Fréttablaðið - 22.07.2017, Síða 46
Á EM 2013 voru þetta mestmegnis fjöl-s k y l d u m e ð l i m i r , ömmur og afar, mömmur og pabbar og það voru ennþá
færri árið 2009. Þetta er alveg
geggjað og það er fullt af fólki sem
maður þekkir ekki neitt,“ sagði Rakel
Hönnudóttir í samtali við vefsíðuna
fótbolta.net í vikunni.
„Ég held að í heildina hafi þrjátíu
eða fjörutíu manns farið út fyrir átta
árum, það er dálítið annað en núna,“
sagði Ásdís Gísladóttir í viðtali við
Fréttablaðið fyrir mótið í ár.
Allra augu eru nú á íslenska lands-
liðinu í knattspyrnu sem spilar á EM
kvenna í Hollandi. Samkvæmt frétt
RÚV voru 93% þeirra, sem horfðu á
sjónvarp á meðan leikurinn stóð yfir,
með stillt á leikinn. Um 3.000 Íslend-
ingar eru í Hollandi að hvetja liðið
áfram og vakti víkingaklappið sem
fyrr mikla athygli þegar það var tekið
í stúkunni gegn Frökkum. Gífurlegur
áhugi er á landsliðinu og leikmönn-
um þess. Fréttamiðlar keppast við
að segja fréttir af öllu sem viðkemur
leikmönnum og stuðningsneti þeirra
og eru þær lesnar upp til agna. Það
datt allt í dúnalogn hér á landi þegar
Ísland lék gegn Frökkum í leik sem
tapaðist á umdeildri vítaspyrnu.
Fjölskyldur og vinir hittust um allt
land og sendu góða strauma út. Allir
höfðu skoðun á ítalska dómaranum
og leikaraskap frönsku dívunnar. En
það er ekki langt síðan að áhuginn,
umfjöllun og annað var mun minna
í sniðum.
EM 2009
Þetta er í þriðja sinn sem íslenska
kvennalandsliðið kemst á EM. Fyrst
komst liðið á EM árið 2009. Þá var
Sigurður Ragnar Eyjólfsson þjálfari
og komust 11 önnur lið inn á mótið.
Þá, eins og nú, var opnunarleikurinn
gegn Frökkum og tapaðist 3:1. Hólm-
fríður Magnúsdóttir skoraði markið.
Ísland var í B-riðli ásamt Frökkum,
Þjóðverjum og Norðmönnum og
komust öll liðin áfram í 8-liða úrslit
nema Ísland.
Í kringum 10 starfsmenn voru í
teymi KSÍ sem fór til Finnlands.
Fréttablaðið sendi einn blaða-
mann en engan ljósmyndara.
Það er því erfitt að finna efni
og myndir frá mótinu. Ein
besta heimild um mótið
er heimildarmyndin
Stelpurnar okkar. Ekki
voru margir áhorfendur frá
Íslandi á mótinu, flestir fjölskyldu-
meðlimir leikmanna. Í aðdraganda
mótsins var lítil upphitun og stelp-
urnar fengu bláan íþróttagalla frá
KSÍ til að klæðast. Í helgarblaði
Fréttablaðsins nokkrum dögum
fyrir mót var ein síða með við-
tali við Ásthildi Helgadóttur.
Mótið kom og mótið fór.
Stelpurnar fengu 10 millj-
ónir króna fyrir að tryggja
sætið á EM en þátttöku-
þjóðirnar skiptu með sér
um 150 milljónum króna. Rúmlega
3.600 manns voru að meðaltali á
leikjum Íslands í riðlakeppninni.
EM 2013
Fjórum árum síðar var mótið haldið
í Svíþjóð. Aftur voru þátttökuþjóð-
irnar 12 og aftur fengu stelpurnar
10 milljónir fyrir að komast á mótið.
UEFA styrkti KSÍ um ferðakostnað og
gistikostnað en ekki til fulls því KSÍ
þurfti að færa liðið á betra hótel og
borga mismuninn. Lars Lagerbäck,
þáverandi þjálfari karlalandsliðsins,
kom og stýrði æfingu hjá liðinu sem
heppnaðist vel.
Stelpurnar komust upp úr riðl-
inum en steinlágu fyrir Svíum í átta
liða úrslitum, 4:0, eftir að hafa lent
undir, 3:0, eftir 20 mínútur.
Umfjöllunin var nú orðin meiri.
Fjölmiðlar voru orðnir fleiri og mikið
til af heimildum um mótið. Fyrir
mótið snerist umfjöllunin mikið
til um einstaka sögu Katrínar Jóns-
dóttur, fyrirliða landsliðsins, sem var
að leika sína síðustu landsleiki. Hún
var í heilsíðuvið-
tali helgina fyrir mótið í helgarblaði
Fréttablaðsins. Önnur upphitun fyrir
mótið var ekki á blaðsíðum blaðsins.
Um 4.000 manns voru að meðaltali
á leikjum íslenska liðsins í riðlinum.
EM 2019
Mótið í ár slær öll met varðandi
umfjöllun, bæði fyrir mót og eftir.
Aldrei áður hefur EM verið stærra
í sniðum en 16 lið etja kappi í sjö
borgum. Áður en stelpurnar fóru út
til Hollands var helgarblað Frétta-
blaðsins með sjö síður um liðið og
leikmenn. Einnig var gefið út sér-
stakt EM blað. Aðrir fjölmiðlar hafa
einnig eytt miklu púðri í liðið og
leikmenn. Her fjölmiðlamanna er
úti í Hollandi og hvert einasta skref
liðsins er nánast skráð. Liðið fékk
Polo Ralph Lauren fatnað fyrir mót
og kveðjuathöfn í Leifsstöð. Fréttir
af kvennalandsliðinu eru þær vin-
sælustu á netmiðlum og forsíður
blaðanna eru lagðar undir konurnar.
Trúlega hafa margir grátið með Elínu
Mettu Jensen sem fékk dæmda á
sig vítaspyrnuna umdeildu gegn
Frökkum og eignast nýja valkyrju í
Ingibjörgu Sigurðardóttur. Varnar-
konan öfluga sagði hinu fleygu orð
að henni væri bara alveg drullusama
um þessar gellur. Svo mörg voru þau
orð.
Alls fóru um 20 manns út með lið-
inu, þjálfarar, sjúkraþjálfarar, læknir,
fjölmiðlafulltrúi, liðsstjórar og svo-
kallaðir njósnarar sem hafa það hlut-
verk að fara á milli og skoða hin liðin,
öryggisstjóri og kokkur er einnig með
í nokkra daga. Þá stýrði Heimir Hall-
grímsson, landsliðsþjálfari karla,
varnaræfingu.
Þá var mennta- og menningar-
málaráðuneytið með viðburði fyrir
leikinn gegn Frökkum og keyrðu
Amabadama, Glowie og Emmsjé
Gauti þá Íslendinga sem voru komnir
til Hollands í stuð. Í dag spilar Ísland
við Sviss og má telja víst að íslenska
þjóðin muni sitja límd við skjáinn,
bíða eftir viðbrögðum á netmiðlum
og fylgjast með blöðunum. Fjörið er
nefnilega rétt að byrja og stelpurnar
ætla sér ekki að koma heim í bráð.
EM kvenna
þá og nú
Valkyrjurnar í landsliðinu sem nú keppir á
EM eru orðnar stjörnur. Um 3.000 Íslending-
ar eru staddir í Hollandi að hvetja liðið. Fyrir
átta árum voru íslenskir áhorfendur innan
við 100 og áhorfendur á leik liðsins í riðla-
keppninni í Finnlandi voru rúmlega þúsund.
Freyr Alexandersson, Guðbjörg Gunnarsdóttir og Sara Björk Gunnarsdóttir á blaðamannafundi fyrir leikinn gegn
Frakklandi, þar sem stelpurnar okkar börðust eins og ljón gegn feiknasterku liði Frakka. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Fyrir átta árum fóru innan við 100 Íslendingar til Finnlands. Nú standa um þrjú þúsund í stúkunni. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Kvennalandsliðið fékk mikinn stuðning áður en það fór út til Hollands og var
Leifsstöð full af fólki sem veifaði íslenska fánanum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Sara Björk
Gunnarsdóttir
hefur tekið þátt
í öllum þremur
EM sem Ísland
hefur tekið þátt
í og hefur fundið
muninn á eigin
skinni.
ALLIR HÖFÐU SKOÐUN Á
ÍTALSKA DÓMARANUM OG
LEIKARASKAP FRÖNSKU
DÍVUNNAR.
Benedikt Bóas
Hinriksson
benediktboas@frettabladid.is
2 2 . J Ú L Í 2 0 1 7 L A U G A R D A G U R26 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð