Fréttablaðið - 22.07.2017, Blaðsíða 62
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is,
Hafsteinn Hafsteinsson hafsteinn@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI
512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Ólafur H. Hákonarson olafurh@365.is, FÓLK OG
SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
Lífið í
vikunni
16.07.17-
22.07.17
ÍHUGAR AÐ EIGNAST BARN
MEÐ GJAFASÆÐI
Sigríður Lena er 32 ára og barn-
laus. Hún er ekki í sambandi
en finnur fyrir löngun til að
eignast börn. Hún íhugar að
stofna fjölskyldu ein með
því að þiggja gjafasæði og
veit um konur í sömu
pælingum. Sigríður ætlar
að taka sér ár í að hugsa
málið. „Ég ætla að sjá
hvort eitthvað breytist í
ástamálunum en ef ekki
þá er þetta næsta skref
sem ég mun sennilega
taka.“
HÖGNI OG ERASED TAPES Í
EINA SÆNG
Söngvarinn
Högni
Egilsson
skrifaði ný-
verið undir
samning
við breska
plötufyrirtækið
Erased Tapes og í
haust kemur út fyrsta sólóplatan
hans. Hann segir ómetanlegt að
finna gott plötufyrirtæki til að
vinna með því slíkt fyrirtæki geti
verið eins og fjölskylda.
FARA 10 KÍLÓMETRA FYRIR
VIN SINN
Parið Þorbjörg Marinósdóttir,
betur þekkt sem Tobba, og Karl
Sigurðsson ætla að hlaupa 10 kíló-
metra í Reykjavíkurmaraþoninu í
ágúst til styrktar vini sínum, leikar-
anum Stefáni Karli Stefánssyni,
sem glímir við krabbamein.
SJÁLFLÆRÐIR Á HLJÓÐ-
FÆRIN
Bræðurnir Egill og Bjarki Hreinn
Viðarssynir skipa bandið Andy
Svarthol. Það vekur athygli að
þeir eru sjálflærðir á hljóðfærin.
„Möguleikarnir eru miklir og
upplýsinga-
flæðið er
endalaust
á netinu,
maður getur
lært hvað
sem er.“
Aðeins 59.940 kr.
SILKEBORG
hægindastóll
með skemli
Stillanlegur hægindastóll.
með skemli. Dökkbrúnt
eða svart leður.
Fullt verð: 99.900 kr.
40%
AFSLÁTTUR
ÚTSALA
Afgreiðslutími Rvk
Mánudaga til föstudaga kl. 10–18
Laugardaga kl. 11–17
Sunnudaga kl. 13–17 (Smáratorgi)
www.dorma.is
Holtagörðum, Reykjavík
Smáratorgi, Kópavogi
Dalsbraut 1, Akureyri
Skeiði 1, Ísafirði
Sumar
útsalan
ALLT AÐ
60%
AFSLÁTTUR
Nature’s SUPREME
160 x 200 cm
Fullt verð: 134.900 kr.
• Svæðaskipt
pokagormakerfi
• Burstaðir stálfætur
• Sterkur botn
• 320 gormar pr. m2
• Vandaðar kantstyrkingar
Fullt verð: 149.900 kr.
Aðeins 104.930 kr.
Nature’s SUPREME
180 x 200 cm
NATURE’S SUPREME
heilsurúm m/Cassic botni
Val um svart eða hvítt PU leður
eða grátt áklæði á Classic botni.
Aðeins 94.430 kr.
30%
AFSLÁTTUR
ÚTSALA
af 160 x 200 og
180 x 200 cm
Sigríði Kling dreymdi um að verða prestur þegar hún var lítil því hana langaði að gifta og skíra. Og nú hefur draumurinn ræst. „Málið er að þegar ég
var lítil stelpa í sveit á Snæfellsnesi
þá ætlaði ég alltaf að verða prestur.
En svo var þetta kannski dálítið
strembið, að fara í latínuna,“ segir
Sigríður, eða Sigga, og hlær.
„En svo æxlaðist það þannig, fyrir
fimm árum, að ég skírði fyrsta barn-
ið,“ segir Sigga sem hefur síðan þá
skírt nokkur börn og gefið nokkur
pör saman.
„Mér finnst alveg ótrúlega gaman
að gamall draumur hafi ræst. Ég
elska allt svona og í dag vinn ég
sem prestur á minn hátt. Ég vil með
húmor og góðum setningum gleðja
fólk, það er mitt aðaltakmark,“ segir
Sigga eða séra Sigga eins og sumir
kalla hana núna.
Sigga kveðst hafa gleði og kærleik
að vopni í þeim athöfnum sem hún
stýrir. „Ég vil að allir taki þátt og ég
geri þetta allt saman í nafni ástar,
kærleika og almættisins.“
Íslendingar bíða of lengi
Sigga upplifir að sífellt fleira fólk
vill gifta sig með óhefðbundnu
sniði. „Það er mikilvægt að það sé
boðið upp á fjölbreytni svo að fólk
hafi val um hvernig það lætur pússa
sig saman. Og ég vil gera hlutina
skemmtilega! En ég tek fram að auð-
vitað er fullt af fólki sem giftir pör á
skemmtilegan en líka hefðbundinn
hátt.
Svo finnst mér líka verða að vera
pláss fyrir að fólk geti gift sig án
þess að gifta sig formlega á pappír,
frammi fyrir sýslumanni. Það ætti
að vera nóg að hafa bara staðfest-
ingarathöfn um að fólk sé saman.
Þá getur fólk gift sig bara fyrir hvort
annað í staðinn fyrir að láta praktísk
atriði ráða ferðinni.“
Sigríður er þeirrar skoðunar að
Íslendingar bíði of lengi með að
ganga í hjónaband vegna þess að
það sé flókið og að fólk mikli hlut-
ina fyrir sér. „Ég veit um fólk sem
hefur haldið svona staðfestingar-
brúðkaup og það ætti bara að vera
nóg. Það er samt ekki næg virðing
borin fyrir því að fólk sé saman án
þess að vera gift fyrir sýslumanni.
Þegar fólk er búið að vera saman í
fleiri fleiri ár og búið að búa saman,
þá á það að fá sömu réttindi og gift
hjón. Æ, nú er ég komin út í póli-
tík. Ég er svo pólitísk,“ segir hún og
skellir upp úr.
Spurð út í hvort hún sé trúuð
segir Sigga: „Ég er trúuð en ég gifti
fólk ekki með mjög trúarlegu sniði,
nema að fólk biðji um það. Ég vil
bara að gleðin sé við völd. Ég trúi á
hið góða, á jörðina og alheiminn og
guð í því.“
gudnyhronn@365.is
Leggur áherslu á gleði
í athöfnum sínum
Þegar Sigga Klingenberg var lítil dreymdi hana um að verða prestur
og gifta pör og skíra börn. Draumurinn rættist og í dag stýrir hún
reglulega gleðilegum athöfnum þar sem kærleikur ræður ríkjum.
Gamall draumur Siggu Klingenberg hefur ræst. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
ÉG GERI ÞETTA ALLT
SAMAN Í NAFNI
ÁSTAR, KÆRLEIKA OG ALMÆTT-
ISINS.
2 2 . J Ú L Í 2 0 1 7 L A U G A R D A G U R42 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð