Fréttablaðið - 22.07.2017, Blaðsíða 46

Fréttablaðið - 22.07.2017, Blaðsíða 46
Á EM 2013 voru þetta mestmegnis fjöl-s k y l d u m e ð l i m i r , ömmur og afar, mömmur og pabbar og það voru ennþá færri árið 2009. Þetta er alveg geggjað og það er fullt af fólki sem maður þekkir ekki neitt,“ sagði Rakel Hönnudóttir í samtali við vefsíðuna fótbolta.net í vikunni. „Ég held að í heildina hafi þrjátíu eða fjörutíu manns farið út fyrir átta árum, það er dálítið annað en núna,“ sagði Ásdís Gísladóttir í viðtali við Fréttablaðið fyrir mótið í ár. Allra augu eru nú á íslenska lands- liðinu í knattspyrnu sem spilar á EM kvenna í Hollandi. Samkvæmt frétt RÚV voru 93% þeirra, sem horfðu á sjónvarp á meðan leikurinn stóð yfir, með stillt á leikinn. Um 3.000 Íslend- ingar eru í Hollandi að hvetja liðið áfram og vakti víkingaklappið sem fyrr mikla athygli þegar það var tekið í stúkunni gegn Frökkum. Gífurlegur áhugi er á landsliðinu og leikmönn- um þess. Fréttamiðlar keppast við að segja fréttir af öllu sem viðkemur leikmönnum og stuðningsneti þeirra og eru þær lesnar upp til agna. Það datt allt í dúnalogn hér á landi þegar Ísland lék gegn Frökkum í leik sem tapaðist á umdeildri vítaspyrnu. Fjölskyldur og vinir hittust um allt land og sendu góða strauma út. Allir höfðu skoðun á ítalska dómaranum og leikaraskap frönsku dívunnar. En það er ekki langt síðan að áhuginn, umfjöllun og annað var mun minna í sniðum. EM 2009 Þetta er í þriðja sinn sem íslenska kvennalandsliðið kemst á EM. Fyrst komst liðið á EM árið 2009. Þá var Sigurður Ragnar Eyjólfsson þjálfari og komust 11 önnur lið inn á mótið. Þá, eins og nú, var opnunarleikurinn gegn Frökkum og tapaðist 3:1. Hólm- fríður Magnúsdóttir skoraði markið. Ísland var í B-riðli ásamt Frökkum, Þjóðverjum og Norðmönnum og komust öll liðin áfram í 8-liða úrslit nema Ísland. Í kringum 10 starfsmenn voru í teymi KSÍ sem fór til Finnlands. Fréttablaðið sendi einn blaða- mann en engan ljósmyndara. Það er því erfitt að finna efni og myndir frá mótinu. Ein besta heimild um mótið er heimildarmyndin Stelpurnar okkar. Ekki voru margir áhorfendur frá Íslandi á mótinu, flestir fjölskyldu- meðlimir leikmanna. Í aðdraganda mótsins var lítil upphitun og stelp- urnar fengu bláan íþróttagalla frá KSÍ til að klæðast. Í helgarblaði Fréttablaðsins nokkrum dögum fyrir mót var ein síða með við- tali við Ásthildi Helgadóttur. Mótið kom og mótið fór. Stelpurnar fengu 10 millj- ónir króna fyrir að tryggja sætið á EM en þátttöku- þjóðirnar skiptu með sér um 150 milljónum króna. Rúmlega 3.600 manns voru að meðaltali á leikjum Íslands í riðlakeppninni. EM 2013 Fjórum árum síðar var mótið haldið í Svíþjóð. Aftur voru þátttökuþjóð- irnar 12 og aftur fengu stelpurnar 10 milljónir fyrir að komast á mótið. UEFA styrkti KSÍ um ferðakostnað og gistikostnað en ekki til fulls því KSÍ þurfti að færa liðið á betra hótel og borga mismuninn. Lars Lagerbäck, þáverandi þjálfari karlalandsliðsins, kom og stýrði æfingu hjá liðinu sem heppnaðist vel. Stelpurnar komust upp úr riðl- inum en steinlágu fyrir Svíum í átta liða úrslitum, 4:0, eftir að hafa lent undir, 3:0, eftir 20 mínútur. Umfjöllunin var nú orðin meiri. Fjölmiðlar voru orðnir fleiri og mikið til af heimildum um mótið. Fyrir mótið snerist umfjöllunin mikið til um einstaka sögu Katrínar Jóns- dóttur, fyrirliða landsliðsins, sem var að leika sína síðustu landsleiki. Hún var í heilsíðuvið- tali helgina fyrir mótið í helgarblaði Fréttablaðsins. Önnur upphitun fyrir mótið var ekki á blaðsíðum blaðsins. Um 4.000 manns voru að meðaltali á leikjum íslenska liðsins í riðlinum. EM 2019 Mótið í ár slær öll met varðandi umfjöllun, bæði fyrir mót og eftir. Aldrei áður hefur EM verið stærra í sniðum en 16 lið etja kappi í sjö borgum. Áður en stelpurnar fóru út til Hollands var helgarblað Frétta- blaðsins með sjö síður um liðið og leikmenn. Einnig var gefið út sér- stakt EM blað. Aðrir fjölmiðlar hafa einnig eytt miklu púðri í liðið og leikmenn. Her fjölmiðlamanna er úti í Hollandi og hvert einasta skref liðsins er nánast skráð. Liðið fékk Polo Ralph Lauren fatnað fyrir mót og kveðjuathöfn í Leifsstöð. Fréttir af kvennalandsliðinu eru þær vin- sælustu á netmiðlum og forsíður blaðanna eru lagðar undir konurnar. Trúlega hafa margir grátið með Elínu Mettu Jensen sem fékk dæmda á sig vítaspyrnuna umdeildu gegn Frökkum og eignast nýja valkyrju í Ingibjörgu Sigurðardóttur. Varnar- konan öfluga sagði hinu fleygu orð að henni væri bara alveg drullusama um þessar gellur. Svo mörg voru þau orð. Alls fóru um 20 manns út með lið- inu, þjálfarar, sjúkraþjálfarar, læknir, fjölmiðlafulltrúi, liðsstjórar og svo- kallaðir njósnarar sem hafa það hlut- verk að fara á milli og skoða hin liðin, öryggisstjóri og kokkur er einnig með í nokkra daga. Þá stýrði Heimir Hall- grímsson, landsliðsþjálfari karla, varnaræfingu. Þá var mennta- og menningar- málaráðuneytið með viðburði fyrir leikinn gegn Frökkum og keyrðu Amabadama, Glowie og Emmsjé Gauti þá Íslendinga sem voru komnir til Hollands í stuð. Í dag spilar Ísland við Sviss og má telja víst að íslenska þjóðin muni sitja límd við skjáinn, bíða eftir viðbrögðum á netmiðlum og fylgjast með blöðunum. Fjörið er nefnilega rétt að byrja og stelpurnar ætla sér ekki að koma heim í bráð. EM kvenna þá og nú Valkyrjurnar í landsliðinu sem nú keppir á EM eru orðnar stjörnur. Um 3.000 Íslending- ar eru staddir í Hollandi að hvetja liðið. Fyrir átta árum voru íslenskir áhorfendur innan við 100 og áhorfendur á leik liðsins í riðla- keppninni í Finnlandi voru rúmlega þúsund. Freyr Alexandersson, Guðbjörg Gunnarsdóttir og Sara Björk Gunnarsdóttir á blaðamannafundi fyrir leikinn gegn Frakklandi, þar sem stelpurnar okkar börðust eins og ljón gegn feiknasterku liði Frakka. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Fyrir átta árum fóru innan við 100 Íslendingar til Finnlands. Nú standa um þrjú þúsund í stúkunni. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Kvennalandsliðið fékk mikinn stuðning áður en það fór út til Hollands og var Leifsstöð full af fólki sem veifaði íslenska fánanum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Sara Björk Gunnarsdóttir hefur tekið þátt í öllum þremur EM sem Ísland hefur tekið þátt í og hefur fundið muninn á eigin skinni. ALLIR HÖFÐU SKOÐUN Á ÍTALSKA DÓMARANUM OG LEIKARASKAP FRÖNSKU DÍVUNNAR. Benedikt Bóas Hinriksson benediktboas@frettabladid.is 2 2 . J Ú L Í 2 0 1 7 L A U G A R D A G U R26 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.