjóð-
anna og skilað landsmarkmiðum
í loftslagsmálum. Ef þessum áætl-
unum verður hrint í framkvæmd
á árangursríkan hátt, munu þær
draga úr hækkun hitastigs, þannig
að hækkunin yrði um það bil þrjár
gráður á Celsius um aldarlok.
Þetta eru talsverðar framfarir.
En þetta er ekki nóg. Það sem við
þurfum að gera nú er að spýta í
lófana og minnka losun í heim-
inum meir og hraðar, þannig að
við höldum hækkun hitastigs í
heiminum innan tveggja gráða á
Celsius.
Um leið verðum við að styðja
við bakið á ríkjum til þess að
aðlagast óumflýjanlegum afleið-
ingum loftslagsbreytinga sem
þegar eru farnar að koma í ljós.
Því fyrr sem við bregðumst við,
því betra fyrir alla; í veði eru auk-
inn stöðugleiki og öryggi; öflugri
og varanlegri hagvöxtur, aukinn
viðnámsþróttur gegn áföllum;
hreinna loft og vatn; bætt heilsa.
Þetta mun ekki takast á skömm-
um tíma. Loftslagsráðstefnan í
París er ekki endastöð. Niður-
stöður hennar eru ekki hámark
heldur lágmark, gólf en ekki þak.
Hún ætti að vera vendipunktur á
leið okkar í átt til minni losunar
og aukins viðnámsþróttar gagn-
vart loftslagsbreytingum.
Nú er komið að ríkisstjórnum
Um allan heim er verið að fylkja
liði. Borgir, fyrirtæki og fjárfestar,
trúarleiðtogar og almennir borg-
arar leggja sín lóð á vogarskálarnar
til að minnka útblástur og auka
viðnámsþrótt. Nú er komið að
ríkisstjórnum að ganga frá inni-
haldsríku, bindandi samkomu-
lagi í París til þess að setja skýrar
reglur og finna auknum metnaði
heimsins farveg. Til að svo megi
verða, verða samningamenn að fá
skýrar leiðbeiningar að ofan.
Ég tel að þessa sé að vænta. Leið-
togar G20 ríkjanna, sem hittust að
máli fyrir skemmstu í Antalya í
Tyrklandi, hétu aðgerðum í lofts-
lagmálum. Og meira en 120 leið-
togar ríkja og ríkisstjórna hafa
staðfest þátttöku í fundinum í
París, þrátt fyrir auknar áhyggjur
af öryggi í kjölfar hryðjuverka-
árásanna.
Ég tel að niðurstöður Parísar-
fundarins verði að einkennast af
fjórum þáttum eigi hann að teljast
árangursríkur en þeir eru varan-
leiki, sveigjanleiki, samstaða og
trúverðugleiki.
Við skulum fyrst líta á varan-
leikann. Parísarfundurinn verður
að komast að niðurstöðu í sam-
ræmi við það langtímamarkmið
að halda hlýnun jarðar innan
tveggja gráða á Celsius. Þá ber að
senda skýr skilaboð til markaðar-
ins um að það sé ekki aðeins óhjá-
kvæmilegt að hagkerfi heimsins
verði kolefnasnautt, heldur sé sú
jákvæða vegferð þegar hafin.
Í öðru lagi ber samkomulaginu
að fela í sér sveigjanleika til þess
að ekki þurfi sífellt að semja upp
á nýtt. Það verður að vera hægt
að taka tillit til breytinga í hag-
kerfi heimsins og mynda jafnvægi
á milli forystu þróaðra ríkja og
aukinnar ábyrgðar þróunarríkja.
Í þriðja lagi verður samkomu-
lagið að sýna í verki samstöðu
meðal annars í krafti fjármagns-
og tækniflutninga til þróunarríkja.
Þróuðum ríkjum ber að standa við
fyrirheit um að 100 milljörðum
Bandaríkjadala sé varið árlega,
ekki síðar en 2020, til aðlögunar
og mildunar á áhrifum loftslags-
breytinga.
Í fjórða lagi ber að komast að
trúverðugu samkomulagi um
að bregðast við sífellt auknum
afleiðingum loftslagsbreytinga.
Það verður að gera ráð fyrir að
ríkisstjórnir endurmeti og efli
landsmarkmið sín á fimm ára
fresti í takt við kröfur vísinda. Í
Parísarsamkomulaginu verða að
vera ákvæði um gagnsæja og öfl-
uga ferla til að meta, fylgjast með
og gera grein fyrir árangri.
Sameinuðu þjóðirnar eru reiðu-
búnar til að styðja ríki í að hrinda
slíkum samningi í framkvæmd.
Skýr boðskapur
Innihaldsríkt samkomulag í París
mun stuðla að betri morgundegi.
Það mun greiða fyrir upprætingu
fátæktar, hreinsun andrúmslofts-
ins og verndun sjávar og eflingu
almenns heilbrigðis, skapa störf
og leysa grænar lausnir úr læðingi.
Þá mun það glæða vonir um að
Heimsmarkmiðunum um sjálf-
bæra þróun verði náð. Þetta eru
ástæðurnar fyrir því að ég tel lofts-
lagsbreytingar svo mikilvægar sem
raun ber vitni.
Boðskapur minn til leiðtoga
heimsins er skýr: árangur Parísar-
fundarins er á ykkar ábyrgð. Stund
heilbrigðrar skynsemi, málamiðl-
ana og einhugar er runnin upp.
Það er kominn tími til að líta út
fyrir þrönga hagsmuni einstakra
þjóða og hafa hagsmuni heildar-
innar að leiðarljósi. Íbúar heims-
ins og komandi kynslóðir treysta
á framsýni ykkar og hugrekki til að
grípa sögulegt tækifæri.
Það sem ég vonast eftir á
Parísarfundinum
Ban Ki-moon
aðalframkvæmda-
stjóri Sameinuðu
þjóðanna
Boðskapur minn til leiðtoga
heimsins er skýr: árangur
Parísarfundarins er á ykkar
ábyrgð. Stund heilbrigðrar
skynsemi, málamiðlana og
einhugar er runnin upp.
2 1 . n ó v e m b e r 2 0 1 5 L A U G A r D A G U r20 s k o ð U n ∙ F r É T T A b L A ð i ð